Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 39
FRÉTTIR 39Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
B-lið KR vann nýkrýnda Íslands-
meistara KR í 5. umferð bikar-
keppninnar í september 1968. Liðið
gerði enn betur og vann Val í
undanúrslitum eftir markalaust
jafntefli Hlíðarendapilta við Ben-
fica í Evrópukeppni meistaraliða,
en tapaði síðan fyrir ÍBV í úrslitum.
Austurríkismaðurinn Walter
Pfeiffer var þjálfari Íslandsmeist-
ara KR 1968. Eftir óvænt tap á móti
B-liðinu í átta liða úrslitum bikar-
keppninnar var hann ekki sáttur,
að sögn Bjarna Felixsonar, sem
stjórnaði B-liðinu. „„Þar fór
bónusinn,“ sagði Pfeiffer við mig
eftir leikinn og vildi ekkert með B-
liðið hafa, þannig að ég stýrði því
áfram á móti Val í undanúrslitum
og ÍBV í úrslitum.“
Ellert B. Schram sleppti bikar-
leiknum til þess að fylgjast með
kosningum í Svíþjóð, en hitti svo
leikmennina á leið í Evrópuleik í
Grikklandi. „Gunni Fel. dró mig af-
síðis og upplýsti mig um bikar-
úrslitin.“ „Hann hundskammaði
mig og spurði hvers konar
aumingjaskapur þetta hefði verið,“
botnar Gunnar.
Þar sem Ellert hafði ekki leikið
bikarleik var hann löglegur með B-
liðinu. „Ég bauð þeim krafta mína
en þeir söguðust ekki þurfa á mér
að halda.“
B-liðið hafði áður slegið út Völs-
ung, Ísfirðinga B-lið Víkings og
Skagamenn. „Við vorum auðvitað
hundfúlir en þetta voru vinir okkar
og auðvitað fyrirgáfum við þeim og
studdum þá í framhaldinu,“ segir
Guðmundur Pétursson. „Við vorum
samt með besta liðið þetta sumar,“
áréttar markvörðurinn.
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsmeistarar KR 1968 um 50 árum síðar Frá vinstri: Erlingur Tómasson, Sigurður Sævar Sigurðsson, Örn Steinsen, Magnús Guðmundsson, Kristinn Jónsson, Sigmundur Sigurðsson, Jón
Ólason, Pétur Kristjánsson, Halldór Björnsson, Hilmar Björnsson, Theodór Guðmundsson, Ársæll Kjartansson, Gunnar Felixson, Guðmundur Pétursson, Björn Th. Árnason, Þorgeir Guðmunds-
son, Ólafur Lárusson, Guðmundur Haraldsson, Ellert B. Schram, Bjarni Felixson liðsstjóri, Þórður Jónsson og Sigurgeir Guðmannsson stjórnarmaður 1968. Eyleifur Hafsteinsson, Jóhann Reynis-
son og Gunnar Gunnarsson áttu ekki heimangengt. Þórólfur Beck, Baldvin Baldvinsson, Hörður Markan, Jón Sigurðsson og Einar Ísfeld eru fallnir frá.
Þar fór
bónusinn!
KR Þorgeir Guðmundsson skoðar
mynd af meisturunum 1968.