Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 16
FÓTBOLTI Framherjinn Árni Vil
hjálmsson átti góðu gengi að fagna
með úkraínska liðinu Chorno
morets Odesa á meðan hann lék
þar undanfarna mánuði. Árni lék
þar sem lánsmaður frá pólska félag
inu BrukBet Termalica Nieciecza
þar sem hann er samningsbundinn
næstu tvö árin.
BrukBet Termalica Nieciecza
leikur í pólsku Bdeildinni en
frammistaða Árna með Chorno
morets Odesa vakti athygli bæði
hjá öðrum félögum í Úkraínu sem
og á meginlandi Evrópu. Árni býst
því frekar við því en ekki að hann
yfirgefi herbúðir BrukBet Termal
ica Nieciecza.
„Fótboltinn sem spilaður er í
Úkraínu hentar mér mjög vel og
að mörgu leyti betur en hérna í
Bdeildinni í Póllandi og það sem
ég kynntist allavega í Noregi og Sví
þjóð. Úkraínska deildin er sterk og
er meðal annars talin níunda besta
deild Evrópu af UEFA þannig að það
segir sitt.
Liðin spila frekar taktískt en eru
tæknilega góð og vilja spila boltan
um með jörðinni. Mér líkar sá leik
stíll og eiginleikar mínir sem knatt
spyrnumanns eru þannig að ég spila
betur í þannig umhverfi,“ segir Árni
í samtali við Fréttablaðið um tíma
sinn í Úkraínu en þar skoraði hann
sjö mörk í 12 leikjum.
Þjálfarar kunna
vel við Íslendinga
Töluverður fjöldi íslenskra leik
manna hefur farið til Póllands og
annarra landa í AusturEvrópu síð
ustu ár og Árni segist finna fyrir því
að talað sé vel um íslenska leikmenn
á þessum slóðum.
„Ég held að ástæðan fyrir því að
pólsk lið og lið frá öðrum löndum í
AusturEvrópu hafa verið að sækj
ast í það að fá til sín íslenska leik
menn sé bæði að við erum góðir
í fótbolta og þá fer það orðspor af
okkur að við vælum ekki yfir erf
iðum æfingum eða því hvar við
erum látnir spila á vellinum.
Þeir þjálfarar sem ég hef haft
hérna og hafa verið með íslenska
leikmenn í sínum liðum tala um
það að það sé mjög gott að vinna
með okkur. Þjálfarinn sem ég var
með í Odesa sagði til dæmis að
hann hefði áður unnið með Egg
erti Gunnþóri Jónssyni og það
hefði verið mjög þægilegt,“ segir
hann um mögulega ástæðu þess að
austurevrópsk lið séu áhugasöm
um að vera með íslenska leikmenn
á sínum snærum.
Odesa algjör paradís á jörð
„Mér leið mjög vel í Úkraínu og
Odesa er algerlega frábær borg. Ég
get alveg viðurkennt það að ég var
svolítið smeykur við að fara þangað
þar sem það er stríð í gangi þarna.
Eftir að hafa kynnt mér málið og
rætt við liðsfélaga minn hjá Bruk
Bet Termalica Nieciecza sem er frá
Úkraínu ákvað ég að kýla á þetta.
Ég sé svo sannarlega ekki eftir því.
Odesa er algjör paradís og hún er
víst kölluð Ibiza norðursins. Kær
astan mín var eiginlega frekar ósátt
við að við værum að fara þannig
að það er töluverð pressa á mér að
finna mér lið í huggulegri borg,“
segir hann léttur.
„Eftir að ég kom til baka til Pól
lands til þess að taka þátt í undir
búningstímabilinu settist ég niður
með forráðamönnum BrukBet
Term alica Nieciecza og þeir hafa
látið mig vita að það sé áhugi á mér
bæði frá Úkraínu og MiðEvrópu
og nú er bara planið að finna tilboð
sem hentar félaginu og mér vel.”
Hefur metnað til
þess að taka næsta skref
„Mig langar að spila í sterkari deild
en Bdeildinni í Póllandi. Bæði fyrir
mig sjálfan til þess að þróa minn
feril og til þess að vera sýnilegri og
eiga meiri möguleika á að vinna mér
sæti í landsliðinu,“ segir markaskor
arinn úr Kópavogi um framhaldið.
Árni hefur meðal annars verið
orðaður við Dynamo Kiev sem
hefur verið ansi sigursælt í Úkra
ínu síðustu tvo áratugi en liðið
hefur níu sinnum orðið Úkraínu
meistari frá aldamótum og til við
bótar orðið sjö sinnum bikarmeist
ari. Þá eru úkraínsku liðin Desna,
Karpaty, Lvov, Vorska og Oleks
andr iya sögð áhugasöm, ásamt
FC Ufa í Rússlandi, Craiova í Rúm
eníu og nokkrum félögum í pólsku
úrvalsdeildinni.
„Næstu vikur fara þá bara í það að
koma mér í gott stand í hörku undir
búningstímabili hér í Póllandi og
funda um næstu skref. Æfingarnar
hérna eru svolítið af gamla skólan
um í þeim skilningi að það er mikið
hlaupið og frekar mikil áhersla á lík
amlegan styrk. Ég hef alveg kynnst
því að ganga í gegnum skógarhlaup í
tíu stiga frosti þannig að ég er ýmsu
vanur,“ segir Árni um komandi
vikur. hjorvaro@frettabladid.is
Býst við að færa mig um set
Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson spilaði vel í Úkraínu seinni hluta síðasta tímabils. Hann var í
láni frá pólsku B-deildarliði. Sóknarmanninn langar að spila í sterkari deild og vera nær landsliðssæti.
Árni Vilhjálmsson fann sig vel þegar hann lék með Chornomorets Odesa í Úkraínu. Hann leitar nú að nýrri áskorun.
CROSSFIT CrossFitkappinn Hinrik
Ingi Óskarsson hefur verið bann
aður frá öllum keppnum á vegum
CrossFit Games eftir að hann féll á
lyfjaprófi sem tekið var af honum
í byrjun maí síðastliðnum þegar
hann keppti í Reykjavík CrossFit
Championship.
Blóðsýni Hinriks Inga sem tekið
var á mótinu sýndi anabólíska stera
sem eru á lista yfir þau efni sem eru
á bannlista. Hann var dæmdur í
fjögurra ára bann frá þátttöku á
vegum Crossfitleikanna.
Hinrik vann sér inn þátttökurétt
á heimsleikunum, sem fram fara í
Bandaríkjunum í ágúst síðar á þessu
ári, í Reykjavík CrossFit Champ
ionship en nú er ljóst að hann mun
ekki keppa á því móti. Bannið gildir
til maímánaðar árið 2023. – hó
Hinrik dæmdur
í langt bann
FÓTBOLTI Fílabeinsstrendinguirnn
Wilfried Zaha er á leið til Arsenal ef
marka má fréttir enskra fjölmiðla.
Zaha hefur undanfarið opinberað
að hann vilji komast í lið sem leikur
í Meistaradeild Evrópu en hann
yrði reyndar að gera sér Evrópu
deildina að góðu gangi hann til liðs
við Arsenal í sumar.
Crystal Palace mun því líklega
missa tvo af lykilleikmönnum sínum
frá síðustu leiktíð en Aaron WanBis
saka, hægri bakvörður liðsins, er við
það að ganga til liðs við Mancehster
United.
Talið er að Crystal Palace fái um
það bil 50 milljónir punda fyrir Biss
aka og félagið hefur sett 80 milljóna
punda verðmiða á Zaha sem skoraði
10 mörk í ensku úrvalsdeildinni á
síðustu leiktíð.
Zaha yrði fyrstu kaup Unai Emery,
knattspyrnustjóra Arsenal, í sumar
en pressa er á honum að færa stuðn
ingsmönnum Meistaradeildarbolta
á nýjan leik á þar næstu leiktíð. – hó
Zaha orðaður
við Arsenal
ÞRÍÞRAUT Íslenska þríþrautarkonan
Guðlaug Edda Hannesdóttir verður
meðal keppenda í sprettþraut í
World Triathlon Series um helgina.
Keppt verður í Montreal í Kanada
en þetta er sterkasta þríþrautar
mótaröð heims.
Hún hefur einu sinni áður keppt
á þeirri mótaröð en þá varð hún að
hætta keppni eftir að hafa fengið
höfuðhögg á móti sem fram fór í
Leeds.
Síðasta mót Guðlaugar Eddu var
Evrópumótið í Ólympíuþraut sem
þreytt var í lok maí en þar hafnaði
hún í fjórtánda sæti.
Guðlaug Edda stefnir á að verða
fyrsta íslenska konan til þess að
öðlast þátttökurétt á Ólympíuleik
unum sem haldnir verða í Tókýó
næsta sumar. – hó
Guðlaug verður
í eldlínunni
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta dróst í riðil með Dan
mörku, Ungverjalandi og Rússlandi
þegar dregið var í riðla á Evrópu
mótinu, sem fram fer í Austurríki,
Noregi og Svíþjóð, í Vínarborg síð
degis í gær.
Ísland sem var í þriðja styrkleika
f lokki fékki Dani úr fyrsta styrk
leikaflokknum, Ungverja úr öðrum
og Rússa úr þeim fjórða. Liðin munu
leika í Eriðli keppninnar sem spil
aður verður í Malmö í Gautaborg.
Leikið verður dagana 9.26. janúar.
Guðmundur Þórður Guðmunds
son, þjálfari íslenska liðsins, er
þarna að mæta Dönum, sínum
fyrrverandi lærisveinum. Danir
eru ríkjandi heimsmeistarar og ljóst
að það verður við ramman reip að
draga í þeim leik.
Efstu tvö liðin í hverjum riðli fara
í milliriðil en leikið verður í tveimur
sex liða milliriðlum.
Holland sem leikur undir stjórn
Erlings Richardssonar, og er á leið
inni í lokakeppni Evrópumóts í
fyrsta skipti í sögunni, er í riðli með
ríkjandi Evrópumeisturum, Spáni,
Þýskalandi og Lettlandi.
Læri svein ar Kristjáns Andrés son
ar í sænska liðinu, sem lutu í lægra
haldi fyrir Dönum í úrslitaleik
heimsmeistaramótsins fyrr á þessu
ári, eru í Friðli og mæta Slóven íu,
Sviss og Póllandi.
Þetta verður í fyrsta skipti í
sög unni sem 24 þjóðir taka þátt
í lokakeppni Evrópumótsins.
Riðlakeppn in mun auk þess að fara
fram í Malmö verða leikin í Graz og
Vín ar borg í Aust ur ríki, Þránd heimi
í Nor egi og Gauta borg í Svíþjóð. – hó
Guðmundur mætir sínum fyrrverandi félögum
Wilfried Zaha gæti verið á leið til
Arsenal. NORDICPHOTOS/GETTY
Íslenska liðið verður í strembnum riðli á Evrópumótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ísland verður í riðli með
ríkjandi heimsmeisturum,
Danmörku, Ungverjalandi
og Rússlandi þegar liðið
leikur á Evrópumótinu í
janúar á næsta ári.
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-B
5
9
0
2
3
5
4
-B
4
5
4
2
3
5
4
-B
3
1
8
2
3
5
4
-B
1
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K