Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 6

Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 6
STJÓRNMÁL Flestir bera mest traust til Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sam- kvæmt nýrri könnun sem Zenter rannsóknir framkvæmdu fyrir Fréttablaðið og frettabladid.is. Fast á hæla henni kemur Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra og njóta þær langmests trausts allra ráðherra. Stuðningur við Lilju og Katrínu kemur úr ólíkum áttum.  Katrín nýtur mests trausts meðal stuðn- ingsmanna ríkisstjórnarinnar en meðal andstæðinga hennar nýtur Lilja langmests trausts allra ráð- herra. Stuðningur við Lilju er mestur meðal tekjulágra og þeirra sem hafa minnsta menntun. Þessu er öfugt farið meðal stuðningsmanna Katr- ínar en traust til hennar styrkist eftir því sem tekjur hækka og menntun eykst. Katrín nýtur mests trausts allra ráðherra meðal íbúa höfuðborgar- svæðisins. Tæpur þriðjungur þeirra treystir henni best. Þar  nefndu rúm 24 prósent Lilju. Meðal lands- byggðarfólks er nafn Lilju hins vegar langoftast nefnt. Þar treysta 39 pró- sent henni best allra ráðherra. Tæp 18%prósent landsbyggðarfólks treysta Katrínu hins vegar best. Stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins treysta formanni sínum best allra ráðherra í 45,6 prósentum tilvika en Þórdísi Kolbrúnu í 17,6 prósentum tilvika. Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíus- son njóta hins vegar báðir minna trausts meðal stuðningsmanna Sjálf- stæðisflokksins en stöllurnar Lilja og Katrín. Tveir af hverjum tíu stuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokksins bera mest traust til annarrar hvorrar þeirra. En tæp 6 prósent nefndu Guð- laug og rúm 5 prósent Kristján Þór. Þeir sem treysta Bjarna best koma aðeins úr þremur f lokkum; Sjálf- stæðisflokknum, Miðflokknum og Viðreisn þar sem rúm tvö prósent segjast treysta honum best. Hann kemst ekki á blað meðal stuðnings- manna annarra flokka. Auk mikils trausts til Lilju og Katrínar sem njóta stuðnings þvert á f lokka bera margir stuðnings- menn Samfylkingar, Pírata og Við- reisnar mest traust til Guðmundur Inga Guðbrandssonar umhverfis- ráðherra og hann skýst upp fyrir þær stöllur meðal stuðningsmanna Samfylkingarinnar þar sem tæpur þriðjungur stuðningsmanna treystir honum best allra ráðherra. Lilja er vinsælust meðal þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina og auk mikillar hylli í Framsókn og Mið- flokki treysta 89 prósent stuðnings- manna Flokks fólksins henni best. Katrín er síst líkleg til að njóta trausts í Miðf lokknum og Flokki fólksins en þær stöllur njóta jafn- mikils stuðnings meðal Pírata en rúm 60 prósent þeirra treysta ann- arri hvorri þeirra best allra ráðherra. St uðning smenn Viðreisna r treysta einnig Katrínu og Lilju best en meðal þeirra er Þórdísi Kolbrúnu einnig best treyst í 20 prósentum tilvika. Aðrir ráðherrar Sjálfstæðis- Lilja skyggir á bæði Sigurð og Katrínu  Lilja Alfreðsdóttir nýtur mests trausts allra ráð- herra samkvæmt nýrri könnun. Hún nýtur margfalt meira trausts meðal Framsóknar- manna en formaður flokksins. Sá ráðherra sem helst er vantreyst er Bjarni Benediktsson. Helmingur kvenna ber minnst traust hans.   ✿ Hvaða ráðherra berðu mest traust til? 20,5 18,1 7,6 6,8 6,8 3,0 2,2 2,0 1,5 1,2 Lilja Alfreðsdóttir Katrín Jakobsdóttir Bjarni Benediktsson Guðmundur Ingi Guð- brandsson Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Svandís Svavarsdóttir Sigurður Ingi Jóhannsson Guðlaugur Þór Þórðarson Ásmundur Einar Daðason Kristján Þór Júlíusson Formaður Framsóknar í miklum vandræðum Staða formanns Framsóknar- flokksins er erfið miðað við niðurstöður könnunarinnar. Aðeins 15,2 prósent stuðn- ingsmanna flokksins segjast treysta eigin formanni, Sigurði Inga Jóhannssyni, best allra ráðherra. Lilja nýtur hins vegar yfirburðastuðnings í flokknum en 62,4 prósent stuðnings- manna flokksins treysta henni best. Þriðji ráðherra Fram- sóknarflokksins, Ásmundur Einar Daðason, nýtur lítillar hylli samkvæmt könnuninni. Tæp 7 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins bera mest traust til hans. Athygli vekur að Lilja nýtur ekki aðeins algerra yfirburða umfram aðra ráðherra meðal stuðningsmanna í sínum flokki heldur einnig meðal stuðnings- manna Miðflokksins. Tæplega helmingur þeirra treystir Lilju best allra ráðherra. Næstur á eftir henni kemur Bjarni Bene- diktsson en rúm 11 prósent Miðflokksmanna treysta honum best. Þessi stuðningur við Lilju hlýtur að vekja nokkra athygli með hliðsjón af hörðum um- mælum ráðherrans í garð þing- manna flokksins í Kastljóssþætti RÚV 5. desember síðastliðinn. ✿ Hvaða ráðherra berðu minnst traust til? 34,5 13,1 8,7 7,8 5,6 5,5 2,4 1,6 1,4 0,9 Bjarni Benediktsson Svandís Svavarsdóttir K ristján Þór Júlíusson Ásm undur Einar D aðason G uðlaugur Þór Þórðarson K atrín Jakobsdóttir G uðm undur Ingi G uðbrandsson Sigurður Ingi Jóhannsson Lilja Alfreðsdóttir Þórdís Kolbrún R. G ylfadóttir Vantraust mest í garð Bjarna Benediktssonar Einnig var spurt um þann ráðherra sem nýtur minnst trausts meðal þátttakenda. Þar er Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráð- herra, langoftast nefndur. Helmingur allra kvenna sem tóku þátt sögðust bera minnst traust til hans. Vantraustið er mest meðal þeirra tekjulægstu og þeirra sem hafa minnsta menntun en minnkar jafnt og þétt með hærri tekjum og aukinni menntun. Niðurstöður könnunarinnar um vantraust til ráðherra meðal þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru einnig athyglisverðar en 60 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna bera minnst traust til Bjarna Bene- diktssonar. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins vantreysta hins vegar helst heilbrigðisráðherra en 50 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins segjast bera minnst traust til Svandísar Svavarsdóttur. Framsóknarmenn vantreysta hins vegar Kristjáni Þór Júlíussyni mest allra ráðherra en væri ekki fyrir vantraust þeirra, kæmist landbúnaðar- ráðherra vart á blað í könnuninni hvort sem litið er til trausts eða vantrausts. Góð samvinna er sögð milli Katrínar Jakobsdóttur og Lilju Alfreðsdóttur. Langflestir treysta þeim best allra ráðherra. Fréttablaðið/Anton Brink 15% Framsóknarmanna bera mest traust til Sigurðar Inga. 62% Framsóknarmanna bera mest traust til Lilju. Helmingur þeirra kvenna sem tóku afstöðu sögðust bera minnst traust til Bjarna Benediktssonar. Helmingur þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn sögðust bera minnst traust til Svandísar Svavarsdóttur. Veit ekki 23,1 Vil ekki svara 7,1 Veit ekki 14,5 Vil ekki svara 4 Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is f lokksins komast ekki á blað hjá stuðningsmönnum Viðreisnar að undanskildum tveimur prósentum sem treysta Bjarna best. Könnunin var gerð dagana 25.-27. júní 2019. Hún var send á 2.000 manna könnunarhóp Zenter rann- sókna, 18 ára og eldri. Svarhlutfallið var 51 prósent og voru svörin vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -B F 7 0 2 3 5 4 -B E 3 4 2 3 5 4 -B C F 8 2 3 5 4 -B B B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.