Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 67
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Enski grínistinn Jimmy Carr snýr
aftur til Íslands og treður upp í Hofi á
laugardaginn, 26. janúar, og í Há-
skólabíói í tvígang degi síðar, kl. 19.30
og 22.30. Carr mun þar flytja nýjustu
uppistandssýningu sína, The Best Of,
Ultimate, Gold, Greatest Hits. Carr
er einn þekktasti og vinsælasti grín-
isti Bretlands og margverðlaunaður
sem slíkur. Hann er einnig vinsæll
sjónvarpsmaður, hefur tekið þátt í og
stýrt sjónvarpsþáttum til fjölda ára í
heimalandinu og þá m.a. í breska
ríkissjónvarpinu.
Carr er þessa dagana á flakki um
heiminn með sýninguna og Ísland er
einn viðkomustaður af fjölmörgum á
því ferðalagi. Sýningin samanstendur
af bestu bröndurunum á ferli Carr,
ferli sem spannar um tuttugu ár, í
bland við nýja. Þeir sem farið hafa á
uppistand með Carr eða séð hann í
ham í sjónvarpi eða á netinu vita að
þeir eiga von á góðu gríni og það oftar
en ekki af svartara taginu. Ekki fyrir
viðkvæma, eins og stundum er sagt.
Afþakkaði hákarl og kinnar
Carr er einkar vingjarnlegur við
blaðamann sem slær á þráðinn til
hans kl. 9 að morgni. Grínistinn segist
hafa nægan tíma. „Þú mátt spyrja
mig að hverju sem er, hvað viltu
vita?“ spyr Carr. Blaðamaður tekur
grínistann á orðinu og spyr hvað hann
hafi fengið sér í morgunverð. „Ég
byrjaði á sellerísafa sem einhver
sagði mér að myndi gera mér gott og
fékk mér svo grænan safa á eftir. Ég
drekk safa á morgnana,“ svarar Carr.
– Ertu á safakúr?
„Nei, ég fæ mér örugglega ham-
borgara í hádegismat þannig að það
er ekkert vit í þessu! Ég stunda
svakalega heilsusamlegt líferni þang-
að til ég geri það ekki,“ svarar Carr af
sinni alkunnu hnyttni. Hann segist
vera á flakki milli landa og hafa til-
hneigingu til að borða einfaldlega það
sem er í boði hverju sinni. „Síðast
þegar ég var á Íslandi reyndi fólk að
troða ofan í mig úldnum hákarli og
kinnum af einhvers konar fiski. Ég
meina það, Ísland, ég er nú ekki al-
gjör fábjáni!“ segir Carr.
– En var þér boðið að smakka svið-
ið andlitið á kind?
„Ég er ekki grænmetisæta en mér
finnst fullmikið að borða andlitið á
einhverju dýri,“ segir Carr og fær ör-
stuttan fyrirlestur um fullnýtingu
sauðfjár á Íslandi. „Við notum líka
alla kindina en þetta ógeðslega notum
við í dálítið sem við köllum pylsur. Þá
þarf maður ekkert að hugsa um þetta,
það er búið að hakka allt saman þann-
ig að maður sér það ekki. Bein, fætur
og rassgöt.“
Kannast við hann af skjánum
Carr ber Íslendingum vel söguna,
þrátt fyrir hákarlinn og allan óþverr-
ann sem reynt hefur verið að koma
ofan í hann, segir þjóðina einkar vin-
gjarnlega. Hún hafi tekið honum opn-
um örmum í þau skipti sem hann hef-
ur komið hingað með sín gamanmál.
„Ég hef átt góðar stundir á Íslandi,
brugðið mér í bæinn á kvöldin og
fengið mér drykk,“ segir hann.
– Kannaðist fólk við þig í þessum
bæjarferðum?
„Það verður æ algengara eftir því
sem ég kem oftar. Með tilkomu Net-
flix og YouTube hefur grínistum tek-
ist að ná til miklu stærri hóps, grínið
er orðið hnattrænt og fólk ræður vþí
núna hvað það horfir á. Það kannast
ef til vill við mig úr þáttum á borð við
8 Out of 10 Cats, Countdown eða The
Big Fat Quiz of the Year,“ svarar
Carr.
– Eldri lesendur blaðsins kannast
mögulega ekki við þig þannig að ég
spyr einfaldlega, fyrir þá: Hver er
Jimmy Carr?
„Ég er breskur grínisti og í ykkar
augum er ég sennilega mikill dóni.
En þetta eru bara brandarar og mér
finnst svo skrítið þegar fólk segir að
eitthvað sé svo svakalega dónalegt að
það hljóti að vera bara fyrir ungt fólk
því sumt gamalt fólk er líka með
sóðalegt skopskyn, það er ekki óal-
gengt. Við eigum það öll til að vera
með fyrirfram gefnar hugmyndir um
náungann og ég man eftir hjónum á
níræðisaldri sem komu á uppistand
með mér og ég hugsaði með mér að
þau myndu alls ekki kunna að meta
grínið. En þau nutu þess sko heldur
betur!“ segir Carr og bætir við að
þeir sem hafi lifað af heila heims-
styrjöld hljóti nú að þola nokkra
brandara. „En ég er sumsé breskur
grínisti sem ferðast um heiminn, seg-
ir brandara og stýrir sjónvarpsþátt-
um. Þetta er ekki alvöru starf en mér
gengur þó ágætlega í því.“
Vann hjá Shell
– Hefurðu verið með uppistand frá
unga aldri?
„Nei, ég byrjaði á því þegar ég var
26 ára. Líf mitt var heldur hversdags-
legt fram að því, ég kláraði háskóla-
nám og fór svo að vinna fyrir stórt
olíufyrirtæki, Shell. Um miðjan þrí-
tugsaldurinn fór ég að velta fyrir mér
hvern fjandann ég væri eiginlega að
gera. Mig langaði ekkert til að lifa
þessu lífi!“ svarar Carr, en hann nam
félagsvísindi í háskóla. „Ég veit pínu-
lítið um óskaplega margt,“ segir Carr
um gagnsemi þeirra fræða og að þau
komi sér eflaust vel fyrir grínista.
„Ég er grínisti sem hentar vel fólki
með athyglisbrest. Ég segi 300
brandara á tveimur klukkustundum
og þeir tengjast ekkert hver öðrum,
eru bara brandarar,“ bætir hann við.
Blaðamaður minnist þess að hafa
hlegið svo mikið að uppistandi Carr
að hann hreinlega verkjaði í maga-
vöðvana og var með harðsperrur
næsta dag. Carr tekur því fagnandi
og bendir á að hlátur sé hollur og
smitandi og að fólk sé um átta sinn-
um líklegra til að hlæja þegar það sé
innan um annað fólk en ekki eitt með
sjálfu sér. Því sé bráðsmitandi að fara
á uppistand fyrir fullum sal. „Þetta er
mikilvægur, félagslegur gjörningur,
þú myndar tengsl við aðra og losar
endorfín. Ég lít stundum á mig sem
dópsala en þú ert þegar kominn með
dópið í hendurnar, ég hjálpa þér bara
að nota það.“
Allt fer í símann
– Þetta er mikill fjöldi brandara,
hvernig koma þeir til þín? Lestu
bækur, ferð í göngutúra eða hver er
aðferðin?
„Nei, það sem er svo gott við
tæknina er að áður fyrr þurfti ég allt-
af að vera með penna og blað á mér
en núna skrifa ég allt í iPhone-inn. Í
hvert sinn sem mér dettur eitthvað í
hug – og jafnvel þó það sé varla fynd-
ið heldur bara sniðugt orðalag eða
gott orð, eitthvað sem ég heyri aðra
segja eða í fréttunum – þá punkta ég
það hjá mér og þegar kemur að skrif-
unum lít ég yfir þessar þúsundir
punkta og vinn úr þeim,“ svarar
Carr. Hann segist einkum vinna út
frá myrkari hliðum mannlegrar til-
veru. „Þannig er mitt skopskyn og
margir brandaranna snúast um að
losa spennu,“ útskýrir Carr og líkir
sér við hirðfífl sem megi segja eitt og
annað sem aðrir megi ekki segja.
Hann er spurður að því hvort hann
finni fyrir miklum mun milli þjóða,
hvort ein þjóð hlæi meira að ákveðn-
um bröndurum en önnur og segist
Carr lítið hafa orðið var við slíkt.
Meira máli skipti á hvaða degi uppi-
standið fari fram, sunnudagur sé ekki
eins og mánudagur hvað salinn varð-
ar og svo framvegis.
Góður brandari betri
– Ætlarðu að segja brandara sér-
sniðna að Íslendingum í uppistandinu
þínu um helgina?
„Já, örugglega, mér hlýtur að
detta eitthvað í hug,“ segir Carr og
blaðamaður laumar að honum ís-
lenskum brandara og hvetur grínist-
ann til að segja hann. Carr virðist
lítast vel á þá hugmynd, þó hann
botni ekkert í brandaranum. Kannski
kennir hann í brjósti um íslenska
blaðamanninn sem heldur að hann sé
fyndinn.
Carr er að klára uppistandsferð
sína um heiminn, segist hafa heim-
sótt 20 lönd í fyrra og að hann muni
heimsækja jafnmörg á þessu ári. „Ég
er á leiðinni til Litháens og þaðan
held ég til Sviss og svo til Íslands,“
segir hann og líkir sér við vinsæla
rokksveit sem flakkar milli landa og
flytur helstu smelli sína. Grínistinn er
enda með „best of“ dagskrá, úrval
brandara af ferlinum og fleiri til, sem
fyrr segir.
En var ekki heilmikið mál að fara
yfir allt brandarasafnið? „Jú, þetta
eru fleiri klukkustundir af efni sem
ég þurfti að vinna úr en það var gam-
an að fara yfir þetta, skoða góða
brandara og átta sig á því að hægt
væri að gera þá betri. Oft má bæta
við brandarann, krydda hann með
einhverjum hætti. Þetta er skemmti-
leg sýning og ég er virkilega stoltur
af henni,“ segir Carr að lokum.
Veit pínulítið um óskaplega margt
Jimmy Carr reytir af sér um 300 brandara í Hofi og Hörpu um helgina „Þetta er ekki alvöru
starf en mér gengur þó ágætlega í því,“ segir Carr Grínisti fyrir fólk með athyglisbrest
Spéfugl Jimmy Carr skælbros-
andi og spenntur fyrir því að
skemmta Íslendingum enn á ný.
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Allt að 70% afsláttur
af umgjörðum og
sólgleraugum
ÚTSALA!
Red Bull
Verð áður 14.930,-
Verð nú 4.479
Jensen
Verð áður 12.900,-
Verð nú 9.030
Red Bull
Verð áður 18.900,-
Verð nú 9.450
Boss
Verð áður 37.650,-
Verð nú 18.825