Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 18
Teikning/ASK arkitektar
Í vinnslu Hér má sjá fyrri drög að hverfinu. Verkefnið er enn í mótun.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa
auglýst breytingu á deiliskipulagi
Kirkjusands. Meðal annars er
íbúðum fjölgað á reitum G, H og I úr
100 í 125. Reitirnir þrír eru innst á
lóðinni, suðaustast, og munu liggja
við nýja götu, Hallgerðargötu, norð-
austan Laugarnesvegar.
Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá
ASK arkitektum, hefur komið að
gerð deiliskipulagsins. Það var sam-
þykkt 2016 en þá var gert ráð fyrir
300 íbúðum á öllu skipulagssvæðinu.
Gera ráð fyrir minni íbúðum
Páll segir meðalstærð íbúða á
breytingasvæðinu nú um 80 fer-
metra en hafi áður verið um 100 fer-
metrar. Það sé í takt við miklar
breytingar í eftirspurn síðan vinna
hófst við deiliskipulagið. Bjarg
íbúðafélag hafi lóðir G og H til ráð-
stöfunar. Húsin á þeim verði byggð
úr timbureiningum frá Lettlandi.
Það lækki byggingarkostnað.
„Bjarg íbúðafélag vill minni íbúðir
en við gerðum ráð fyrir. Það þýðir að
við komum fyrir fleiri íbúðum án
þess að auka byggingarmagn,“ segir
Páll. Til upprifjunar er Bjarg íbúða-
félag húsnæðissjálfseignarstofnun
stofnuð af ASÍ og BSRB.
Reitur I er hins vegar ætlaður
Brynju – hússjóði Öryrkjabanda-
lagsins. Páll segir hönnun húsa á
þeim reit skemmra á veg komna.
Áformað sé að hefja framkvæmdir á
reitum G og H í sumar og afhenda
íbúðirnar á næsta ári.
Markaðssetning á nýja hverfinu á
Kirkjusandi er hafin. Þar verða
íbúðir og atvinnuhúsnæði.
Reisa timburhús við Kirkjusand
Íbúðum fyrir
Bjarg fjölgað með
nýju skipulagi
Lóðir Bjargs
íbúðafélags á
Kirkjusandi
Sundlaugavegur
Kirkjusandur
Sæ
br
au
t
K
rin
g
lu
m
ýra
rb
ra
u
t
Sæ
br
au
t
La
ug
ar
ne
sv
eg
ur
H
al
lg
er
ða
rg
at
a
G
H
Lóðir
G og H
Fjölfarin gatnamót í
Firðinum endurbætt
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í
breytingar á vegamótum Reykja-
nesbrautar og Fjarðarhrauns við
Kaplakrika í Hafnarfirði.
Mjög hefur verið kallað eftir úr-
bótum á þessum stað enda um-
ferðarþunginn mikill. Vegagerðin
auglýsti eftir tilboðum í verkið í
fyrravor en þá barst ekkert tilboð.
„Við stefnum að því að bjóða verk-
ið út aftur í byrjun næsta árs. Þá
verður hægt að bjóða upp á lengri
verktíma og markaðurinn vonandi
rólegri,“ sagði Svanur G. Bjarnason,
svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, í við-
tali við Morgunblaðið í júní í fyrra.
Verkið felst í tvöföldun vinstri
beygju frá Fjarðarhrauni inn á
Reykjanesbraut til austurs og nýrri
aðrein meðfram Kaplakrikalæk.
Breytingum í vegamótum skal vera
lokið 15. júlí 2019. Frágangi utan
vega skal vera lokið 1. ágúst.
Álag á einfalda Reykjanesbraut í
gegnum Hafnarfjörð hefur leitt til
mikilla umferðartafa á þeim kafla og
sífellt fleiri slysa, sagði m.a. í álykt-
un bæjarstjórnar í fyrra. sisi@mbl.is
Gatnamót Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns
Fyrirhugaðar endurbætur
Fjarðarhraun
Rey
kjan
esb
rau
t
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Ný aðrein inn á
Reykjanesbraut
Tvöföldun vinstri beygju
frá Fjarðarhrauni inn á
Reykjanesbraut
Ekkert tilboð barst í verkið í fyrra
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Ykkar skál á nýju ári !
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Hnakkaþon, hin
árlega útflutn-
ingskeppni
sjávarútvegsins,
hefst í dag, en
þetta er í fimmta
sinn sem það er
haldið. Keppnin
er samstarfsverk-
efni Háskólans í
Reykjavík og
SFS, Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi. Að þessu
sinni eru sjö lið með 30 nemendum
úr HR skráð til leiks og er Iceland
Seafood International samstarfsfyr-
irtækið í ár. Keppendur fá þrjá sól-
arhringa til þess að setja saman
áætlun um hvernig þeir myndu selja
afmörkuðum markhópi í Bandaríkj-
unum íslenskan fisk. Áskorunin
krefst því lausna á sviði neytenda-
hegðunar, markaðssetningar og
áætlanagerðar.
Það lið sem verður hlutskarpast í
Hnakkaþoninu mun fá ferð til Bost-
on í boði Icelandair Group og banda-
ríska sendiráðsins á Íslandi.
sgs@mbl.is
Hnakkaþon í
fimmta sinn
Keppendur takast á
við áskoranir.
Stjórnendur
Fiskistofu hafa
ítrekað bent á
þann vanda sem
við er að etja
vegna eftirlits
með fiskveiðum.
Þeir telja skýrslu
Ríkisendurskoð-
unar um eftirlits-
hlutverk Fiski-
stofu vandaða og
að hún bendi réttilega á marg-
víslega erfiðleika í þessum efnum.
Þetta kemur fram í færslu á vef
Fiskistofu, þar sem bent er á að
stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoð-
unar á eftirlitshlutverki Fiskistofu
sem birt var eftir áramótin hafi
verið til umræðu í fjölmiðlum
undanfarna daga.
„Það kemur réttilega fram í
skýrslunni að starfsmönnum Fiski-
stofu hefur fækkað um 29 prósent
frá árinu 2008 samhliða því að
verkefnum hefur fjölgað. Þá hefur
Fiskistofa enn fremur bent á að
bæta þurfi regluverkið til þess að
styrkja stofnunina í hlutverki
sínu,“ segir í færslunni.
Endurskoða þurfi reglur um
vigtun sjávarafla og hvernig meta
skuli tengsl fyrirtækja með tilliti
til þess hvort einstakir aðilar ráði
yfir stærri hlut veiðiheimilda en
leyfilegt er samkvæmt lögum.
sh@mbl.is
Stjórnendur Fiski-
stofu segjast hafa
bent oft á vandann
Eyþór Björnsson
Fiskistofustjóri.