Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 68
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Anddyrishitablásarar
Til í öllum helstu lengdum (1m - 1.5m - 2m)
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Tilkynnt var í gær hvaða tíu bækur
eru tilnefndar til Viðurkenningar
Hagþenkis, félags höfunda fræðirita
og kennslugagna, fyrir árið 2018. Við-
urkenningarráð Hagþenkis stendur
að valinu, en það skipa þau Auður
Styrkársdóttir, Ásta Kristín Bene-
diktsdóttir, Henry Alexander
Henrysson og Svanhildur Kr.
Sverrisdóttir. Borgarbókasafn og
Hagþenkir standa fyrir bókakynn-
ingu fyrir almenning 2. febrúar kl.
15-17 á Reykjavíkurtorgi, þar sem
höfundarnir kynna bækurnar. Við-
urkenningin verður síðan veitt við
hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni
6. mars. Verðlaunin nema 1.250.000
krónum.
Hagþenkir hefur frá árinu 1986
veitt viðurkenningu fyrir fræðirit,
námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs
efnis til almennings. Árið 2006 var
tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu
höfunda og bækur er til greina koma.
Viðurkenningaráð Hagþenkis, skipað
fimm félagsmönnum af ólíkum
fræðasviðum til tveggja ára í senn,
stendur að valinu.
Eftirfarandi höfundar og bækur
eru tilnefnd í stafrófsröð höfunda.
Með fylgir umsögn viðurkenningar-
ráðsins:
Alda Björk Valdimarsdóttir.
Jane Austen og ferð lesandans.
Skáldkonan í þremur kvennagrein-
um samtímans. Háskólaútgáfan.
„Ítarleg og áhugaverð rannsókn á
ímynd Jane Austen í samtímanum og
áhrifum hennar á kvennamenningu,
einkum ástarsögur, skvísusögur og
sjálfshjálparbækur.“
Axel Kristinsson. Hnignun,
hvaða hnignun? Goðsögnin um niður-
lægingartímabilið í sögu Íslands.
Sögufélag. „Ögrandi söguskoðun og
eftirtektarverður frásagnarstíll höf-
undar mynda öfluga heild.“
Árni Daníel Júlíusson. Af
hverju strái. Saga af byggð, grasi og
bændum 1300–1700. Sagnfræði-
stofnun Háskóla Íslands og Háskóla-
útgáfan. „Vönduð sagnfræðirann-
sókn og frumleg framsetning býður
lesandanum í spennandi tímaferðalag
aftur til lítt þekktra alda Íslandssög-
unnar.“
Bára Baldursdóttir og Þorgerð-
ur H. Þorvaldsdóttir. Krullað og
klippt. Aldarsaga háriðna á Íslandi.
Hið íslenska bókmenntafélag. „Fag-
lega fléttað verk byggt á hárfínni
heimildavinnu um sögu starfsgreinar
þar sem sjónum er ekki síst beint að
ólíkri kynjamenningu.“
Hörður Kristinsson, Jón Baldur
Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhalls-
dóttir. Flóra Íslands. Blómplöntur og
byrkningar. Vaka-Helgafell. „Ein-
stakt bókverk þar sem framúrskar-
andi fræðimennska, væntumþykja
fyrir viðfangsefninu og listræn út-
færsla mun sameina kynslóðir í
lestri.“
Kristín Svava Tómasdóttir.
Stund klámsins. Klám á Íslandi á
tímum kynlífsbyltingarinnar. Sögu-
félag. „Brautryðjandaverk um sögu
kláms og kynverundar á Íslandi sem
byggir á afhjúpandi rannsóknum á
vandmeðförnu efni.“
Magnús Þorkell Bernharðsson.
Mið-Austurlönd. Fortíð, nútíð og
framtíð. Mál og menning. „Sérlega
aðgengileg og fræðandi bók um nú-
tímasögu Mið-Austurlanda, sögu- og
menningarlegt samhengi nýliðinna
viðburða og togstreitu milli heims-
hluta.“
Ólafur Kvaran. Einar Jónsson
myndhöggvari. Verk, táknheimur og
menningarsögulegt samhengi. Hið ís-
lenska bókmenntafélag. „Glæsileg og
ríkulega myndskreytt bók um hug-
myndafræði verka Einars og tengsl
hans við alþjóðlegar listastefnur og
íslenska menningu á fyrstu áratugum
20. aldar.“
Rósa Rut Þórisdóttir. Hvíta-
birnir á Íslandi. Bókaútgáfan Hólar.
„Yfirgripsmikið safn frásagna um
átök manna og hvítabjarna, unnið
upp úr óvenjulegu gagnasafni sem
nær allt frá landnámi til okkar daga;
efni sem höfðar til allra aldurshópa.“
Sverrir Jakobsson. Kristur.
Saga hugmyndar. Hið íslenska bók-
menntafélag. „Fróðleg og sannfær-
andi framsetning á því hvernig hug-
myndir manna um Krist þróuðust og
breyttust gegnum aldirnar í með-
förum þeirra sem á hann trúðu.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ánægjuefni Höfundar þeirra tíu framúrskarandi rita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis þetta árið.
Tilnefningar
Hagþenkis 2018
Viðurkenning Hagþenkis 2018 veitt 3. mars Verðlaun-
in nema 1.250.000 krónum Verkin kynnt 2. febrúar
Z-brautir &
gluggatjöld
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Allt að
70% afsláttur
ÚTSALA
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - Opið mán.-fös. 10-18
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Fasteignir
Bandaríska leikkonan Melissa
McCarthy náði þeim merkilega
áfanga í vikunni að hljóta tilnefn-
ingar sem bæði besta og versta leik-
kona í kvikmynd.
Á sunnudag voru tilnefningar til
Razzie-verðlaunanna tilkynntar en
verðlaunin eru veitt árlega vest-
anhafs fyrir það versta á kvik-
myndaárinu á undan. McCarthy er
tilnefnd fyrir versta leik í tveimur
kvikmyndum, The Happytime
Murders og Life of the Party.
Óskarsverðlaunatilnefninguna
hlaut hún svo í fyrradag fyrir leik
sinn í Can You Ever Forgive Me?
McCarthy er ekki fyrsta leik-
konan sem hlýtur bæði tilnefningu
til Óskars og Razzie því Sandra
Bullock náði þeim magnaða ár-
angri árið 2009
og ekki nóg með
það heldur hlaut
hún bæði Ósk-
arsverðlaun og
Razzie fyrir The
Blind Side og All
About Steve.
Spennandi verð-
ur að sjá hvort
McCarthy nær
líka slíkri verðlaunatvennu og tak-
ist henni það verður hún önnur í
sögu kvikmyndanna til þess.
Bullock tók við hvorum tveggja
verðlaunum á sínum tíma og þar
sem McCarthy er þekkt fyrir
gamanleik og almennan hressleika
hlýtur hún að gera það líka, hljóti
hún verðlaunin.
Tilnefnd fyrir besta og versta leik
Melissa McCarthy