Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Akureyringar öflugir
Guðmundur Pétursson segir að
leikurinn á Akureyri í seinni umferð-
inni hafi í raun verið úrslitaleikur
mótsins. „Akureyringar unnu á
Laugardalsvelli, en við unnum 3:2
fyrir norðan eftir að hafa komist í 3:0
á fyrstu 20 mínútunum og komumst
með tærnar fram fyrir þá,“ rifjar
markvörðurinn upp.
Akureyringum fataðist flugið eftir
það og fyrir lokaumferðina var KR
með tveggja stiga forskot á Fram.
Hefði KR tapað og Fram unnið Val
hefði verið úrslitaleikur um titilinn.
„Leikurinn í Keflavík er líka mjög
minnistæður,“ segir Guðmundur.
„Billi jafnaði 2:2 með svakaskoti
þegar nokkrar mínútur voru til leiks-
loka. Skömmu áður hafði hann
bjargað á línu.“
Ársæll Kjartansson, Billi, var í
sviðsljósinu í Keflavík. „Mikil drulla
var í markteignum og pollur við
marklínuna,“ segir hann um
björgunina. „Gummi rann í drullunni
en mér tókst að ná taki á stönginni,
draga mig að henni, setja hnéð í bolt-
ann og bjarga í horn. Það var ekki
möguleiki að standa upp úr svaðinu.“
Um jöfnunarmarkið segir varnar-
maðurinn: „Ég fékk boltann inni í
vítateig okkar, hljóp upp kantinn og
á móts við vítateigshornið lét ég vaða
og boltinn fór í vinkilinn fjær. Þetta
var æðislega flott mark.“
Eftir leik segir hann að stuðnings-
maður hafi komið inn í klefa og spurt
hvar Ársæll væri. „Hann gaf mér
bjórkassa og sagði að ég réði því
hvort ég gæfi hinum með mér.“
Ólafur Lárusson var í hópi marka-
kónga deildarinnar, skoraði átta
mörk eins og þrír aðrir leikmenn.
„Ég kom seint inn í liðið, en var í
toppformi eftir að hafa hlaupið allan
snjó niður austur á Laugarvatni,“
segir hann. „Það er eftirminnilegt að
hafa fengið tækifæri til að spila með
Þórólfi Beck,“ heldur hann áfram.
„Hann er því miður sjaldan nefndur
þegar rætt er um bestu fótbolta-
menn Íslands, en hann var ótrúlega
góður og það var þvílíkt að fá boltann
frá honum, maður bara stóð og beið.
Hann var gjarnan með þrjá til fjóra í
kringum sig og allt í einu kom hárná-
kvæm sendingin og ekki hægt annað
en að skora.“ Hann segir marga leiki
eftirminnilega, m.a. leiki á móti ÍBV
og ÍBA. „Ég skoraði með skalla fyrir
utan teig fyrir norðan en Kjartan L.
Pálsson ætlaði að skrifa markið á
Ellert því ég átti ekki að geta skorað
með skalla af þessu færi!“
Gunnar Felixson var fyrirliði.
Hann bendir á að titillinn hafi lengi
verið í minnum hafður vegna þess að
síðan hafi liðið 31 ár þar til KR hafi
næst orðið Íslandsmeistari. „Það var
stöðugt verið að rifja þennan titil
upp en ég varð fyrst Íslandsmeistari
1961 og það er eftirminnilegasti titill
minn.“
Fyrirliðinn segir að hann muni
ekki eftir einstökum leikjum eða at-
vikum en hann muni eftir leiknum í
Keflavík vegna snarbrjálaðs veðurs,
drullunnar og boltans í pollinum.
„Engu að síður hef ég áttað mig á því
að þátttakan í fótboltanum hefur
skipt mig mjög miklu máli hvað lífs-
hlaupið varðar án þess að ég hafi
gert mér grein fyrir því meðan á
sparkinu stóð.“
Gullöld KR fyrir 50 árum
Leikmannahópurinn 1968 kom saman rúmri hálfri öld eftir að 20. Íslandsmeistaratitlinn var í höfn
Svað Ársæll Kjartansson bjargaði fyrir horn eftir að boltinn fór í pollinn á Keflavíkurvelli 1968. Björn Th. Árnason,
Ellert B. Schram, Hörður Markan, Jón Ólafur Jónsson og Guðmundur Pétursson fylgdust með.
Morgunblaðið/Eggert
Meistarar Gunnar Felixson, Theodór Guðmundsson og Ellert B. Schram eru kátir með liðna tíð.
Morgunblaðið/Eggert
Spjall Ársæll Kjartansson, Björn Th. Árnason og Guðmundur Pétursson hlusta á Ólaf Lárusson.
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
KR varð Íslandsmeistari í 20. sinn
sumarið 1968. Lauk þá miklu sigur-
tímabili, sem hófst 1959, þegar KR-
ingar urðu meistarar með fullu húsi
stiga. KR vann síðan titil á hverju
ári til 1968; var Íslandsmeistari
1961, 1963, 1965 og 1968 og bikar-
meistari 1960, 1961, 1962, 1963,
1964, 1966 og 1967. Leikmanna-
hópurinn 1968 kom saman í liðinni
viku í tilefni Íslandsmeistaratitils-
ins það sumar og rifjaði upp liðna
tíð.
Tímabilið fyrir rúmlega hálfri öld
hófst ekki vel hjá Vesturbæingum,
en þegar Þórólfur Beck var kominn
með keppnisleyfi eftir að hafa snúið
til baka úr atvinnumennsku, Guð-
mundur Pétursson og Ólafur Lár-
usson voru lausir úr Íþrótta-
kennaraskóla Íslands og Ellert B.
Schram byrjaður að æfa á ný fóru
hlutirnar að ganga.
Ellert var formaður Knattspyrnu-
deildar KR 1968 og segist hafa sett
sig í liðið eftir mótlætið í byrjun
móts. „Þetta var hörkulið og árang-
urinn gleymist aldrei,“ segir hann.
Ellert bendir á að miklar breytingar
hafi orðið á liðinu eftir sumarið 1965
og tvö erfið ár hafi fylgt í kjölfarið.
Þá hafi menn komið saman góðu liði
úr sterkum hópi. „Ég var nærri því
búinn að fá Garðar Árnason til þess
að byrja aftur, hann mætti á eina æf-
ingu og hætti svo,“ rifjar Ellert upp.
.Síðasti leikur mótsins 1968 var í
Keflavík og „fór fram í hávaða roki
og úrhellis rigningu,“ eins og fram
kom í Morgunblaðinu. KR nægði
jafntefli á móti botnliðinu, lenti
tvisvar undir en náði að jafna í bæði
skiptin og fagnaði Íslandsmeistara-
titlinum í leikslok. MSparkað »Baksíða
Reykjavík-Akureyri-Selfossi-Bolungarvík-Vestmannaeyjum
www.dyrarikid.is - s:537-5000
VERIÐ VELKOMIN