Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 42
42 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
WWW. fridaskart.is Fríða skartgripahönnuður fridajewels
Glæsilegir skartgripir
íslensk hönnun og handverk
Keltar og kóngar skartgripalína sem byggir á keltneskri þríblöðungsnælu
og norænni tungunælu úr íslenskum kumlum.
Fæst í silfri og 14k gulli.
Skólavörðustíg 18
Donald Trump hefur viðhaft 8.158
rangar eða villandi fullyrðingar á
þeim tveimur árum sem eru liðin frá
því að hann varð forseti Bandaríkj-
anna, samkvæmt samantekt dag-
blaðsins The Washington Post.
Röngu eða villandi fullyrðingarnar
voru alls rúmlega 6.000 á öðru árinu í
forsetatíð hans og nær þrefalt fleiri
en á fyrsta árinu. Að meðaltali hallaði
hann réttu máli nær 5,9 sinnum á dag
á fyrsta árinu en nær 16,5 sinnum á
dag á öðru árinu.
Fyrstu hundrað dagana í forseta-
embættinu var Trump með 492 til-
hæfulausar eða villandi fullyrðingar,
að sögn The Washington Post. Blaðið
segir að forsetanum hafi tekist að ná
þeim fjölda og rúmlega það á aðeins
þremur fyrstu vikum þessa árs.
Algengast er að Trump halli réttu
máli í málefnum innflytjenda, að sögn
The Washington Post. Blaðið taldi
t.a.m. tólf rangar eða villandi fullyrð-
ingar í ræðu forsetans á laugardaginn
var þegar hann færði rök fyrir áform-
um sínum um að reisa múr við landa-
mærin að Mexíkó. „Í viku hverri
deyja 300 Bandaríkjamenn af völdum
heróíns og 90% þess koma yfir suður-
landamæri okkar,“ sagði forsetinn
meðal annars. Rétt er að 90% af heró-
íninu sem selt er í Bandaríkjunum
koma frá Mexíkó en nær öllu því efni
er smyglað í farartækjum um landa-
mærastöðvar þar sem tollgæsla fer
fram, að sögn bandarísku fíkniefna-
lögreglunnar DEA. Múr Trumps
myndi því hafa lítil áhrif á heróín-
smyglið.
Forsetinn fullyrti einnig að ef múr-
inn yrði reistur myndi glæpum fækka
og fíkniefnasmygl minnka „hratt og
mikið, sumir segja um allt að helm-
ing“. The Washington Post segir
þessa fullyrðingu forsetans „hlægi-
lega“, m.a. vegna þess að glæpatíðnin
sé ekki meiri meðal óskráðra innflytj-
enda en meðal bandarískra ríkisborg-
ara.
Trump var ekki með ósannar yfir-
lýsingar í 82 daga, eða um 11% dag-
anna, og var þá oftast að stunda golf.
bogi@mbl.is
Meðalfylgi forseta Bandaríkjanna
fyrstu tvö árin í valdatíð
þeirra (í %)
Fylgi Trumpsmiðað
við forvera hans
200 400 600
1. dagur
1. dagur
200 400 600
728. dagur
17. jan.
3 dögum
áður en
kjörtímabilið
er hálfnað
39,9
50,2
57,5
46,445,5
68,0
46,0
54,0
36,4
Trump: Sakaður
um kynferðisbrot,
deildi við FBI
Obama: Fjárlaga-
hallinn stórjókst,
áform um að breyta
heilbrigðiskerfinu
mættu andstöðu
Bush: Hernaður
í Afganistan eftir
hryðjuverkin
11. sept. 2001
Clinton:
Áætlun um efna-
hagslega viðreisn
Clinton:
Mikil óánægja
með stefnu hans
44,7
60,9
88,4
36,8
Heimild: projects.fivethirtyeight.com
Donald Trump Bill ClintonGeorgeW. BushBarack Obama
2017- 2001-20092009-2017 1993-2001
90%
80
50
20
30
Trump fer miklu oftar með
ósannandi en á fyrsta árinu
Fjöldi rangra eða villandi fullyrðinga þrefaldaðist
Parkes er dauflegur námubær í
Ástralíu en lifnar við einu sinni á
ári í janúar þegar haldin er fimm
daga hátíð til heiðurs konungi
rokksins, Elvis Presley. Eigendur
veitingastaðar í bænum, hjónin Bob
og Anne Steele, hófu hátíðina árið
1993 og þótt gestir hennar væru þá
aðeins um 200 skemmtu þau sér svo
vel að þau ákváðu að halda hana á
hverju ári. Hún er nú orðin að
stærstu árlegu Elvis-hátíð á suður-
hveli jarðar þótt goðið hafi aldrei
farið til Ástralíu, hvað þá Parkes.
Um 27.000 manns sóttu hátíðina í ár
og áætlað er að tekjurnar af henni
nemi jafnvirði 1,1 milljarðs króna,
að sögn fréttaveitunnar AFP.
„Sumar konurnar komu hingað
með tárin í augunum,“ sagði einn
skipuleggjenda hátíðarinnar, Elvis
Lennox, sem breytti nafni sínu úr
Neville Steven. „Þegar ég spurði
hvað amaði að þeim svöruðu þær:
Hann er ekki dáinn, hann lifir, við
getum séð hann hérna! Ég sagði:
„Já, ég veit það, við reynum að
halda honum eins lifandi og mögu-
legt er. Hann deyr aldrei á meðan
við lifum.“
AFP
Vagg og velta Glöð og vel til höfð börn í anda Presleys dansa á götu í bæn-
um Parkes í Ástralíu á stærstu árlegu Elvis-hátíðinni á suðurhveli jarðar.
Elvis lífgar bæinn
upp á hverju ári
Liam Fox, ráðherra brexit-mála í
stjórn breska Íhaldsflokksins, sagði í
gær að það myndi hafa mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir traust kjósenda
á þinginu ef það frestaði eða hætti við
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu. Fox sagði í viðtali við breska
ríkisútvarpið að sú niðurstaða yrði
verri en útganga án samnings við
ESB.
Philip Hammond, fjármálaráð-
herra Bretlands, hefur sagt frammá-
mönnum í viðskiptalífinu að útganga
án samnings komi ekki til greina.
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur þó ekki viljað útiloka út-
göngu án samnings og sagði á þinginu
gær að seinkun brexit leysti ekki deil-
una.
Útgangan var samþykkt í þjóðarat-
kvæði í júní 2016 og samkvæmt gild-
andi lögum á Bretland að ganga úr
ESB 29. mars. Einn þingmanna
Verkamannaflokksins hefur lagt til að
þingið fresti útgöngunni ef nýr samn-
ingur hefur ekki náðst um hana fyrir
lok febrúar. Talsmaður Verkamanna-
flokksins sagði að þingmenn hans
myndu „mjög líklega“ samþykkja til-
löguna og nokkrir þingmenn Íhalds-
flokksins hafa lýst yfir stuðningi við
hana. Þeir voru andvígir útgöngu úr
ESB fyrir þjóðaratkvæðið.
Fox sagði að þingmenn ættu ekki
að einblína á „afleiðingarnar til
skamms tíma fyrir efnahaginn“ ef
Bretland gengi úr Evrópusamband-
inu án samnings. „Ég tel alvarlegustu
mögulegu niðurstöðuna vera þá að
þingið, sem hefur lofað að virða niður-
stöðu þjóðaratkvæðisins, snúi við
blaðinu og segist ekki ætla að gera
það.“ Ráðherrann bætti við að þing-
menn, sem beittu sér fyrir því að
brexit yrði frestað, vildu í reynd koma
í veg fyrir að Bretland gengi úr ESB.
Þeir þingmenn Íhaldsflokksins, sem
styðja seinkunina, neita þessu og
segjast aðeins vilja koma í veg fyrir
útgöngu án samnings. bogi@mbl.is
Deilt um hvort
fresta eigi brexit
May segir seinkun ekki leysa deiluna
Hvað gerist næst?
Heimild: Neðri deild breska þingsins
Vara-
áætlun
Útganga án
samnings
Þjóðar-
atkvæði
Þing-
kosningar
Hætt við
brexit
Bretland
áfram í ESB
Brexit frestað
Byrjað
upp á nýtt
Samningnum
breytt
29. jan.: Þingið greiðir
atkvæði um næstu skref
ESB segir nei
ESB segir já
Hugsanlegar niðurstöður
15. jan.: Breska þingið hafnaði
brexit-samningi May við ESB