Fréttablaðið - 29.06.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 29.06.2019, Síða 12
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Taktu fyrstu vél til Kaup- manna- hafnar, farðu á hækjunum á Lægevagten, berðu þig aumlega og segðu: hjælp. OPIÐ ALLAR HELGAR FRÁ KL. 11.00-17.00 KOMDU Í KOLAPORTIÐ D Á S A M L E G D E I L D S A M F É L A G S I N S 30 ÁRA 1989 2019 It was me And a gunAnd a man On my backAnd I sang „Holly Holy“ as he buttoned down his pants „Me and a gun“ er lag af fyrstu plötu tónlistarkonunn­ ar Tori Amos sem kom út árið 1992. Lagið fjallar um það þegar Amos var nauðgað. Hún hafði nýlokið tónleikum á bar þegar einn fastagesta staðarins ógnaði henni með hníf og kom fram vilja sínum. Í síðustu viku voru tvær konur dæmdar í Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu miskabóta vegna ummæla sem þær létu falla um tvo menn í hinu svokallað Hlíðamáli. Hlíðamálið komst í hámæli árið 2015 eftir að fréttir voru fluttar af því að tveir menn væru grunaðir um hrottalegt kynferðisbrot í íbúð í Hlíðahverfi Reykja­ víkur. Óhugur greip um sig. Tjáðu margir sig um málið á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum áður en að það var til lykta leitt en það var fellt niður í júní 2016 því það þótti ekki líklegt til sakfellingar að sögn vararíkis­ saksóknara. En það voru ekki málalyktir. Fjöldi fréttamanna og einstaklinga sem tjáðu sig um málið var dæmdur fyrir ærumeiðandi ummæli um mennina tvo. Þar að auki kærði lögmaður mannanna stúlkurnar fyrir rangar sakar giftir sem höfðu gefið þeim að sök að hafa nauðgað sér en því máli var vísað frá. Var Tori Amos nauðgað? Ef tré fellur í skógi og enginn er nærri, heyrist þá hljóð? Tori Amos leitaði ekki til lögreglu eftir að henni var nauðgað. Aldrei var gefin út ákæra og enginn var sak­ felldur. Má Tori Amos segja frá því að henni hafi verið nauðgað? Má hún semja lag um það? Má hún segja hver nauðgaði henni? Má ég skrifa í Fréttablaðið að Tori Amos hafi verið nauðgað? Og ef enginn var dæmdur, var Tori Amos nauðgað? Ég var fórnarlamb auðkennisþjófnaðar fyrir skömmu þar sem ég bý í London. Óprúttnum aðilum tókst að plata þjónustufulltrúa í bankanum mínum til að senda mér nýtt debetkort. Þeir vöktuðu póstkassann minn og stálu kortinu úr kassanum þegar það barst. Síðan fóru þeir í hraðbanka og tæmdu reikninginn minn. Ég hafði samband við bankann sem endurgreiddi mér hina stolnu upphæð. Því næst hringdi ég á lögguna. Símsvari lögreglu Lundúnaborgar tjáði mér hins vegar að það væri svo mikið að gera að hún hefði ekki tök á að rannsaka minniháttar mál. Mér væri þó velkomið að fylla út eyðublað á netinu ef ég vildi. Mér fannst enginn tilgangur með því að fylla út eyðublað. Ég kærði ekkert til lögreglu. Enginn var dæmdur. Enginn efaðist þó um að þrjú hundruð pundum hefði verið stolið af reikningnum mínum. Saklaus uns sekt er sönnuð er grundvallarregla sem aldrei má víkja frá. Við verðum að horfast í augu við það að einstaklingur getur verið sakaður um nauðgun en reynst saklaus. En að sama skapi verðum við að horfast í augu við það að konur – og karlar – verða fyrir kynferðisofbeldi sem enginn er dæmdur fyrir. Kynferð­ isafbrotamál eru í flestum tilfellum látin niður falla þar sem líkur á sakfellingu þykja litlar. Fórnarlömb þora oft ekki að stíga fram – eða þeim finnst ekki taka því. Í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur tók hópur fólks saman höndum og stofnaði málfrelsissjóð á söfn­ unarsíðunni Karolinafund. Sjóðnum er ætlað að „draga úr ótta kvenna við að tjá sig um kynbundið ofbeldi og tryggja að fjárhagsáhyggjur bætist ekki við það andlega og tilfinningalega álag sem fylgir því að tala um kyn­ bundið ofbeldi“. Hvar hefst réttur manns til æru og hvar lýkur rétti konu til að tjá sig um atburði eigin lífs? Þetta er flókið. Þetta er ekki svart og hvítt. En það gengur ekki að dómstólar séu notaðir sem ógn til að kefla þolendur ofbeldis, múlbinda þá sem berjast gegn því og kæfa í fæðingu þá vitundarvakningu sem átt hefur sér stað um kynferðislegt ofbeldi undanfarin misseri. Ég ætla að gefa í málfrelsissjóðinn. Ég vona að þú gerir það líka. Ef tré fellur í skógi Hraustur vinur minn, sem vikum saman hefur flækst stynjandi frá lækni til læknis í von um að fá bót sársaukafullra íþróttameina, líkir heilbrigðiskerfinu á Íslandi við prik­lausa rakettu. Því miður virðist hann hafa nokkuð til síns máls. Hann hefur velt fyrir sér í alvöru, heilræðum vin­ konu sinnar, hjúkrunarfræðings af gamla skólanum, með starfsreynslu frá mörgum löndum, sem hann í fyrstu taldi grín: Taktu fyrstu vél til Kaupmanna­ hafnar, farðu á hækjunum á Lægevagten, berðu þig aumlega og segðu: hjælp, ráðleggur hún. Af þjáningarsvip hans að dæma, kvaðst vinkonan viss um, að danska kerfið myndi sjá aumur á honum, innrita hann án tafar á sjúkrahús og svo í aðgerð ef þörf krefði. Ef ekki þyrfti aðgerð, gæti hann stólað á örugga leiðsögn um framhaldið. Hér hefur vinurinn farið á heilsugæslu, slysadeild, læknavakt, stofur sérfræðinga og einkaspítala. Sjö læknar hafa ávísað á hann lyfjum. Eftir einn eða tvo fundi gufa sumir þeirra upp, svara ekki síma, sinna ekki skilaboðum og hunsa tölvupóst. Lyf fyrir tugi þúsunda hafa safnast í baðher­ bergisskápnum og vinur minn er hættur að átta sig á hvað er hvað – hvaða pilla er tekin með hverri, enda örvilnaður sökum þrautanna, sem halda fyrir honum vöku. Vinnu sinnir hann ekki að neinu gagni. Einn læknirinn tjáði honum, að ef ekki yrði gripið í taumana strax, gæti hann fengið drep í beinin sem nuggast saman. Orðið slitgigt var nefnt. Svo bætti hann við að slík mein fylgdu fólki alla tíð. Þess vegna lægi á. Tveir aðrir sögðu að við svo búið mætti ekki standa, því þetta yrði bara verra. Síðan hefur ekki náðst í þá. Enda starfa þeir á mörgum stöðum, stofum og spítölum og að minnsta kosti einn í útlöndum líka. Vinur minn er óheppinn að lenda í þessu að vori, þegar árleg sumarlokun vofir yfir skurðstofum. Hann er þó vongóður um að lausn sé handan við hornið með hjálp góðra manna. En raunirnar vitna um laskað kerfi. Þær staðfesta að sagan um að góða heilsu þurfi til að eiga við heilbrigðiskerfið – nema ættingjar eða vinir kippi í spotta – er ekki bara grín. Hún styrkir þann grun, að vandasamt sé að vera með tvö kerfi í gangi, amerískt og norrænt. Sumir segja að reikningar sérfræðinganna úti í bæ gleypi stóran hluta opinbera fjárins – þannig fleyti amer­ íska kerfið rjómann ofan af því norræna og dragi úr því þróttinn. Er það svo? Kannski telja einhverjir tilganginn helga meðalið því ónýtt opinbert kerfi styrki draumsýnina um einkarekstur og milligöngu tryggingafélaga, eins og tíðkast vestanhafs? Hvað sem því líður, rakettan má ekki vera priklaus öllu lengur. Raketta án priks 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -9 3 0 0 2 3 5 4 -9 1 C 4 2 3 5 4 -9 0 8 8 2 3 5 4 -8 F 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.