Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 57

Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 ✝ ÞórarinnBrandur Þór- arinsson fæddist í Reykjavík 30. októ- ber 1943. Hann lést á Landspítalanum 8. janúar 2019. Hann var sonur hjónanna Þórarins Brands Helgasonar Pjeturss verkstjóra, f. 10.8. 1908 í Stykkishólmi, d. 8.12. 1999, og Auðar Svövu Ólafsdóttur Pjeturss þernu, f. 24.9. 1914 í Reykjavík, d. 16.1. 1993. Eldri bróðir Brands var Helgi Ólafur læknir, f. 9.2. 1939, d. 18.12. 1914. Börn Helga og fyrri konu hans Hrafnhildar Hreiðarsdóttur eru Pétur Hauk- ur, f. 23.8. 1957, giftur Magda- lenu Láru Gestsdóttur og eiga þau fimm dætur og ellefu barna- þórsson. Þórarinn Brandur var ókvæntur og barnlaus. Brandur ólst upp í foreldra- húsum í Reykjavík, fyrst á Smiðjustíg og svo í Lönguhlíð. Hann lauk námi í Loftskeytaskól- anum 1963, City & Guilds prófi í rafeindavirkjun frá University of London 1967. Á unglingsárum var hann kúskur á Hvanneyri á sumrin, vann á þungavinnuvélum hjá Rafmagnsveitu Reykjarvíkur, ýtustjóri hjá Véltækni o.fl. Hann var loftskeytamaður á togara og starfaði hjá Landsíma Íslands við radíóviðgerðir. Árið 1972 hóf hann störf hjá flugfélaginu Cargolux í Lúxemborg í viðhaldi á rafeindabúnaði flugvéla og síð- ar hjá Icelandair árið 1982 fyrst á Reykjarvíkurflugvelli og síðar í Keflavík. Um tíma rak hann eigið fyrirtæki, GT Radíó, á Reykjavík- urflugvelli ásamt félaga sínum Gunnari Guðlaugssyni. Hann vann einnig í lausamennsku hjá Inga vini sínum í rafeindafyrir- tækinu Rökrás. Útför Þórarins fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 24. janúar 2019, klukkan 15. börn, og Helena, f. 24.10. 1969, gift Þorláki Ingjaldssyni og eiga þau þrjú börn og þrjú barna- börn. Börn Helga og síðari konu hans Sigríðar Rósu Gunnarsdóttur eru Helga Björk, f. 17.6. 1978 gift Marteini Hammer og eiga þau tvo syni, Gunn- ar Þór f. 17.2. 1981, giftur Jenny Ellingssæter. Yngri bróðir Brands er Stefán Páll, f. 10.9. 1952, giftur Mariu Manuelu Fernandes e Silva. Börn Stefáns og fyrri konu hans Kristrúnar Þórðardóttur eru Sæunn, f. 4.8. 1978, gift Kjartani Haraldssyni og eiga þau tvö börn, og Svava Lóa, f. 23.1. 1983, sambýlismaður hennar er Gunnar Reynir Val- Ein af fyrstu bernskuminning- um mínum um Brand bróður er kveðjustund á BSÍ-planinu við Lækjartorg. Brandur stóð fyrir framan rútuna brosandi út að eyrum af tilhlökkun um að kom- ast í sumarstarfið sem kúskur á Hvanneyri, þá 14 ára gamall. Snemma beygist krókurinn segir máltækið því útþrá og ferðalög vegna vinnu um heim allan áttu eftir að einkenna líf Brands árum saman. Um haustið var ég fluttur inn í herbergið hans á háaloftinu í Lönguhlíðinni. Lítið herbergi undir súð uppi í þaki. Þar var ævintýraheimur tækni og tækja Brands. Hann var öllum stundum að smíða ótrúlega falleg og nákvæm flugmódel úr balsavið, mála þau og merkja eins og vera bar, setja saman mekkanóvélar og radíó- tæki milli þess sem hann stund- aði Atlas-æfingar af kappi. Hann svaf ætíð ber að ofan og svo skyldi ég líka gera. Já, engan aumingjaskap, heilbrigð sál í hraustum líkama. Ég man eftir því hve móðir okkar var brugðið er hún sá örverpið mig hírast í rúminu í köldu herberginu, beran að ofan. Allt lék í höndum Brands. Hann grúskaði í tækniheimum og skapaði dýrgripi og ævintýri á loftinu. Hann gat líka gert við alla hluti og var mjög liðtækur í bíla- viðgerðum sem hann lærði af föð- ur okkar. En allt þetta var aðeins undirbúningur að lífinu framund- an. Brandur fór í Loftskeytaskól- ann og útskrifaðist þaðan 1963. Eftir eitt sumar á síðutogaranum Gylfa BA sem loftskeytamaður hélt hann til Englands í nám í raf- eindavirkjun í London Univers- ity. Eftir að hann útskrifaðist 1967 hóf hann störf hjá Lands- síma Íslands sem tæknifulltrúi við radíóviðgerðir. Árið 1972 bauð Garðar Jóns- son, tæknistjóri Cargolux-flug- félagsins í Lúxemborg, honum starf í radíódeild félagsins. Þar starfaði hann í tíu ár. Á þeim ár- um ferðaðist Brandur eða dvaldi langdvölum víða í tengslum við starf sitt. Cargolux setti upp starfsstöðvar vegna eigin verk- efna og viðhalds á flugvélum fyrir önnur flugfélög, einkum í Asíu og Afríku. Brandur starfaði við mörg þessara verkefna. Hann þótti góður í sínu starfi. Það sagði Garðar mér en með honum og Brandi var ævilöng vinátta. Eftir dvölina í Lúxemborg kom Brand- ur heim og starfaði hjá Flugleið- um til starfsloka. Hann eignaðist marga góða vini á þessum ferli sem staðið hafa þétt með honum í veikindum hans, Garðar, Ingi, Palli og fleiri. Það er ekki ónýtt að eiga vini eins og þá. Lækkar lífsdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir) Brandur var dagfarsprúður maður, ljúfur og brosmildur. Hann var hörkutól til vinnu og hikaði ekki við að takast á við verkefnin. Hann var skírður í höfuðið á langafa okkar Brandi Bjarnasyni, útvegsbónda og odd- vita á Hellissandi, en pabbi taldi okkur bræður líkjast honum í skaphöfn og vaxtarlagi. Á stund- um sem þessari áttum við okkur á því hve hratt tíminn líður. Lífið hnígur fram sem óstöðvandi stór- fljót. Við fljótum svo með á vit sí- fellt nýrra áskorana. Það kveða við klukkur í fjarska, það kalla mig dulin völd. Nú heyri ég hljómana líða, ég hringist til Guðs í kvöld. (Stefán frá Hvítadal) Við minnumst Brands bróður með þakklæti fyrir allar góðu samverustundirnar og biðjum al- góðan Guð að lýsa honum af sínu eilífa ljósi. Far í friði, bróðir, Guð varðveiti þig og blessi. Stefán Þórarinsson, Manuela Silva. Elskulegur föðurbróðir okkar, Þórarinn Brandur Þórarinsson, er fallinn frá. Brandur var góður maður sem gott var að hafa í lífi sínu. Í raun var hann alltaf í lífi okkar systra. Hann var mikið á heimili ömmu okkar og afa þegar við vorum litlar og bjó þar um tíma eftir að hann sneri heim frá Lúxemborg þar sem hann dvaldi um árabil við störf hjá Cargolux. Við fjölskyldan vörðum alltaf jól- unum með ömmu og afa og þegar við vorum litlar lagði Brandur sig allan fram við að gleðja okkur systur með vel völdum og rausnarlegum gjöfum. Jólunum hefur hann varið áfram með okk- ur systrum og fjölskyldum og síð- ustu árin hefur hann haldið í þessa hefð að gefa litlu frænkum sínum, Kristrúnu Eddu og Auði Emblu, stærstu gjafirnar, okkur öllum til ómældrar gleði. Brandur var afar fjölfróður og vel að sér um ótrúlegustu mál- efni. Hann hafði áhuga á svo mörgu, las mikið, horfði á heim- ildarmyndir og notaði tæknina sér til gagns síðustu árin. Ekki síður hafði hann gaman af því að spjalla við fólk og alltaf var gam- an að ræða við hann um hin ýmsu mál því maður kom aldrei að tóm- um kofunum sama hvar drepið var niður. Brandur bjó einn alla tíð og er hann fór á eftirlaun eftir áratugastarf hjá Flugleiðum og svo hjá Icelandair, hafði hann all- an þann tíma sem hann þurfti til að sinna sínum áhugamálum. Hvort sem það var Formúlan eða seinni heimsstyrjöldin, flugið eða amerísku bílarnir. Hann hafði nóg fyrir stafni. Það var Brandi mikið áfall að greinast með krabbamein. Hann stærði sig oft af því að hafa ekki orðið veikur frá barnsaldri. Hann var svo hraustur að þegar það varð sem kaldast á Fróni hneppti hann efstu tölunni á stutt- ermaskyrtunni. Í raun forðaðist Brandur lækna og heilbrigðis- stofnanir. Þegar hann loksins leitaði sér lækninga við þeim meinum sem hrjáðu hann voru þau langt gengin. Brandur tókst á við veikindi sín af ótrúlegri ró og raunsæi. Í raun fram í lokin var hann sjálfum sér líkur, léttur, skýr, raunsær og kvartaði aldrei. Það er sárt að segja en með veikindum Brands dýpkaði sam- band okkar. Það var okkur mikil ánægja að hitta og kynnast betur traustum vinum hans og okkur mikil huggun í gegnum veikindin að finna hve góða vini hann átti sem reyndust honum vel alla tíð og ekki síst þegar á reyndi. Brandur varð einnig enn per- sónulegri í samtölum okkar og lagði sig enn meira fram við að fylgjast með lífi okkar og fjöl- skyldna. Hann sýndi okkur ætíð hlýju og áhuga en þegar leið að lokum urðu samskiptin og sam- tölin hreinskiptari og einlægari. Brandur gaf betri innsýn inn í líf sitt, æsku sína, sigra og ósigra. Blessuð sé minning Brands frænda okkar sem við munum sakna og ætíð minnast með mikl- um hlýhug. Sæunn Stefánsdóttir, Svava Lóa Stefánsdóttir. Þórarinn Brandur Þórarins- son, Tóti, er farinn. Mikill er söknuðurinn þegar þessi góði og hægláti maður hverfur. Hann er kannski búinn að hitta afa sinn þar sem þeir eru núna, afi hefur sennilega vitað að hann væri á leiðinni og tekið vel á móti honum. Það var alltaf jafn ljúft að taka á móti Tóta þegar hann kom til okkar á Byggðarendann í há- deginu og svo sátum við saman fram á miðjan dag. Alltaf var eitt- hvað fróðlegt og skemmtilegt að ræða um, svo sem stjörnurnar og himingeiminn endalausa sem enginn veit hvar byrjar eða endar í óravíddum alheimsins. Okkur fannst ólíklegt að ekki væri eitt- hvert líf þarna úti, jörðin okkar gæti ekki verið svona einstök. Svo vorum við hugsi yfir allri menguninni og hlýnun jarðar, sem allir virðast vita hvernig á að bjarga. Mikið er talað um að við mennirnir séum að eyðileggja jörðina. Hvar voru bílarnir, flug- vélarnar og spúandi verksmiðjur um aldamótin 1000 þegar okkar landnámsmenn voru að byggja hús og skip úr stóru trjánum sem hér voru? Þá skruppu þeir til Grænlands og Ameríku. Enginn kvartaði þá um lofthita sem var á okkar hnattsvæði. Þá var engin mengun frá bílum, flugvélum eða öðru. Hefur jörðin okkar ekki alltaf verið að breytast og menn- irnir með? Um þetta og margt fleira áhugavert vorum við Tóti oft að ræða þegar hann leit inn til okkar, alltaf jafn hress og kátur. Þess vegna var hann svolítið hissa þegar hann veiktist fyrir ekki svo löngu og þurfti að fara á spítala. Hann hafði aldrei lagst inn á sjúkrahús, var hraustur allt sitt líf þótt hann hefði ekki alltaf farið vel með sig. Þessi ljúfi og trausti drengur tók því með jafnaðargeði að veikjast og láta heilbrigðisstarfs- fólk dekra við sig. Ekki var annað að gera en taka því með æðru- leysi og sjá hvað yrði. Endalokin komu svo skyndi- lega að ég held að hann hafi verið jafn hissa og við hin, sem komum til hans áður en hann fór. Ég hugsa nú hvað var gott og ánægjulegt að fá að kynnast og vera samferða þessum trausta og heiðarlega manni. Ég þakka Tóta fyrir allar ánægjustundir bæði þegar við unnum saman hjá Cargolux í Lúxemborg og eftir að við flutt- um heim. Við Guðrún munum sakna heimsókna hans, en hann kom oft óvænt við hjá okkur. Við sendum fjölskyldu Tóta og öðrum ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur. Garðar Ingi Jónsson. Það var erfitt er þú kvaddir, við hjónin sátum hjá þér 8. jan- úar. En ég verð ætíð þakklátur að hafa verið hjá þér þessa síðustu stund. Það verðu tómlegt eftir rúm- lega 50 ára vináttu að geta ekki hitt þig og spjallað. Tóti og ég unnum saman er við vorum ungir menn á Radíóverkstæði Lands- símans. Tóti var einstaklega hjálpfús, alltaf boðinn og búinn ef eitthvað var að og urðum við fljótt góðir vinir. Þegar honum bauðst að vinna í CargoLux flutt- ist hann til Lúxemborgar ásamt fleirum. Þar var hann í tíu ár er hann fluttist aftur heim. Þá var sambandið tekið upp á ný. Þá fór hann að koma og sitja hjá mér í vinnunni flestalla laugardags- morgna, og síðar meir heima hjá mér, þá var mikið spjallað, aðal- lega um flugvélar og eins voru bílarnir hans honum kærir. Ekki var nú plássið mikið til að gera við bílana, aðeins var hægt að opna aðrar dyrnar í hálfa gátt. Tóti átti líka gott bókasafn sem var honum kært, hann las mikið og var mjög fróður um allt mögu- legt. Ekki ferðaðist hann mikið innanlands, hann vildi helst vera heima. Eitt skipti gat ég komið honum með mér upp í Borgar- fjörð, við þurftum að koma við í veiðiskála að gera við loftnet. Hitti hann þá Sigurð Helgason eldri hjá Icelandair og forstjóra Boeing og spjölluðu þeir við hann í dágóða stund. Um þetta talaði Tóti oft, hvað hann hefði haft gaman af að spjalla við þá, því hann vann þá sjálfur hjá Ice- landair. Við fórum tvisvar sinnum sam- an til útlanda, fyrri ferðina til Balingen í Þýskalandi og svo í þeirri seinni var farið akandi í gegnum París til að fara á flug- sýninguna á De Gaulle-flugvelli. Það var þegar geimskutlan var sýnd, þá naustu þín vel. Það var alveg ótrúlegt hvað okkur gekk vel að rata í París og við fengum ágætishótel. En nokkrum árum síðar átti Concorde-flugvélin eft- ir að hrapa á þetta hótel. En þriðja ferðin var aldrei far- in, en hún átti að vera til Norm- andí. Við vorum oft búnir að ræða um það að fara. Mikið söknuðum við þín á síð- asta jóladagskvöld, en þá varst þú veikur, en þú hafðir í mörg ár komið og borðað með okkur. Kæri vinur, þakka þér fyrir alla þín tryggð og vináttu í gegn- um árin. Við vottum fjölskyldu þinni samúð okkar. Jóhannes Ingi Friðþjófsson. Sumir samferðamanna okkar skjóta upp kollinum af og til, frá æsku og fram á efri ár. Þess á milli veit maður ekkert af þeim. Þannig var því farið með Þórarin, Tóta vin minn og vinnufélaga, síðustu 30 árin. Við kynntumst mjög ungir, fyrir u.þ.b. 70 árum. Á 5. áratugnum reisti fjölskylda mín lítið sumarhús í landi Lög- bergs og þá vildi svo til að for- eldrar Tóta byggðu sér bústað á sama bletti og eins og sjá má af ljósmyndum lékum við Tóti okk- ur saman sem litlir strákar með öðrum krökkum á sama reki. Svo skildi leiðir – við vorum aldrei saman í skóla og áttum engin samskipti um árabil. Það er ekki fyrr en 1981, þegar við erum báðir komnir undir fer- tugt, að við erum ráðnir í tækni- deild Flugleiða og þar unnum við saman næstu 30 árin eða allt til starfsloka. Tóti tróð fólki ekki um tær og heimsótti ekki marga nema nauð- syn bæri til. Það var því ánægju- legt að hann skyldi taka það upp hjá sjálfum sér eftir starfslok að kíkja í heimsókn af og til, alltaf þegar hann fór í klippingu og stundum þess á milli. Þau Þórunn og Tóti deildu líka sameiginlegri reynslu úr æsku - þau höfðu verið saman í Barnamúsíkskólanum og lært þar á blokkflautu og gígju. Svona gengur þetta stundum til. Nú mun dyrabjallan glymja sjaldnar fyrir hádegi á virkum dögum á Brekkugötunni, löng símtöl þar sem allt milli himins og jarðar er rætt, en þó allra helst eitthvað tengt flugi og flug- vélum, heyra líka sögunni til. Ekki fleiri heimsóknir í Garða- bæinn þar sem boðið var upp á kók og prins. Það var nokkuð ljóst í síðustu heimsókn Tóta að mjög var af honum dregið. Og nú er hann all- ur, blessaður. Ég þakka honum vinskapinn á liðnum áratugum; við Þórunn þökkum honum sam- fylgdina síðustu árin og sendum fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Pálmar Ögmundsson. Þórarinn Brandur Þórarinsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÓLAFSSON vélstjóri, Strikinu 2, Garðabæ, sem lést 12. janúar á Hrafnistu í Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju föstudaginn 25. janúar klukkan 15. Ólöf Árnadóttir Ólafur Þorvaldsson Erla Kjartansdóttir Steinunn Þorvaldsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR SÆVAR ÓSKARSSON íþróttakennari frá Siglufirði, sem lést á Landspítalanum 17. janúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 25. janúar klukkan 13. Ómar Sævar Harðarson Ingibjörg Kolbeins Harpa Sjöfn Harðardóttir Anna Sigurborg Harðardóttir Óskar Sigurður Harðarson Arndís K. Kristleifsdóttir Jón Hugi Svavar Harðarson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA GUNNARSDÓTTIR, sambýlinu Roðasölum 1, Kópavogi, lést föstudaginn 18. janúar. Sálumessa verður í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti föstudaginn 1. febrúar klukkan 13. Baldur Hermannsson Jóna I. Guðmundsdóttir Helgi Torfason Ella B. Bjarnarson Anna G. Torfadóttir Gunnar J. Straumland Flosi Þorgeirsson ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.