Morgunblaðið - 05.01.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 05.01.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði á morgun sunnudag, 6. janúar. Gleðin verður með hefðbundnu sniði og sér Ung- mennafélag Selfoss um framkvæmd- ina. Að vanda verður farin blysför frá Tryggvaskála kl. 20 að brennustæði á tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Jólasvein- arnir kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Þá verður glæsileg flugelda- sýning í umsjón félagsins með stuðn- ingi Björgunarsveitar Árborgar. Ungmennafélag Selfoss og Sveit- arfélagið Árborg standa að hátíðinni. Þrettándinn á Selfossi Jólasveinar, álfar og tröll Í Listasal Mosfellsbæjar er nú uppi sýning Bjargar Örvar sem ber yfir- skriftina Barnasaga/Saga af rót (endurlit). Þar má sjá níu nýleg verk eftir listakonuna, sem einkennast af björtum litum, kunnuglegum en þó abstrakt formum og heillandi blæ- brigðum. Um verk Bjargar Örvar hef- ur listfræðingurinn Aðalsteinn Ing- ólfsson skrifað að þegar „upp er staðið líkjast sköpunarverk hennar engu sem við þekkjum; eru marktæk- ur viðauki við heimsmynd okkar fremur en einhvers konar tilbrigði um hana“. Sýningunni lýkur laugardaginn 12. janúar næstkomandi og aðgangur er ókeypis. Opið er kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Listasalur Mosfellsbæjar Björg sýnir Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Markmið tyrkneskrastjórnvalda er að sáótta og reyna að leysaupp samfélag Kúrda og fæla þá frá borgum sínum,“ segir Leyla Imret, en hún var kjörin borg- arstjóri í Cizre árið 2014 fyrir hönd kúrdíska HDP-flokksins. Henni var vikið úr embætti í september 2015, þegar tyrkneskar öryggissveitir hófu umsátur um borgina, sem end- aði með því að þeir skutu með stór- skotaliði á íbúðahverfi Cizre sem olli miklu mannfalli meðal óbreyttra borgara. Í kjölfarið flúði hún til Þýskalands árið 2017, en hún hafði í millitíðinni verið handtekin þrisvar sinnum. Leyla mun flytja erindi í dag kl. 12 í Safnahúsinu ásamt Faysal Sar- iyildiz, en hann er fyrrverandi blaða- maður og þingmaður fyrir kúrdíska HDP-flokkinn. Þegar aðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum hófust undir lok árs 2015 var Faysal sviptur þing- helgi sinni og sá hann þann kost vænstan að flýja Tyrkland, en varð í millitíðinni vitni að aðgerðum tyrk- neska herliðsins í Cizre. Fayik Yagizay, fulltrúi HDP-flokksins við Evrópuráðið og aðrar evrópskar stofnanir í Strassborg, mun einnig ræða ástandið í Kúrdahéruðum Tyrklands. Leyla bendir á að á árunum 2013-2015 hafi verið í gangi friðar- ferli á milli Kúrda, sem höfðu þá lengi barist fyrir aukinni sjálfs- stjórn, og tyrkneskra stjórnvalda, en að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi leyst það upp fyrir pólitískan stundarávinning. Ástand- ið nú hafi í raun færst til baka um 20 ár frá því sem áður var, og sakar hún Erdogan og Tyrki um hræðilegar aðfarir gegn Kúrdum. „Þetta eru hræðilegar árásir gegn óbreyttum borgurum, sem ekki hafa sést áður í sögu tyrkneska lýðveldisins,“ segir hún, en bætir við að hún telji að þessi harða stefna Erdogans muni á endanum leiða til falls hans. „Það er ómögulegt að halda þessari stefnu áfram til lengdar, hún er ekki sjálf- bær. Óttinn við að tapa völdum ræð- ur öllu hjá honum, en hann mun tapa á endanum.“ Faysal Sariyildiz bendir á að Erdogan sé ekki fyrsti leiðtogi Tyrk- lands sem hafi treyst á harða þjóð- ernishyggju til að njóta stuðnings í Tyrklandi. „Á þessari stundu vill ríkisstjórnin þagga í öllum andstæð- ingum sínum, ráða fjölmiðlunum og stýra dómstólunum.“ Hann bætir við að meirihluti almennings í Tyrk- landi sé því ekki með rétta mynd af raunveruleikanum. Skiptu út friði fyrir ofbeldi Faysal tekur undir það sjónar- mið Leylu að Erdogan hafi fórnað friðarferlinu í pólitískum tilgangi. „Þegar við í HDP unnum stóran sig- ur í þingkosningunum í júní 2015 ákváðu Erdogan og embættismenn- irnir í kringum hann að friðarferlið væri ekki lengur að skila þeim ár- angri, og skiptu því út fyrir ofbeldi.“ Hann bætir við að nú séu þrjú ár liðin frá þeim hræðilegu atburð- um sem hann og Leyla urðu vitni að í Cizre, og að þau hafi síðan þá reynt að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þeim. „Það hefur ekki verið auð- velt, því sérstaklega í Evrópusam- bandinu er stefna ríkjanna þar er að þau vilja ekki sjá þessa glæpi gegn mannkyni, sem hafa átt sér stað í Tyrklandi.“ Þau fagni því hverju tækifæri sem þau fái til þess að vekja athygli á ástandinu. „Erdogan er að kúga Evrópu og með góðum árangri. Hann hótar Evrópusambandinu að hann muni senda flóttamenn þangað frá Sýr- landi, þar sem meðal annars öfga- menn geti leynst og valdið usla í ríkjum Evrópu. Það er hótunin, og hann notar landfræðilega sterka stöðu Tyrklands til þess að fá sínu framgengt að öðru leyti.“ Þar vegi einnig þungt þátttaka Tyrkja í Atl- antshafsbandalaginu, sem leiði til þess að vestrænir bandamenn setji kíkinn fremur fyrir blinda augað þegar kemur að Tyrklandi. Faysal segir að næsta markmið Erdogans sé að ráðast á Kúrda í Sýrlandi og koma í veg fyrir að þeir fái aukna sjálfsstjórn í kjölfar átak- anna þar. „Við höfum ekki séð nægi- leg viðbrögð frá evrópskum stjórn- málamönnum, en til lengri tíma verður það mjög hættulegt fyrir Evrópu ef Erdogan fær að halda áfram á þessari vegferð kúgunar.“ Stefna ekki að sjálfstæði -En hvers vegna vill Erdogan hlutast til í málefnum Kúrda í Sýr- landi? Fayik Yagizay bendir á að Kúrdar þar séu oft náskyldir þeim í Tyrklandi, enda hafi ákvörðun landamæranna milli Sýrlands og Tyrklands í kjölfar fyrri heimsstyrj- aldar ekki alltaf ráðist af réttum for- sendum. „Við höfum sama tungu- mál, sömu menningu, sömu tónlist og sömu stefnumál oft,“ segir Fayik. „Ég vek athygli þína á því að Kúrdar vilja nú meira lýðræði, meira frelsi og meiri réttindi fyrir trúarhópa í Mið-Austurlöndum og svo framvegis, en við erum ekki að reyna að búa til nýtt þjóðríki, því að það mun bara búa til mun fleiri vandamál.“ Kúrdar í Sýrlandi séu því nú að stefna að því að landið verði gert að sambandsríki, þar sem Kúrdar hafi ríkt umboð til sjálfs- stjórnar. „Erdogan óttast hins vegar að ef Kúrdar fá slík ítök í Sýrlandi muni Kúrdar í Tyrklandi krefjast þess sama og jafnvel slíta sig síðar frá Tyrkjum og mynda eitt þjóðríki með Kúrdunum í Sýrlandi, en það er bara rangt hjá honum,“ segir Fayik og segir að á tímum aukinnar hnatt- væðingar hafi vægi hins klassíska þjóðríkis minnkað til muna. Munu aldrei gefast upp Aðspurð hvert framhaldið sé segir Leyla að hún horfi vongóð til framtíðar. „Ég vona að einn daginn munum við geta snúið aftur til lands okkar og búið með fólkinu í friði og farsæld.“ Hún segist hafa þá von, ekki síst vegna þess að baráttan haldi áfram og taki á sig ýmsar myndir. Til dæmis hafi Leyla Zana, þingkona HDP sem nú situr í fang- elsi Tyrkja, verið í hungurverkfalli í nærri tvo mánuði. „Við munum aldr- ei gefast upp og það gefur mér von.“ Hún nefnir að Parísardómstóll- inn svonefndi, sem byggður er á svipuðum dómstól sem Bertrand Russell stofnaði um Víetnam-stríðið, hafi fjallað um aðgerðir Tyrkja og komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn alþjóðalögum með þeim. „Það er mikilvægt fyrsta skref og koma okkar hingað er einnig mjög mikilvæg. Ég vona að við get- um fengið þjóðir heims til að átta sig á ástandinu, þannig að þær þrýsti á um að það breytist til batnaðar.“ Fyrirlesturinn í Safnahúsinu er öllum opinn og ókeypis. Vilja að þjóðir heims vakni Þau Leyla Imret og Fay- sal Sariyildiz voru kjörn- ir fulltrúar kúrdíska stjórnmálaflokksins HDP í Tyrklandi, en voru bæði hrakin úr embættum sín- um árið 2015. Þau ætla að flytja erindi um reynslu sína í Safnahús- inu í dag, en þau urðu bæði vitni að voðaverk- um í borginni Cizre. Morgunblaðið/RAX Voðaverk Þau Fayik Yagizay, Leyla Imret og Faysal Sariyildiz flytja erindi um ástand Kúrda í Tyrklandi í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.