Morgunblaðið - 02.02.2019, Síða 33
MESSUR 33Á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Yngri barnakór kirkjunnar syngur.
Umsjón sr. Svavar Alfreð Jónsson og Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Æðruleysismessa kl.
20. Ungmennakór Akureyrar syngur og leiðir
söng undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteins-
dóttur. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Kaffi í
safnaðarheimilinu að messu lokinni.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir
altari. Organisti Krisztina K. Szklenár. Félagar úr
kirkjukór Árbæjarkirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Skólahljómsveit Árbæjar og Breið-
holts spilar. Stjórnandi Snorri Heimisson.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu í umsjón Önnu Sigríðar og Aðalheiðar.
Messukaffi.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar
fyrir altari. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni ann-
ast samverustund sunnudagaskólans. Félagar
úr Kór Áskirkju leiða messusönginn. Orgelleikari
Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi að messu lok-
inni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Báðir kórar kirkjunnar syngja, barnakór-
inn og kirkjukórinn, undir stjórn Keiths Reed.
Bjarki Geirdal Guðfinnsson annast fræðslu.
Prestur er Kjartan Jónsson. Hressing og sam-
félag á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Umsjón hafa sr. Hans Guðberg, Ást-
valdur organisti, Sigrún Ósk og Lærisveinar
hans. Batamessa kl. 17, haldin í samstarfi við
samtökin Vinir í bata sem halda úti tólf spora
starfi víðs vegar um landið. Prestur er Hans
Guðberg. Organisti er Ástvaldur Traustason og
Ellen Kristjánsdóttir syngur. Hópur fólks úr vin-
um í bata tekur þátt í messunni. Kaffi að lokinni
messu í safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20.
Tónlistardagskrá. Söngtextar verða á staðnum
og er fólk hvatt til að taka undir. Félagar í kirkju-
kórnum sjá um undirleik á píanó, gítar og harm-
onikkur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Prestur Magnús Björn Björnsson. Kór
Breiðholtskirkju undir stjórn Arnar Magnússonar
syngur. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa
Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn Leifsdóttir.
Alþjóðlegi söfnuðurinn bæna- og lofgjörðarstund
á ensku kl. 14. Prestur Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Fjölbreytt tónlist og fræðandi starf fyrir börnin.
Daníel Ágúst, Sóley Adda og Jónas Þórir leiða
samveruna. Foreldrar og afar og ömmur hvött til
þátttöku með börnunum. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Bústaðakirkju syngur, Jónas Þórir við hljóð-
færið. Messuþjónar aðstoða. Prestur Eva Björk
Valdimarsdóttir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig Sigríður
Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju syngur.
Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Ferm-
ingarfræðsla kl 12.30-13.30.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Sveinn Val-
geirsson, Kári Þormar og Dómkórinn. Sunnu-
dagaskóli á kirkjuloftinu. Bílastæði við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson
ásamt fræðurum sunnudagaskólans Mörtu og
Ásgeiri. Arnhildur Valgarðsdóttir organisti sér
um tónlistina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Sigurbjörn Þorkelsson, ljóðskáld og rithöf-
undur, leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og
Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina
ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Ferming-
arbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að
mæta.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Henning
Emil Magnússon predikar og þjónar fyrir altari.
Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er
Jóhann Baldvinsson.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Stef-
anía G. Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leið-
ir söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur org-
anista. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna
Kristrún djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa með alt-
arisgöngu klukkan 11. Sr. Grétar Halldór Gunn-
arsson þjónar, dr. Gregory Aikins prédikar og kór
Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon
Leifsson. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkj-
unnar kl. 11. Dans, söngvar og sögur. Pétur
Ragnhildarson hefur umsjón og Stefán Birki-
sson leikur á píanó.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Messa klukkan 13. Sr. Grétar Halldór Gunn-
arsson þjónar, dr. Gregory Aikins prédikar og Vox
Populi syngur. Organisti er Hilmar Örn Agnars-
son.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Laufey Birg-
isdóttir, framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar,
segir frá starfinu sem á sér rætur í Grens-
áskirkju. Fundur eftir messu með ferming-
arbörnum vorsins og foreldrum þeirra, Sr. María
Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi og tón-
listina annast Ásta Haraldsdóttir og félagar úr
Kirkjukór Grensáskirkju. Heitt á könnunni fyrir
og eftir messu.
Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12, starf eldri borg-
ara á miðvikudag kl. 14 og núvitundariðkun á
fimmtudag kl. 18.15.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl 11. Prestur Karl V. Matthías-
son. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir stjórn
Ásbjargar Jónsdóttur og Svanfríður Gunn-
arsdóttir. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffi í boði eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson messar. Organisti Þorvaldur Örn Dav-
íðsson. Rakel Edda Guðmundsdóttir syngur.
Bylgja Dís og fleiri leiðtogar annast fjölbreytta
dagskrá í sunnudagaskólanum. Hressing á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Hádegistónleikar laug-
ardag kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson, org-
anisti Hallgrímskirkju, leikur. Í upphafi tón-
leikanna verður stutt helgistund í umsjá sr. Irmu
Sjafnar Óskarsdóttur.
Messa og barnastarf sunnudag kl. 11. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Stein-
ar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa
Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Biskup Ís-
lands frú Agnes M. Sigurðardóttir vísiterar Há-
teigssöfnuð. Biskup prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Eiríki Jóhannssyni, sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur, sr. Þorvaldi Víðissyni, sr. Evu
Björk Valdimarsdóttur og sr. Ásu Laufeyju Sæ-
mundsdóttur. Fulltrúar úr sóknarnefnd lesa ritn-
ingarlestra. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur
á trompet og Jón Guðmundsson á þverflautu.
Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Organisti er
Guðný Einarsdóttir. Samskot dagsins renna til
Ljóssins.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Bænamessa kl.
11. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Láru
Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er
Sunna Dóra Möller. Sunnudagaskóli í safn-
aðarheimilinu á sama tíma undir stjórn Mark-
úsar og Heiðbjartar.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Sunnu-
dagaskóli og messa í kirkjurýminu kl. 11. Prest-
ur leiðir stundina ásamt fermingarbörnum, leik-
hóp-TTT og sunnudagaskólabörnunum. Arna
Rún Arnarsdóttir, Ísak Andri Jónsson og Sigríður
Kristín Guðmundsdóttir úr Tónlistarskóla A-Hún.
leika á hljóðfæri og syngja. Hugrún Sif Hall-
grímsdóttir leikur á flygilinn og félagar úr kór
Hólaneskirkju leiða söng. Að messu lokinni er
boðið upp á veitingar. Bryndís Valbjarnardóttir
sóknarprestur.
HRAFNISTA REYKJAVÍK | Guðsþjónusta kl.
14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Fé-
lagar úr kór Áskirkju syngja. Organisti Bjartur
Logi Guðnason. Ritningarlestur les Kristín Guð-
jónsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar og
þjónar fyrir altari.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Translation into English. Samkoma
á spænsku kl. 13. Reuniónes en español. Sam-
koma á ensku kl. 14. English speaking service.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn |
Sunnudagaskóli í Húsi Jóns Sigurðssonar kl.
11.15. Guðsþjónusta í Skt Pauls kirke kl. 14.
Kammerkórinn Staka syngur. Orgelleik annast
Sólveig Anna Aradóttir. Altarisganga. Prestur er
Ágúst Einarsson. Kaffi í Jónshúsi eftir guðsþjón-
ustu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma
kl. 13 með lofgjörð, fyrirbænum og vitn-
isburðum. Börnin byrja inni á sal með for-
eldrum/forsjáraðilum en á meðan samkoman
varir verður sérstök fræðsla fyrir þau. Ólafur H.
Knútsson verður með hugleiðingu. Kaffi að
samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Óskalagamessa kl.
11, sr. Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari,
Arnór Vilbergsson og kór Keflavíkurkirkju leiða
söng. Samfélag í Kirkjulundi eftir guðsþjónustu
og bjóða sóknarnefnd og foreldrar ferming-
arbarna upp á súpu og brauð.
Miðvikudagur 6. febrúar. Kyrrðarstund í kapellu
vonarinnar kl. 12. Súpa og brauð.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta. Félagar úr Skólakór Kársness syngja
undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur kórstjóra.
Ásta Ágústsdóttir, djákni leiðir stundina ásamt
sunnudagaskólakennurum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Barnakórinn Graduale Liberi syngur við
messuna undir stjórn Sunnu Karenar Ein-
arsdóttur, Magnús Ragnarsson er organisti.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar,
auk Söru Grímsdóttur og Hafdísi Davíðsdóttur
sem taka á móti börnunum í barnastarfið. Léttur
hádegisverður að messu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Laugarneskirkju og Arngerður María Árnadóttir
organisti. Sr. Hjalti Jón Sverrisson þjónar fyrir
altari og prédikar. Sunnudagskóli á meðan.
Kaffi og samvera á eftir.
þriðjudagur 5. 2. Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin
íhugun.
Fimmtudagur 7. 2. Foreldrasamvera á Kaffi
Laugalæk kl. 9.30-11.30 . Athugið breyttan
tíma. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádeg-
isverður á eftir. Opið hús kl. 13. Samvera í Ás-
kirkju. Helgistund með Davíð Þór og Hjalta Jóni
kl. 16 Hásalnum Hátúni 10.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir
stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Með-
hjálpari er Hildur Backman. Sunnudagaskóli kl.
13. Umsjón hafa Berglind og Þórður.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leið-
ir söng undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari.
NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng undir
stjórn Steingríms Þórhallssonar organista.
Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Barna-
starfið er í umsjón Katrínar H. Ágústsdóttur,
Margrétar Hebu Atladóttur og Ara Agnarssonar.
Hressing og samfélag á torginu að stundunum
loknum.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Yfirskrift: Út úr kassanum. Barnastarf.
Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, söng-
ur, sögur og brúðuleikhús, ávaxtahressing í lok-
in. Guðsþjónusta kl. 20, ath. breyttan messu-
tíma. Kristján Kristjánsson KK sér um tónlistina
og sr. Bryndís Malla Elídóttir flytur hugleiðingu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar og
organisti kirkjunnar leikur. Leiðtogar sjá um
sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og sam-
félag í safnaðarheimilinu eftir athöfn.
Kyrrðarstund á miðvikudag kl. 12. Súpa og
brauð eftir stundina.
Bænastund á föstudag kl. 9.30.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Eg-
ill Hallgrímsson sóknarprestur annast prests-
þjónustuna.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi | Bæna-
og kyrrðarstund kl. 17. Óvenjuleg hugleiðslu-
stund við kertaljós eingöngu. Egill Hallgrímsson
sóknarprestur leiðir stundina.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20. Kór Útskála-
og Hvalsnessókna syngur undir stjórn Keith
Reed. Sameiginleg messa fyrir báðar sóknir.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi og
sr. Henning Emil Magnússon leiða stundina.
Barnakór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jó-
hönnu Guðrúnar Jónsdóttur og Davíðs Sig-
urgeirssonar. Tónlistarmyndband með kórnum
verður frumsýnt. Biblíufræðsla og brúðuleikhús.
Kaffi og djús að lokinni stundinni i safn-
aðarheimilinu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Barnakór Víðistaðakirkju
syngur undir stjórn Helgu Þórdísar organista.
Hressing eftir stundina.
Orð dagsins: Varðmaður
yfir Ísrael.
(Esekíel 33)
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áskirkja í Fellum við Lagarfljót.
Þessari spurningu
velta margir fyrir sér
því augljóst virðist sem
álag sé að aukast og
streitutengdir lífsstíls-
sjúkdómar sömuleiðis.
Að minnsta kosti er
streita orðin meira um-
töluð og afleiðingar
hennar sýnilegri.
Aukningin er ekki ein-
göngu hérlendis því
sama þróun er í öðrum löndum. Sums
staðar er aukningin svo hröð og áber-
andi að talað er um faraldur. Orsak-
irnar liggja ekki fyrir en margar
kenningar hafa komið fram og vís-
indamenn leita skýringa og lausna og
hér er fjallað um þær helstu:
Augljóst er að miklar breytingar
hafa orðið í samfélaginu og álag hefur
aukist. Nútíma samskiptækni og
samskiptamiðlun gerir auknar kröfur
um að vera alltaf til staðar og þetta
veldur stöðugu áreiti og skerðir
möguleika á nauðsynlegri hvíld. Sam-
skiptamáti hefur í kjölfarið breyst
mjög mikið og stundum virðist sem
einstaklingurinn vilji fremur vera í
sambandi við sem flesta í einu í stað
þess að slaka á í manneskjulegri
tengingu við einn eða fáa á góðri
stund. Fjölvirkni (multi-tasking) er
orðin dyggð en sýnt hefur verið fram
á með rannsóknum að slík hegðun er
orkufrekari en þegar við einbeitum
okkur að einu í einu og veldur einnig
meira áreiti og streitu.
Kröfurnar sem við gerum á okkur
sjálf um að sinna flóknu starfi sam-
hliða því að eiga fjölskyldu og reka
heimili hafa einnig stóraukist og ekk-
ert er gefið eftir í lífsgæðakapphlaup-
inu. Sum fyrirtæki ala á þeim starfs-
anda að bestu starfsmenn vinni
lengstan vinnudag. Önnur fyrirtæki
telja það eðlilegt að trufla megi
starfsfólk utan vinnutíma, jafnvel á
kvöldin eða um helgar.
Nýir álagsþættir hafa orðið til.
Miðaldra kynslóðin er með áhyggjur
af unglingum sem verða ungt fólk en
komast ekki að heiman og á sama
tíma sér hún einnig um aldraða for-
eldra sem eru í heimahúsum með tak-
markaða þjónustu. Þetta eru álags-
þættir sem myndast vegna ónógs
stuðnings við að ungt fólk geti eignast
sitt fyrsta húsnæði og vegna þess að
þjóðin er að eldast og fjöldi þeirra
sem nær háum aldri vex hratt og
langt umfram það sem mætt er með
viðeigandi stuðningi og þjónustu. Á
yngri kynslóðunum hvílir aukin krafa
um fegurð, frískleika og skjótan
frama og þeim liggur á í lífskjarabar-
áttunni. Sumir rannsakendur benda á
meiri sjálfmiðun þúsaldarkynslóðar-
innar. Til eru sálfélagslegar kenn-
ingar um að of mikil sjálfmiðun um-
fram heildstæða sýn og félagslegan
þroska dragi ekki bara úr samkennd
heldur geti aukið hættu á kulnun. Við
fáum einnig fréttir af því að börn og
unglingar hafi nú oftar en áður ein-
kenni um streitu s.s. kvíða og depurð
eða líkamleg óþægindi og hegð-
unarbreytingar. Hratt vaxandi hópur
aldraðra hefur einnig auknar áhyggj-
ur af afkomu og aðgengi að nauðsyn-
legri þjónustu.
Minni tími er til hvíld-
ar og endurhleðslu. Við
alvarleg einkenni kuln-
unar og sjúklegrar
streitu er um truflaða
starfssemi heilans að
ræða og þá er góð hvíld
besta móteitrið eða
meðferðin.
Margt bendir til að
trúariðkun sé á und-
anhaldi í vestrænum
löndum en í trúnni eru
fólgin mörg úrræði sem
varna gegn álagi og kulnun. Áhersla á
íhugun, sjálfsskoðun og kyrringu
hugans eru í boðskap trúarinnar.
Mildi í samskiptum, skilningur, fyr-
irgefning og umhyggja fyrir náung-
anum sömuleiðis, en mörgum finnst
vera aukin harka í samskiptum nú til
dags. Einnig er sterkur boðskapur í
trúnni um nauðsyn hvíldar.
Stundum teljum við mennskuna í
hættu á kostnað vélrænna vitsmuna
og ef til vill erum við þegar komin
lengra í því ferli en við gerum okkur
grein fyrir. Þó ekki þannig að vel-
menni hafi tekið yfir, heldur að við
sjálf hugsum og hegðum okkur í
auknum mæli vélrænt. Bent hefur
verið á að of mikil peningahyggja á
kostnað mannlegra og menn-
ingalegra eða listrænna gilda hafi of
mikil áhrif og fullnægi ekki mann-
legum þörfum nema á takmarkaðan
hátt.
Það er mikilvægt fyrir okkur að
hafa félagslegt öryggi, trú á framtíð-
ina og trú á þá sem leiða förina og
stjórna í samfélaginu og stjórn-
málum. Í opnu samfélagi, með stöð-
ugu upplýsingaflæði og flutningi
frétta, fáum við að fylgjast nákvæmar
en áður með framgangi og hrasi
stjórnmálaleiðtoga og það hefur áhrif
á skoðun okkar á þeim og tiltrú til
þeirra.
En hvað getum við gert. Jú, það
eru mörg áhrifarík úrræði í boði sem
við getum nýtt okkur betur þrátt fyr-
ir að við skiljum þessi ferli ekki nægi-
lega vel ennþá. Skipta má úrræð-
unum í þrennt: Í fyrsta lagi er
mikilvægt að í fyrirtækjum og stofn-
unum og á vinnustöðum þar sem við
störfum og dveljum stóran hluta æv-
innar sé skapað manneskjulegt
starfsumhverfi með þarfir starfs-
manna og stjórnenda að leiðarljósi.
Ef vel er að gáð fara hagsmunir fyr-
irtækis og einstaklinga nær alltaf
saman. Í öðru lagi er mikilvægt að
hver og einn fari ekki fram úr sjálfum
sér, gæti vel að hvíld og greini úr og
vinni í álagsþáttum og efli tengsl sín
við vini og fjölskyldu. Í þriðja lagi er
mikilvægt að leiðtogar séu góðar fyr-
irmyndir og marki stefnu sem veki
öryggi um sanngjarnt samfélag og
von um hamingjuríka framtíð.
Hvers vegna er
kulnun að aukast?
Eftir Ólaf Þór
Ævarsson
Ólafur Þór Ævarsson
»Mikil umræða er um
áhrif streitu á heilsu
og aukinnar vanlíðunar
og skerðingar í starfs-
getu vegna kulnunar.
Höfundur er geðlæknir
hjá Forvörnum.
olafur@stress.is, www.stress.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið.Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið
er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.