Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 m. Öflugur Milwaukee mótor skilar 14000 til 24000 strokum á mínútu. REDLINK™ yfirálagsvörn REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu Verð 29.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FCOT Alvöru hjámiðja fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum VIÐTAL Guðrún Vala Elísdóttir vala@simenntun.is Theodór Kristinn Þórðarson, fyrr- verandi yfirlögregluþjónn í Borgar- nesi, sem í almennu tali er kallaður Teddi lögga, hefur nú samið leik- verkið „Farðu á þinn stað“ sem verður frumsýnt 26. janúar á Sögu- loftinu í Landnámssetrinu. Um fjölskylduverk er að ræða í þeim skilningi að Teddi semur verk- ið sjálfur og er eini leikarinn, leik- stjórinn er Geir Konráð, sonur hans, og sýningarstjóri er Eiríkur Þór, yngsti sonurinn. Eins hefur konan hans Tedda; María Erla Geirsdóttir, aðstoðað hann og að sýnt honum þol- inmæði og skilning í ferlinu. Varði Davíð falli Verkið fjallar um samskipti hans við sérstakt og skemmtilegt fólk sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni. ,,Það byrjar í Kínahverfinu í Borgar- nesi þar sem ég er fæddur og endar úti á Ystu Nöf þar sem ég á heima í dag,“ segir Teddi og heldur áfram: „Verkið er drifið áfram af ljós- myndum en svo dett ég í karaktera inni á milli. Auðvitað er þetta mín saga og mitt sjónarhorn en það koma inn alls konar hliðarsögur af öðru fólki. Þarna koma landsþekktir einstaklingar við sögu á einn eða annan hátt og meðal þeirra má nefna (í stafrófsröð) Árna Bergmann, Dag Sigurðarson, Davíð Oddsson, Hall- dór Laxness, Hrafn Gunnlaugsson, Jónas E. Svafár, Stein Steinar, Vig- dísi Finnbogadóttur og Þórberg Þórðarson. Ein sagan er til dæmis frásögn um það hvernig ég varði Davíð Oddsson falli, ég beinlínis greip hann. Hvernig hefði Íslands- sagan til dæmis orðið hefði ég ekki gripið Davíð Oddsson og varið hann falli árið 1984, ég bara spyr?“ Teddi segir að verkið ætti að geta höfðað til svo að segja allra, en kannski sé það að mestu leyti um leit hans að kjarnanum í sjálfum sér, hvað það sé sem haldið hefur honum gangandi á mörgum sviðum í einu í öll þessi ár. Þar með má segja að það fjalli vissulega um hver sé hans rétti staður í tilverunni. Mín þakkargjörð „Að vissu leyti er þetta líka lof- gjörð eða mín þakkargjörð til sam- ferðafólks míns og sérstaklega þeirra sem léð hafa mér hönd þegar þörf hefur krafið og ekki síst til allra þeirra sem stóðu ekki í vegi fyrir mér, heldur opnuðu fyrir mér dyr að nýjum möguleikum og tækifærum í lífinu. En fyrst og fremst er ég að reyna að vera skemmtilegur og nokkuð léttur í þessu verki og gamansögurnar mun ekki vanta, síð- ur en svo,“ segir Teddi brosandi og bætir við: „Annars mun ég líka reyna að leysa mín eigin Geirfinns- mál, ef svo má segja. Og ber þar hæst spurninguna „Hver skaut ekki Orm Ormsson og hvaða ár var það ekki gert?“ en við erum þar líklegast að tala um árabilið frá 1962 til 1965. En eitt er víst að vettvangurinn var Kínahverfið í Borgarnesi.“ Lék í Óðali feðranna Teddi tók á árum áður virkan þátt í störfum Leikdeildar Ungmenna- félagsins Skallagríms í Borgarnesi á um 15 ára tímabili. Hann lék hlut- verk í nokkrum leikritum, meðal annars Gvendó í Dúfnaveislunni eft- ir Halldór Laxness sem hann segir hafa verið mjög eftirminnilegt hlut- verk. Hann leikstýrði nokkrum verkum, m.a. einþáttungnum „Flug- urnar í glugganum“ eftir Hrafn Gunnlaugsson og leikritinu „Svein- björg Hallsdóttir“ eftir Trausta Jónsson veðurfræðing. Þá hefur hann leikið nokkur lítil hlutverk í kvikmyndum, m.a. í Óðali feðranna eftir Hrafn Gunnlaugsson, en að vísu léku nokkuð margir Borgnesingar í þeirri mynd. „Ef fólk kemur á sýninguna þá kemst það vonandi að því hvaða mann ég hef að geyma,“ segir Teddi. Sýningum verður stillt í hóf en ekki hefur enn þá verið ákveðið hversu margar þær verða. Þær fara fram eins og áður segir á Sögulofti Land- námssetursins og oftast er sýnt á laugardagskvöldum kl. 20 og síðan á sunnudögum kl. 16. Frumsýningin verður 26. janúar. Leikritið lofgjörð til sam- ferðafólksins í Borgarnesi  Fyrrverandi yfirlögregluþjónn samdi leikrit  Fjölskyldan tekur stóran þátt Morgunblaðið/Guðrún Vala Leikskáld Theodór Kr. Þórðarson bregður á leik fyrir utan Landnámssetrið í Borgarnesi. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Þegar Samgöngustofa hefur lokið námskeiði fyrir ökukennara á lands- byggðinni er okkur ekkert að van- búnaði að fara af stað með sérstakt umferðarnámskeið fyrir eldri borg- ara,“ segir Þórunn H. Sveinbjörns- dóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Hún segir að flestir félagsmenn hafi tekið bílpróf fyrir meira en 50 árum og ýmislegt hafi breyst á þeim tíma, svo sem ný um- ferðarmerki og ný hugsun. „Samgöngustofa lét okkur í té námskeið þar sem boðið er upp á bóklega kennslu og einn tíma með ökukennara þar sem ökumaður fær tækifæri til að meta styrkleika og veikleika sína sem ökumaður,“ segir Þórunn, sem telur marga eldri borgara forðast að aka á háanna- tíma. Þórhildur Elínardóttir, sam- skiptastjóri Samgöngustofu, segir mikilvægt að eldri borgarar geri sér grein fyrir því hvenær sé tímabært að hætta akstri. Með því að halda sér í formi, aka reglulega, virða tak- markanir sínar, sleppa akstri í ljósaskiptum, velja sér leiðir sem fólk þekkir, sleppa akstri í hálku og slæmu veðri og velja bíla sem auð- velt er að leggja þá geti eldri öku- menn tryggt öryggi sitt og annarra. Morgunblaðið/Eggert Umferðarteppa Margir aldraðir ökumenn veigra sér við að aka í umferðinni á háannatíma. Öryggisins vegna sinna þeir erindum sínum á öðrum tíma. Umferðarnámskeið fyrir eldri borgara Áfrýjunarnefnd neytendamála hef- ur fellt úr gildi ákvörðun Neyt- endastofu sem hafði bannað Ís- lenska gámafélaginu, ÍG, notkun á auðkenninu „Örugg eyðing gagna“, sem Gagnaeyðing hafði notað sem slagorð frá árinu 2008. Þetta kemur fram á vefsíðu Neyt- endastofu. Þar segir að Gagnaeyð- ing hafi talið að þessi notkun ÍG væri til þess fallin að valda ruglingi á milli fyrirtækjanna. Þessu hafn- aði ÍG og benti á að auðkennið hefði ekki fengist skráð hjá Einkaleyfa- stofunni. Áfrýjunarnefnd neytenda- mála taldi orðasambandið almennt og felldi ákvörðunina úr gildi „Örugg eyðing gagna“ bönnuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.