Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Menntamálaráðherra hefurgreint frá því að ætlunin sé að leggja í næstu viku fram frum- varp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Eitt af því sem þar verður að finna er að sögn ráðherrans ákvæði um að einkareknir fjöl- miðlar geti fengið hluta ritstjórnar- kostnaðar, allt að 25%, endur- greiddan.    En Ríkisútvarpið þarf ekki aðbíða eftir slíku frumvarpi, það er þegar byrjað að sækja sér endur- greiðslur.    Sagt var frá því í Morgunblaðinuí gær að jafnvel Áramóta- skaupið nyti sérstakrar endur- greiðslu upp á 25% þar sem það væri unnið utanhúss. Með þessu er kostnaður ríkisins af skaupinu um- talsvert hærri en Ríkisútvarpið hef- ur hingað til gefið upp.    Og það hlýtur að koma til skoð-unar hvort Ríkisútvarpið er með þessu að laumast bakdyra- megin í fjárhirslur ríkisins, enda eru því ætlaðir um fimm milljarðar króna á fjárlögum og tæpast ætlast til að það sæki sér fé til viðbótar með því að fá aðra til að framleiða fasta dagskrárliði.    Eða hvar verða mörkin dregin íþessu, mætti Ríkisútvarpið út- vista framleiðslu fréttanna og sækja sér með því 25% endur- greiðslu?    Svo má ekki gleyma þeim hátt íþremur milljörðum króna sem Ríkisútvarpið sogar til sín af aug- lýsingamarkaði. Er engin leið að seðja þessa forynju? Eru engin mörk? STAKSTEINAR „Það er búið að vitja allra netanna og það hefur enginn fiskur fundist. Það eru góðar fréttir,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax, en í gær var vitjað neta sem lögð voru til að kanna hvort lax hefði sloppið úr sjókví fyrirtækisins við Hringsdal í Arnarfirði. Fiskistofa stýrði aðgerðum í gær. Gat kom á nótarpoka einnar sjókvíar og upp- götvaðist við skoðun kafara. Gert var við gatið á þriðjudag. Gatið var 15 cm á breidd og 50 cm á hæð og því þótti ekki óhugsandi að fiskur hefði komist úr kvínni. Í henni voru um 157 þúsund laxar að meðalþyngd 1,3 kg. Kjartan sagði í samtali við Morgunblaðið síð- degis í gær að fyrirtækið hefði fylgt verk- reglum þegar tilvik sem þetta kæmu upp. Í dag yrði áfram unnið að málinu með Matvæla- stofnun. „Við sjáum ekki frávik í fóðri á lífmassa og höfum hvorki séð breytt atferli né líf utan kví- anna,“ segir Kjartan. „Við fyrstu sýn hafa þetta verið góðar fréttir.“ hdm@mbl.is Enginn lax slapp úr sjókví Arnarlax  Gat kom á nótarpoka einnar sjókvíar  Netja var vitjað í Arnarfirði í gær Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Arnarlax Enginn fiskur slapp úr kví fyrirtækisins. Páskatöfrar í Toskana sp ör eh f. Vor 6 Heillandi andrúmsloft ítölsku rivíerunnar með pálmatrjám og fögrum ströndum bíður okkar í glæsilegri ferð þar sem við kynnumst menningu og listum Ítalíu. Versilíaströndin er undurfögur sem og bærinn Lido di Camaiore. Við förum í ævintýralegar skoðunarferðir, t.d. í siglingu úti fyrir Cinque Terre ströndinni og heimsækjum bæði Flórens og Pisa með sinn skakka turn. 18. - 28. apríl Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Vatnsheldir Kuldaskór SMÁRALIND www.skornirthinir.is Innbyggðir broddar í sóla Verð 16.995 Stærðir 37 - 41 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.