Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 67
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enski grínistinn Jimmy Carr snýr aftur til Íslands og treður upp í Hofi á laugardaginn, 26. janúar, og í Há- skólabíói í tvígang degi síðar, kl. 19.30 og 22.30. Carr mun þar flytja nýjustu uppistandssýningu sína, The Best Of, Ultimate, Gold, Greatest Hits. Carr er einn þekktasti og vinsælasti grín- isti Bretlands og margverðlaunaður sem slíkur. Hann er einnig vinsæll sjónvarpsmaður, hefur tekið þátt í og stýrt sjónvarpsþáttum til fjölda ára í heimalandinu og þá m.a. í breska ríkissjónvarpinu. Carr er þessa dagana á flakki um heiminn með sýninguna og Ísland er einn viðkomustaður af fjölmörgum á því ferðalagi. Sýningin samanstendur af bestu bröndurunum á ferli Carr, ferli sem spannar um tuttugu ár, í bland við nýja. Þeir sem farið hafa á uppistand með Carr eða séð hann í ham í sjónvarpi eða á netinu vita að þeir eiga von á góðu gríni og það oftar en ekki af svartara taginu. Ekki fyrir viðkvæma, eins og stundum er sagt. Afþakkaði hákarl og kinnar Carr er einkar vingjarnlegur við blaðamann sem slær á þráðinn til hans kl. 9 að morgni. Grínistinn segist hafa nægan tíma. „Þú mátt spyrja mig að hverju sem er, hvað viltu vita?“ spyr Carr. Blaðamaður tekur grínistann á orðinu og spyr hvað hann hafi fengið sér í morgunverð. „Ég byrjaði á sellerísafa sem einhver sagði mér að myndi gera mér gott og fékk mér svo grænan safa á eftir. Ég drekk safa á morgnana,“ svarar Carr. – Ertu á safakúr? „Nei, ég fæ mér örugglega ham- borgara í hádegismat þannig að það er ekkert vit í þessu! Ég stunda svakalega heilsusamlegt líferni þang- að til ég geri það ekki,“ svarar Carr af sinni alkunnu hnyttni. Hann segist vera á flakki milli landa og hafa til- hneigingu til að borða einfaldlega það sem er í boði hverju sinni. „Síðast þegar ég var á Íslandi reyndi fólk að troða ofan í mig úldnum hákarli og kinnum af einhvers konar fiski. Ég meina það, Ísland, ég er nú ekki al- gjör fábjáni!“ segir Carr. – En var þér boðið að smakka svið- ið andlitið á kind? „Ég er ekki grænmetisæta en mér finnst fullmikið að borða andlitið á einhverju dýri,“ segir Carr og fær ör- stuttan fyrirlestur um fullnýtingu sauðfjár á Íslandi. „Við notum líka alla kindina en þetta ógeðslega notum við í dálítið sem við köllum pylsur. Þá þarf maður ekkert að hugsa um þetta, það er búið að hakka allt saman þann- ig að maður sér það ekki. Bein, fætur og rassgöt.“ Kannast við hann af skjánum Carr ber Íslendingum vel söguna, þrátt fyrir hákarlinn og allan óþverr- ann sem reynt hefur verið að koma ofan í hann, segir þjóðina einkar vin- gjarnlega. Hún hafi tekið honum opn- um örmum í þau skipti sem hann hef- ur komið hingað með sín gamanmál. „Ég hef átt góðar stundir á Íslandi, brugðið mér í bæinn á kvöldin og fengið mér drykk,“ segir hann. – Kannaðist fólk við þig í þessum bæjarferðum? „Það verður æ algengara eftir því sem ég kem oftar. Með tilkomu Net- flix og YouTube hefur grínistum tek- ist að ná til miklu stærri hóps, grínið er orðið hnattrænt og fólk ræður vþí núna hvað það horfir á. Það kannast ef til vill við mig úr þáttum á borð við 8 Out of 10 Cats, Countdown eða The Big Fat Quiz of the Year,“ svarar Carr. – Eldri lesendur blaðsins kannast mögulega ekki við þig þannig að ég spyr einfaldlega, fyrir þá: Hver er Jimmy Carr? „Ég er breskur grínisti og í ykkar augum er ég sennilega mikill dóni. En þetta eru bara brandarar og mér finnst svo skrítið þegar fólk segir að eitthvað sé svo svakalega dónalegt að það hljóti að vera bara fyrir ungt fólk því sumt gamalt fólk er líka með sóðalegt skopskyn, það er ekki óal- gengt. Við eigum það öll til að vera með fyrirfram gefnar hugmyndir um náungann og ég man eftir hjónum á níræðisaldri sem komu á uppistand með mér og ég hugsaði með mér að þau myndu alls ekki kunna að meta grínið. En þau nutu þess sko heldur betur!“ segir Carr og bætir við að þeir sem hafi lifað af heila heims- styrjöld hljóti nú að þola nokkra brandara. „En ég er sumsé breskur grínisti sem ferðast um heiminn, seg- ir brandara og stýrir sjónvarpsþátt- um. Þetta er ekki alvöru starf en mér gengur þó ágætlega í því.“ Vann hjá Shell – Hefurðu verið með uppistand frá unga aldri? „Nei, ég byrjaði á því þegar ég var 26 ára. Líf mitt var heldur hversdags- legt fram að því, ég kláraði háskóla- nám og fór svo að vinna fyrir stórt olíufyrirtæki, Shell. Um miðjan þrí- tugsaldurinn fór ég að velta fyrir mér hvern fjandann ég væri eiginlega að gera. Mig langaði ekkert til að lifa þessu lífi!“ svarar Carr, en hann nam félagsvísindi í háskóla. „Ég veit pínu- lítið um óskaplega margt,“ segir Carr um gagnsemi þeirra fræða og að þau komi sér eflaust vel fyrir grínista. „Ég er grínisti sem hentar vel fólki með athyglisbrest. Ég segi 300 brandara á tveimur klukkustundum og þeir tengjast ekkert hver öðrum, eru bara brandarar,“ bætir hann við. Blaðamaður minnist þess að hafa hlegið svo mikið að uppistandi Carr að hann hreinlega verkjaði í maga- vöðvana og var með harðsperrur næsta dag. Carr tekur því fagnandi og bendir á að hlátur sé hollur og smitandi og að fólk sé um átta sinn- um líklegra til að hlæja þegar það sé innan um annað fólk en ekki eitt með sjálfu sér. Því sé bráðsmitandi að fara á uppistand fyrir fullum sal. „Þetta er mikilvægur, félagslegur gjörningur, þú myndar tengsl við aðra og losar endorfín. Ég lít stundum á mig sem dópsala en þú ert þegar kominn með dópið í hendurnar, ég hjálpa þér bara að nota það.“ Allt fer í símann – Þetta er mikill fjöldi brandara, hvernig koma þeir til þín? Lestu bækur, ferð í göngutúra eða hver er aðferðin? „Nei, það sem er svo gott við tæknina er að áður fyrr þurfti ég allt- af að vera með penna og blað á mér en núna skrifa ég allt í iPhone-inn. Í hvert sinn sem mér dettur eitthvað í hug – og jafnvel þó það sé varla fynd- ið heldur bara sniðugt orðalag eða gott orð, eitthvað sem ég heyri aðra segja eða í fréttunum – þá punkta ég það hjá mér og þegar kemur að skrif- unum lít ég yfir þessar þúsundir punkta og vinn úr þeim,“ svarar Carr. Hann segist einkum vinna út frá myrkari hliðum mannlegrar til- veru. „Þannig er mitt skopskyn og margir brandaranna snúast um að losa spennu,“ útskýrir Carr og líkir sér við hirðfífl sem megi segja eitt og annað sem aðrir megi ekki segja. Hann er spurður að því hvort hann finni fyrir miklum mun milli þjóða, hvort ein þjóð hlæi meira að ákveðn- um bröndurum en önnur og segist Carr lítið hafa orðið var við slíkt. Meira máli skipti á hvaða degi uppi- standið fari fram, sunnudagur sé ekki eins og mánudagur hvað salinn varð- ar og svo framvegis. Góður brandari betri – Ætlarðu að segja brandara sér- sniðna að Íslendingum í uppistandinu þínu um helgina? „Já, örugglega, mér hlýtur að detta eitthvað í hug,“ segir Carr og blaðamaður laumar að honum ís- lenskum brandara og hvetur grínist- ann til að segja hann. Carr virðist lítast vel á þá hugmynd, þó hann botni ekkert í brandaranum. Kannski kennir hann í brjósti um íslenska blaðamanninn sem heldur að hann sé fyndinn. Carr er að klára uppistandsferð sína um heiminn, segist hafa heim- sótt 20 lönd í fyrra og að hann muni heimsækja jafnmörg á þessu ári. „Ég er á leiðinni til Litháens og þaðan held ég til Sviss og svo til Íslands,“ segir hann og líkir sér við vinsæla rokksveit sem flakkar milli landa og flytur helstu smelli sína. Grínistinn er enda með „best of“ dagskrá, úrval brandara af ferlinum og fleiri til, sem fyrr segir. En var ekki heilmikið mál að fara yfir allt brandarasafnið? „Jú, þetta eru fleiri klukkustundir af efni sem ég þurfti að vinna úr en það var gam- an að fara yfir þetta, skoða góða brandara og átta sig á því að hægt væri að gera þá betri. Oft má bæta við brandarann, krydda hann með einhverjum hætti. Þetta er skemmti- leg sýning og ég er virkilega stoltur af henni,“ segir Carr að lokum. Veit pínulítið um óskaplega margt  Jimmy Carr reytir af sér um 300 brandara í Hofi og Hörpu um helgina  „Þetta er ekki alvöru starf en mér gengur þó ágætlega í því,“ segir Carr  Grínisti fyrir fólk með athyglisbrest Spéfugl Jimmy Carr skælbros- andi og spenntur fyrir því að skemmta Íslendingum enn á ný. MENNING 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Allt að 70% afsláttur af umgjörðum og sólgleraugum ÚTSALA! Red Bull Verð áður 14.930,- Verð nú 4.479 Jensen Verð áður 12.900,- Verð nú 9.030 Red Bull Verð áður 18.900,- Verð nú 9.450 Boss Verð áður 37.650,- Verð nú 18.825
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.