Morgunblaðið - 05.01.2019, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að vera viðbúin/n því að
þurfa að taka þátt í umræðum til þess að
koma skoðunum þínum á framfæri. Þú
fréttir af fjölgun í stórfjölskyldunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Leitaðu að andlegri rót vandamál-
anna og notaðu orku þína til að lækna
gömul sár. Sól og sandur freista þín,
stökktu í frí ef þú mögulega getur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Allir hlutir kosta sitt en það er
forgangsröðin sem skiptir máli. Leggðu
fyrir og kauptu þegar þú átt fyrir hlut-
unum. Því fylgir mikil vellíðan.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eitthvað er ekki eins og það á að
vera. Heilsan skiptir öllu máli, láttu skoða
þig. Allir gera mistök, ekki dæma þig of
hart.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur stundum verið erfitt að fá
sannleikann fram og ekki víst að öllum líki
útkoman jafn vel. Vertu á verði gegn sölu-
mönnum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Efnisleg gæði skipta þig máli.
Reyndu samt að sjá það sem skiptir máli í
lífinu. Ekki rasa um ráð fram í fram-
kvæmdum, skipuleggðu þig betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sumar aðstæður hefur þú ekki á valdi
þínu svo þú þarft að reikna með þeim án
þess að geta breytt þeim. Brostu bara við
heiminum og þá mun heimurinn brosa við
þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leggðu þig fram um að verða
við óskum, sem á þínu færi er að uppfylla.
Eins og er situr þú uppi með of mörg verk-
efni óleyst.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nýtt verkefni er að hefjast.
Losaðu þig við gamlar klisjur og vertu op-
in/n fyrir nýjungum. Vinir hjálpa þér að
öðlast trú á ástina á ný.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu opin/n fyrir nýjungum.
Líttu í kringum þig og þakkaðu fyrir það
sem gengur vel í lífi þínu. Það er gott að
venja sig á að vera þakklátur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver mun hugsanlega láta
þig hafa hluti eða peninga sem munu
koma sér vel fyrir þig. Reyndu að sjá það
jákvæða í öllum hlutum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki hika við að biðja um meiri
hjálp þegar þú ert þreytt/ur. Góður vinur
gengur í gegnum erfiða tíma, vertu til
staðar.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Þekkir margur þennan bæ.
Þoku felur hann í sér.
Hlaðinn vistum er hann æ.
Efstur á blaði, hyggjum vér.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Þrír bræður frá Bakka flakka.
Sjá bakka dökkan sem vegg.
Til hangikjötsbakkans hlakka
og hjakka með bakka og egg.
„Þá er það síðasta lausn árs-
ins,“ segir Helgi R. Einarsson:
Við tertu- og þoku- tengdur er,
hann tálguhnífur ber,
þar skondnir bræður birtust mér.
Því bakkans leitum hér.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Bakki heitir bærinn sá.
Bakki þokuskýið er.
Bakka koma krásir á.
Á kuta bakka sjáum vér.
Þá er limra:
Um Guðmund hinn góða á Bakka
ein grínsaga látin var flakka,
hann eftir það grófur
var álitinn þjófur,
að af honum stolið var frakka.
Og að lokum er ný gáta eftir
Guðmund:
Ár leið burt í alda skaut,
annað ber að garði.
Gáta mér af munni hraut
í morgun fyrr en varði:
Í fimleikasölum finna má.
Finnst hún líka í sænum.
Í ritverkum hana rekst ég á.
Á reiki hjá Vinstri grænum.
Við lausn sína bætti Helgi R.
Einarsson við „til umhugs-
unar“:
Er klausturreglan kippti
af krafti’ í okkur hnippti.
Þörf nú á
er að fá
aftur siðaskipti.
Og síðan er „Sæla“:
Mér leiddist ekki á leiðinni
því Lísu mætti á heiðinni
í vöngum rjóð,
réttsýn, góð,
sem rjóminn á tertusneiðinni.
Hér er vísa eftir Pál Vídalín:
Fyrir þreyttum ferðasegg
fölskvast ljósin brúna;
ráði guð fyrir oddi og egg,
ekkert rata ég núna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ósjálfrátt er krafsað
í bakkann
„þetta er löggan. HvaÐ ætli hún
vilji í þetta sinn?”
„mundirÐu eftir aÐ hengja upp
Myndina mína?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hanga saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ÆTTU ALLIR AÐ VERA
GÓÐIR VIÐ DÝRIN
ORÐ AÐ
SÖNNU
NEMA ÞAU SÉU
GÓÐ Á BRAGÐIÐ
ENN
SANNARA
ÉG VIL LÁTA BRENNA
MIG ÞEGAR ÉG DEY!
ÞÚ ERT
ALDEILIS
HEPPINN
Áramótaheit setja svip á þennanárstíma – og umræða um ára-
mótaheit. Vitaskuld er hægt að setja
sér markmið hvenær sem er, en ára-
mót virðast gefa sérstakt tilefni til að
taka sig á. Sennilega er það sú tilfinn-
ing að um áramót hverfi það ár sem
er að líða í haf tímans, en framundan
er nýtt ár, saklaust og óspillt eins og
reifabarn sem hefur þarna úrslita-
áhrif.
x x x
En um leið vakna ýmsar spurn-ingar, sem eru fóður umræðu í
heita pottinum og við kaffivélina á
vinnustaðnum. Borgar sig að halda
þeim út af fyrir sig? Láta nægja að
pára þau á blað? Eða er betra að bás-
úna þau um allar jarðir? Er vænlegra
til ávinnings að fara hægt af stað en
að byrja á fullu og springa á limminu?
Er líklegra að maður haldi áramóta-
heitið í ár en í fyrra? Áramótaheitin
valda því að nú fyllast líkamsræktar-
stöðvar. Nikótíntyggjó selst sem
aldrei fyrr. Síðan fer að hægjast um í
líkamsræktarstöðvunum um miðjan
mars, ef ekki fyrr. Sumir halda sig
jafnvel við nikótíntyggjóið svo árum
skiptir – og reykja líka.
x x x
Víkverji er ekki mikið fyrir ára-mótaheit og er ekki sérlega dug-
legur að halda þau. Hann skildi kon-
una, sem setti neyðaróp á
samfélagsmiðil rétt fyrir áramótin:
„Ég er að reyna að klára áramóta-
heitin fyrir 2018. Hef 25 klukkustund-
ir til að missa 14 kíló. Aðeins alvöru-
ráð, takk fyrir.“
Þessa dagana er vinsælt að tala við
sérfræðinga um áramótaheit. Vík-
verji veit ekki hvað sérfræðingar um
áramótaheit gera það sem eftir er
árs. Þeir eru kannski sérfræðingar í
einhverju öðru líka.
x x x
Einhvers staðar stóð að 75% þeirra,sem strengdu áramótaheit stæðu
ekki við þau. Það hljómar ekki væn-
lega. Besta ráðið sá hann í frétt, sem
birtist á Smartlandinu fyrir ári. Hug-
ur þarf að fylgja máli. Víkverja finnst
nokkuð líklegt að fylgi ekki sannfær-
ing muni áramótaheitið fljótlega fara
fyrir lítið á altari hins góða ásetnings.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, athvarf á degi neyð-
arinnar, hann annast þá sem leita
hælis hjá honum
(Nahúm 1.7)