Morgunblaðið - 02.02.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr
einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp
að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hyggjast
heimila þúsundir aukaíbúða í sérbýli.
Þá m.a. í bílskúrum. Þá verða veittar
heimildir fyrir aukahæðum í fjölbýlis-
húsum og auknu byggingarmagni að
uppfylltum skilyrðum. Til dæmis á lóð-
um við fjölbýlishús en þá gætu eftir at-
vikum mögulega risið lágreistari hús.
Fjallað var um tillögurnar í Morgun-
blaðinu í gær. Fulltrúar minnihlutans í
borginni taka misjafnlega í þær.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, segir meira
þurfa til að leysa húsnæðisvandann.
„Þessar breytingar eru viðurkenn-
ing á því að framkvæmd þéttingar-
stefnunnar í borginni hefur beðið skip-
brot. Húsnæðisvandinn sem við höfum
haft áhyggjur af, og bentum á í kosn-
ingabaráttunni, er að birtast okkur
með jafnvel skýrari hætti en maður
óttaðist. Þetta er viðleitni en það þarf
miklu meira til. Þess vegna höfum við
bent á Keldnalandið og fleiri borgar-
hluta sem hentug svæði til uppbygg-
ingar,“ segir Eyþór. Minnihlutinn hafi
verið fylgjandi þessum breytingum.
Hins vegar þurfi reynslan að segja til
um hvort þær verði til frambúðar.
„Ef borgin getur einfaldað reglu-
verk sitt og sett almennar reglur í stað-
inn fyrir að velta fyrir sér hverjum
kvisti og sérhverjum svölum er það já-
kvætt. Varðandi þessa útfærslu höfum
við sagt að hún geti haft sína kosti og
galla. Það þarf því að endurskoða hana
eftir fjögur ár. Við lítum á þetta sem til-
raunaverkefni og sjáum hvernig það
gengur,“ segir Eyþór.
Íbúðirnar færri en boðað er
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið-
flokksins í borgarstjórn, segir sér lítast
ágætlega á þessar hugmyndir. Hún
telur hins vegar einsýnt að miklu færri
aukaíbúðir muni verða til með slíkum
breytingum en borgaryfirvöld áætla.
Til dæmis sé áætlað að rúmlega þús-
und aukaíbúðir geti orðið til í Ártúns-
holti, Árbæ og Selási.
„Þessi tala gengur aldrei upp. Ég
myndi í fljótu bragði ætla að 250-300
aukaíbúðir gætu bæst við í þessum
hverfum. Því má ekki gleyma að
margir húseigendur leigja nú þegar út
bílskúra og kjallara. Það er mikil mett-
un á markaðnum. Það má segja að
þetta sé enn ein bólan hjá borgarmeiri-
hlutanum,“ segir Vigdís.
Þá fari því fjarri að allir húseigendur
muni nýta sér slíka möguleika. Jafn-
framt séu áætlanir um íbúðir á nýjum
aukahæðum ofan á fjölbýlishúsum
„byggðar á tálsýn“. Slíkar fram-
kvæmdir séu enda kostnaðarsamar og
flóknar og ekki hægt að ganga út frá
því að þær verði allar að veruleika.
„Borgin er í ljósi þrengingarstefn-
unnar, svonefndrar þéttingarstefnu,
að veita þessar heimildir. Þær fela hins
vegar í sér mikið ofmat á fjölda nýrra
íbúða,“ segir Vigdís. Breytingarnar
muni því ekki hafa teljandi áhrif á við-
varandi íbúðaskort í Reykjavík.
Eykur framboð á litlu húsnæði
Kolbrún Baldursdóttir, borgar-
fulltrúi Flokks fólksins, segir flokkinn
almennt taka jákvæða afstöðu til
breytinganna og telji þær geta aukið
framboð á einföldu og litlu húsnæði.
Það muni þá væntanlega halda aftur af
hækkun húsnæðisverðs og „auðvitað
hafa áhrif á húsnæðisframboðið“.
Breytingin komi því efnalitlu fólki til
góða. „Það þarf hins vegar einnig að
hafa annað í huga. Svona breytingar
hafa áhrif á nágranna og huga þarf að
því að þau verði ekki neikvæð. Þar má
nefna að ekki má verða bílastæða-
skortur og því verður að tengja þær að
einhverju marki við almenningssam-
göngur. Í hugmyndunum kemur fram
að auðveldara verður en áður að
stunda dálitla atvinnustarfsemi í nú-
verandi búsetuhúsnæði. Slíkt getur
hjálpað til við að fækka ferðum fram
og aftur kvölds og morgna og dregið
úr þörf fyrir bílastæði,“ segir Kolbrún
um eina hlið þessara mála.
Neikvæð viðhorf til einkabílsins
„Eins og við vitum er ófremdar-
ástand i umferðarmálum og mér finnst
ég skynja hjá sumum í meirihlutanum
neikvæð viðhorf til þeirra sem vilja og
þurfa að nota einkabíl sinn, t.d. á ferð-
um sínum niðri í bæ. Borgarlínan leys-
ir ekki allan vanda hjá öllu fólki. Við
teljum að með undirgöngum í stað
gönguljósa og göngubrúm eftir því
sem við á og hentar, sem og betri ljósa-
stýringu, væri hægt að losa um
stærstu teppurnar. Þetta vita þeir sem
aka þessar erfiðustu leiðir á morgnana
og heim seinnipartinn. Bílaumferðin er
vandi út af fyrir sig sem fengið hefur
að vaxa án þess að gripið hafi verið inn
í málin að því marki sem hefði þurft.
En Flokkur fólksins fagnar líka ávallt
þegar látið er af mikilli miðstýringu og
forræðishyggju eins og gert er í þess-
ari tillögu heilmikið,“ segir Kolbrún.
Þjónar húseigendum
Sanna Magdalena Mörtudóttir,
borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands,
segir auknar heimildir í húsnæðis-
málum fyrst og fremst þjóna húseig-
endum. Það komi húseigendum vel að
kerfið sé einfaldað vilji þeir bæta við
íbúðum.
„En þetta er engin töfralausn á hús-
næðiskreppunni. Það er jákvætt að
heyra að mögulega geti fleiri íbúðir
komið á leigumarkaðinn en það þjónar
fyrst og fremst húseigendum sem geta
þá gert breytingar á sínu húsnæði.
Þótt það komi mögulega fleiri íbúðir á
markaðinn eru þá væntanlega fyrst og
fremst einkaaðilar leigusalar.
Við styðjum hins vegar að óhagnað-
ardrifin leigufélög séu ráðandi. Það er
ekki staðan í dag. Maður veit heldur
ekki hversu margir geta nýtt þetta og
þannig komið fleiri íbúðum á leigu-
markaðinn. Þetta er gott fyrir húseig-
endur en ég sé ekki að þetta sé gott
fyrir þá sem eru verst settir á húsnæð-
ismarkaði. Þeir eru í hræðilegri stöðu
út af húsnæðiskreppunni og greiða
hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum sín-
um í leigu. Borgin skapaði þessa stöðu
og maður sér ekki að húseigendur
muni setja fjölda leiguíbúða á mark-
aðinn,“ segir Sanna Magdalena.
Efasemdir um aukaíbúðirnar
Oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni segir leyfi fyrir aukaíbúðum vitna um skipbrot þéttingarstefnu
Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands segir breytingarnar ekki munu gagnast þeim verst settu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraunbær Heimilaðar verða aukahæðir ofan á fjölbýlishús, m.a. í Hraunbæ. Rætt er um eina aukahæð að jafnaði.
Sigurður Helgi Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og
formaður Húseigendafélagsins, segir ýmis álitaefni
geta komið upp með þessum breytingum.
Varðandi möguleika á aukahæð í
fjölbýlishúsum séu slíkar fram-
kvæmdir háðar samþykki allra eig-
enda. Af því leiði að einn eigandi í
stóru fjölbýlishúsi geti hindrað
framkvæmdir. Þegar byggingar-
réttur er nýttur verði til verðmæti
sem deilist milli eigenda eftir eign-
arhlut í viðkomandi húsi.
„Ef verktaki vill kaupa byggingar-
réttinn í heild myndi söluandvirðið
skiptast milli eigenda eftir hlutfalls-
tölum. Þetta getur skapað verð-
mæti. Um leið breytist eðli sameignarinnar. Húsið verð-
ur stærra og flóknara. Á móti kemur að það verður
kannski skipt um þak eða ráðist í aðrar meiriháttar
viðgerðir, sem kannski var kominn tími á, og íbúar fá fé
til framkvæmda, peninga og lyftu í staðinn.“
Sigurður Helgi bendir svo á að slíkar breytingar geti
tekið langan tíma. Því megi ætla að smíði aukahæða í
fjölbýlishúsum geti verið margra ára ferli. Þá kalli slík-
ar framkvæmdir á breytingar á eignaskiptalýsingu.
Með nýjum íbúðum í fjölbýli fylgi eignarhlutur í sam-
eign, til dæmis þvottahúsum. Vegna skorts á bílastæð-
um víða í borginni geti fjölgun íbúða aukið á skortinn.
Stæðum verði ekki skipt á nýjan leik nema með sam-
þykki allra íbúa. Ekki megi veita einum forréttindi um-
fram aðra.
„Bílastæðavandamál eru orðin mikil nú þegar. Fólk
er með fleiri bíla en gert var ráð fyrir í upphafi. Bíla-
stæði eru orðin gulls ígildi,“ segir Sigurður Helgi. Hann
segir að í minni fjöleignarhúsum geti stærri eigendur
nýtt heimildir til að stækka húsnæðið en að greiddum
fébótum fyrir byggingarréttinn til annarra eigenda.
„Samkvæmt fjöleignarhúsalögunum er byggingar-
rétturinn í sameign. Að öðru jöfnu hefur sá eigandi for-
gangsrétt til byggingarinnar sem á stærri hlut í húsinu.
Svo geta verið ákvæði í þinglýstum heimildum um að
einhver annar eigi byggingarréttinn. Ef tveir eða fleiri
eiga jafn stóran, og stærstan, hluta ræður hlutkesti.
Ætli einhver að nota forgangsréttinn á hann að bjóða
fébætur til annarra sem byggingarréttinn eiga með
honum en geta ekki nýtt réttinn, áður en ráðist er í
framkvæmdir. Leita þarf til dómkvaddra matsmanna ef
samkomulag næst ekki,“ segir Sigurður Helgi.
Hann bendir á að fjölgun íbúða geti breytt eðli
hverfa. Kynna þurfi breytingar á deiliskipulagi sem geti
kallað á athugasemdir íbúa vegna breyttra forsendna.
Húseigendur geti haft mikla hagsmuni af slíkum breyt-
ingum. Sumir hafi enda keypt eignir við rólegar götur
sem verða fjölfarnari við slíkar breytingar.
Allir íbúar þurfa að samþykkja aukahæð
FORMAÐUR HÚSEIGENDAFÉLAGSINS VÍSAR TIL LAGANNA
Sigurður Helgi
Guðjónsson
Eyþór
Arnalds
Vigdís
Hauksdóttir
Sanna M.
Mörtudóttir
Kolbrún
Baldursdóttir