Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 61
leikið í Fávitanum, West Side
Story, Þreki og tárum, Hamingju-
ráninu, Leitt hún skyldi vera
skækja, Þremur systrum, Hamlet,
Listaverkinu, Tveim tvöföldum,
Fedru, Draumi á Jónsmessunótt,
Horfðu reiður um öxl, Rauða
spjaldinu, Veislunni, Með fulla vasa
af grjóti, Ríkarði þriðja, Sorgin
klæðir Elektru, Öxinni og jörðinni,
Dínamíti, Hjónabandsglæpum og
Ívanov.
Hann lék í söngleikjunum Hárinu
og Rocky Horror hjá Flugfélaginu
Lofti og lék í Beðið eftir Godot,
Amadeusi, Milljarðamærin snýr
aftur, Faust, Dúfunum, Ofviðrinu
og Strýhærða Pétri í Borgarleik-
húsinu.
Hilmir lék meðal annars í kvik-
myndunum Agnesi, 101 Reykjavík,
Englum alheimsins, Myrkrahöfð-
ingjanum, Reykjavík-Guesthouse,
Hafinu, Mávahlátri og Brúðgum-
anum og sjónvarpsmyndinni Allir
litir hafsins eru kaldir og var einn af
Fóstbræðrum í samnefndum sjón-
varpsþáttum. Hann lék í þýsku
kvikmyndunum Blueprint og
Erbsen auf halb sechs og bresku
myndinni Guy-x.
Hilmir Snær leikstýrði Pollock?,
Spamalot, Gullna hliðinu og Bönd-
unum á milli okkar í Þjóðleikhúsinu.
Hann leikstýrði Krákuhöllinni hjá
Nemendaleikhúsi LHÍ, Töfraflaut-
unni í Íslensku óperunni, Hinum
fullkomna manni á vegum Drauma-
smiðjunnar og Abigail heldur partí,
Degi vonar, Fjölskyldunni og Kirsu-
berjagarðinum í Borgarleikhúsinu.
Hilmir Snær hefur hlotið fjöl-
margar tilnefningar til Grímuverð-
launanna og hlaut verðlaunin fyrir
leik sinn í Veislunni, Ég er mín eig-
in kona, Hver er hræddur við Virg-
iníu Woolf? og Eldraunina, og leik-
stjórn sína á Fjölskyldunni. Hann
fékk Menningarverðlaun DV í leik-
list fyrir túlkun sína á titilhlutverk-
inu í Hamlet. Hilmir hlaut Eddu-
verðlaunin fyrir leik sinn í Máva-
hlátri og Brúðgumann. Hann hlaut
Stefaníustjakann fyrir störf sín að
leiklist árið 2000.
Áhugamál Hilmis eru hesta-
mennska og veiði, bæði laxveiði og
skotveiði, og hefur verið leiðsögu-
maður við Kjarrá og Þverá í
Borgarfirði.
Fjölskylda
Eiginkona Hilmis er Bryndís
Jónsdóttir, f. 14. júní 1968, fram-
kvæmdastýra Kramhússins og er að
læra lögreglufræði. Foreldrar:
Hjónin Jón Elliði Þorsteinsson, f.
3.8. 1928, d. 2.5. 2003, fulltrúi á
Keflavíkurflugvelli, og Erla Fanney
Sigurbergsdóttir, f. 11.8. 1933, fyrr-
verandi kaupmaður í Keflavík.
Börn: Viktoría Ísold Hilmisdóttir,
f. 8.12. 1994, vinnur í kvenfataversl-
un, og Maríanna Hilmisdóttir, f.
20.6. 2009.
Systkini: Ásdís Mjöll Guðnadótt-
ir, f. 29.10. 1972, d. 28.1. 2017, þýð-
andi í Kaupmannahöfn, Bergdís
Björt Guðnadóttir, f. 12.7. 1974,
keramiker í Hafnarfirði, og Kristín
Berta Guðnadóttir, f. 17.9. 1978,
félagsráðgjafi í Hafnarfirði.
Úr frændgarði Hilmis Snæs Guðnasonar
Hilmir Snær
Guðnason
Lilja Friðbertsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Ólafur Kristjánsson
verkamaður á Patreksfirði
Kristín Berta Ólafsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Lilja Bergsteinsdóttir
prentsmiður í Rvík
Kristján Stefán Sigurðsson yfirlæknir í Keflavík
Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur í Rvík
Bergsteinn Snæbjörnson
verslunarmaður á Patreksfirði
Margrét Jóna Guðbjartsdóttir
húsfr. á Lambeyri
Snæbjörn Gíslason
bóndi á Lambeyri í Tálknafirði
ísli Snæbjörnsson
útgerðarstjóri á
Patreksfirði
Gigríður Gísladóttir
hóteleigandi á
Patreksfirði
SGísli Magnason
stjórnandi
Léttsveitarinnar
igurður Bergsteinsson
jómaður á Patreksfirði
S
s
Bergsteinn
Sigurðsson
sjónvarps- og
útvarpsmaður
Jakobína Sigurðardóttir rithöf. í Garði í Mývatnssveit
Guðmundur Jóhann Sigurðsson skipasmiður í Keflavík
Pétur
Tyrfings-
son sálfr.
og blúsari
Guðmundur
Pétursson
gítarleikari
Þórarinn Tyrfingsson
yfirlæknir hjá SÁÁ
Lára
Þórðardóttir
húsfr. í Rvík
Þórður
Jónsson
b. á Högna-
stöðum í
Þverárhlíð
Leifur Grímsson skipasmiður í Rvík
Dýrleif Jónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Grímur Kristinn Árnason
trésmiður í Rvík
Kolbeinn Grímsson
offsetljósmyndari og kennari í Rvík
Ásdís Sigurðardóttir
húsfr. í Hólabrekku í Laugardal, síðar í Rvík
Sigurður Sigurðsson
b. í Hælavík, síðar
símstöðvarstj. á Hesteyri
Friðrik Guðni skáld ngibjörg Guðnadóttir húsfr.IÞórleifur J. Bjarnasonnámsstj. og rithöf.
Björgvin Guðmundsson
rafmagnsverkfræðingur
Sigmundur Ragúel Guðnason b.,
skáld og vitavörður í Hælavík
Petólína
Sigmundsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Stefanía Halldóra Guðnadóttir
húsfr. í Hælavík, síðar á Hesteyri
Guðni Kolbeinsson
kennari og þýðandi í Rvík
ÍSLENDINGAR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
ÚTSALA!
ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
40-60%
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
95 ára
Guðmundur E. Pálsson
90 ára
Magnús Guðjónsson
Sigrún Kristjánsdóttir
85 ára
Birgir Þórðarson
Bjarndís Jónsdóttir
Guðlaugur Helgason
Jón Jóns Eiríksson
80 ára
Árni Sverrir Jóhannsson
Elín Norðdahl
Pálína Sædís Dúadóttir
Siggeir Siggeirsson
Smári Þrastar Sigurðsson
Sólborg Dóra Eðvaldsdóttir
75 ára
Guðmundur Einar Gíslason
Guðrún Sigtryggsdóttir
Illugi Þórir Óskarsson
Jónbjörn Már Sigurðsson
Ragnheiður Olga Loftsd
Vigfús Lúðvík Guðmundss.
Þórunn Elísabet Green
70 ára
Alexander G. Björnsson
Halldór Björnsson
Jensína María Guðjónsd.
Jón Hermann Karlsson
Kolbrún Una Einarsdóttir
Kristinn Ómar Sveinsson
Magnús Einarsson
Stella Gróa Óskarsdóttir
Súsanna Hlíðdal Magnúsd.
Svandís Guðmundsdóttir
Vilhelmína E. Johnsen
60 ára
Auður Björk Ásmundsdóttir
Bogi Þór Arason
Eymundur Ingimundarson
Grétar Guðnason
Hrönn Björnsdóttir
Jóhanna Ragnarsdóttir
Jóhann Kári Hjálmarsson
Jón Hjaltason
Kolbrún Karlsdóttir
Reynir Arngrímsson
Selma Þorvaldsdóttir
Sigurður Halldórsson
Sigurjón Ársælsson
50 ára
Anton Dysko
Eugeniusz E. Prokopek
Grzegorz Stachowski
Guðmundur Óli Jónsson
Halla Þorsteinsdóttir
Halldór Geir Lúðvíksson
Hilmir Snær Guðnason
Íris Arna Smáradóttir
Karl Guðmundsson
Rasa Satrauskiene
Stanislaw Pawel Kostrzewa
Svava Hrund Guðjónsdóttir
40 ára
Agnieszka T. Myslowska
Andrzej Wardziukiewicz
Guðrún Erla Jónsdóttir
Gunnar Ingi Jóhannsson
Inga Birna Ólafsdóttir
Linda Björk Ólafsdóttir
Páll Marinó Jónsson
Sandra Brá Jóhannsdóttir
Sigríður Didda Aradóttir
Sólveig Unnur Ragnarsd.
Sveinn Lárus Sveinsson
30 ára
Alex James Guðjónsson
Björk Bragadóttir
Heiðrún Erla Hjartardóttir
Hrund Einarsdóttir
Jóhanna Björk Pálsdóttir
Jóhann Már Þorsteinsson
Katrín Ýr Kristensdóttir
Maciej Majewski
Magnús Jón Árnason
Sigurður Hannes Sigurðss.
Til hamingju með daginn
40 ára Sandra er frá
Breiðabólsstað á Síðu, býr
þar og er sveitarstjóri í
Skaftárhreppi.
Maki: Einar Bárðarson, f.
1981, verkstjóri.
Börn: Jóhanna Ellen, f.
2006 og Tómas Hrafn, f.
2010.
Foreldrar: Jóhann Þorleifs-
son, f. 1953, d. 2010, bóndi
og sjúkraflutningam., og
Sigurjóna Matthíasdóttir, f.
1955, bankastarfsmaður á
Kirkjubæjarklaustri.
Sandra Brá
Jóhannsdóttir
30 ára Björk er Reykvík-
ingur en býr í Mosfellsbæ.
Hún er hjúkrunarfr. á
Heilsugæslunni Höfða.
Maki: Helgi Þór Guð-
jónsson, f. 1987, verkfræð-
ingur hjá Icelandair.
Börn: Kári Kristinn, f.
2015, og Embla Rún, f.
2018.
Foreldrar: Jóhann Bragi
Hermannsson, f. 1941, d,
2005, vann hjá ISAL, og
Guðrún Ingadóttir, f. 1952,
hjúkrunarfr., bús. í Rvík.
Björk
Bragadóttir
40 ára Guðrún Erla er
Vesturbæingur en býr í
Kópavogi. Hún er stefnu-
stjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur og stjórnar-
formaður Veitna ohf.
Börn: Hilmar Sær, f.
2006, og Hlynur Hugi, f.
2008.
Foreldrar:: Jón Sigurðar-
son, f. 1952, efnaverk-
fræðingur, og Sigríður
Svana Pétursdóttir, f.
1952, sagnfræðingur, bús.
í Rvík.
Guðrún Erla
Jónsdóttir
Huong Thi Thu Dang hefur varið
doktorsritgerð sína í matvælafræði við
matvæla- og næringarfræðideild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið:
Aukning gæða frosinna fiskafurða með
því að bæta vinnslu og geymslu (En-
hancing the quality of frozen fish pro-
ducts through improved processing and
storage). Umsjónarkennarar og leið-
beinendur voru dr. Sigurjón Arason,
prófessor við matvæla- og næring-
arfræðideild HÍ, og yfirverkfræðingur
hjá Matís og dr. María Guðjónsdóttir,
prófessor við matvæla- og næringar-
fræðideild HÍ.
Markmið rannsóknarinnar var að öðl-
ast dýpri skilning á eðlis- og efna-
fræðilegum breytingum á flökum
þriggja fisktegunda meðan á langtíma
geymslu í frosti stendur, og kanna
hvaða atriði hafa áhrif á gæði þeirra.
Gullkarfi (Sebastes marinus) var
veiddur suðvestur af Íslandi í júní og
nóvember 2015, flakaður og frystur á 4.
og 9. degi eftir veiði, og geymdur við
-25 °C í allt að 20 mánuði. Rannsökuð
voru áhrif árstíðabundinna breytinga og
áhrif ferskleika við vinnslu á stöðug-
leika frosinna karfaflaka. Atlantshafs-
síld (Clupea harengus) var veidd vestur
af Íslandi í nóvember 2014 og unnin
annars vegar fyrir dauðastirðnun og
hins vegar eftir dauðastirðnun. Rann-
sökuð voru áhrif þessara breyta á stöð-
ugleika síldar-
afurða í frysti-
geymslu við -25 °C
í 5 mánuði. Panga-
sus (Pangasius hy-
pophthalmus) úr
fiskeldi var flak-
aður í Víetnam og
rannsökuð áhrif
aukefna (blanda af
natríumfosfati, natríumklóríði og sí-
trónusýru) og umbúða á stöðugleika af-
urða voru rannsökuð við -18,6 ± 0,2 °C í
allt að 12 mánuði. Rannsóknin sýndi að
það er mikilvægt fyrir sjávarútveginn að
tryggja samræmda og rétta hitastýr-
ingu þegar afurðir eru geymdar í frosti.
Karfa, sem veiddur er í nóvember, utan
hrygningartímabilsins, þarf að með-
höndla með varkárni til að tryggja rétt
gæði frosinna afurða. Frágangur og
vinnsla fisks skal gerast eins fljótt og
auðið er eftir veiði. Hins vegar, ef rétt er
staðið að meðhöndlun fisks, þá má
lengja veiðiferð og tíma áður en vinnsla
hefst. Notkun aukefna við vinnslu fros-
inna pangasíusflaka og pökkun í loft-
tæmdar umbúðir tryggir gæði þeirra.
Með því að nota roðflettivél sem fjar-
lægir dökka vöðvann (roðskurður) er
einnig hægt að lengja geymsluþol fros-
inna fiskflaka umtalsvert. Hins vegar
má vinna olíu úr dökkvöðvanum til að
tryggja skilvirka nýtingu hráefnisins.
Huong Thi Thu Dang
Huong Thi Thu Dang lauk BS og MS-gráðu við Háskólann í Nha Trang í Víetnam
og starfar þar núna við rannsóknir.
Doktor