Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 18
Sandskeið
flugvöllur
BL
ÁF
JA
LL
AV
EG
U
R
SUÐURLANDSVEGUR
NORÐLINGAHOLT
HR
AU
NS
LÓ
ÐSTRÍPSVEGUR
1
1
417
✿ Ein af uppáhaldsleiðum Katrínar
Mikilvægt að
fara ekki of brattur
af stað
Fjallahjólreiðar hafa undanfarin misseri rutt sér til rúms hér á
landi. Fréttablaðið tók tvo þaulreynda hjólreiðaáhugamenn tali og
bað um ráðleggingar til byrjenda, bestu hjólreiðaleiðirnar og að
taka stöðuna á þessari forvitnilegu íþrótt almennt.
Katrín hefur
stundað hjól-
reiðar frá því að
hún lagði bad-
mintonspaðann
á hilluna fyrir
nokkrum árum.
MYND/ÚR EINKA-
SAFNI
Helgi Berg
Friðþjóðfsson
hefur stundað
fjallahjól-
reiðar í tæpa
þrjá áratugi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Katrín Atladóttir,
borgarfulltrúi og hjólreiða-
maður
Hverjar eru bestu og skemmti-
legustu hjólreiðaleiðirnar?
Mér finnst mjög gaman að
hjóla í Öskjuhlíðinni. Þar eru
ýmsar miserfiðar hjólaleiðir til
að spreyta sig á. Það er samt
alltaf skemmtilegast að hjóla
á fjöllum og í nágrenni Reykja-
víkur finnst mér skemmtilegt
að hjóla í Esjunni, á fellunum í
kringum Mosfellsbæ og svo er
Jaðarinn, frá Bláfjallavegi niður
í Heiðmörk alltaf fínasta æfing.
Ég er mjög spennt að prófa nýju
leiðina sem á að vera fær öllum
í Skálafelli en fjallahjólasvæðið
þar verður opnað í næstu viku. Á
Akureyri er svo um 25 km fjalla-
hjólaleið í Hlíðarfjalli og Kjarna-
skógi sem er algjörlega frábær.
Hvað ráðleggur þú byrjendum?
Mikilvægast fyrir byrjendur er
að velja sér verkefni við hæfi.
Það er ekkert gaman að lenda
óvart í að geta ekki eða þora
ekki að hjóla leiðirnar sem
maður er staddur á og þurfa að
ganga langar leiðir með hjólið.
Svo skiptir viðeigandi búnaður
líka máli, ég hjóla alltaf með
hjálm, hnéhlífar og bakbrynju.
Hvernig kom það til að þú fórst
út í fjallahjólreiðar?
Ég hafði verið lengi að keppa í
badminton og þegar ég lagði
spaðann á hilluna vantaði mig
eitthvert gott áhugamál í stað-
inn sem innifelur í sér einhverja
hreyfingu. Þegar ég prófaði svo
fjallahjól í fyrsta skipti varð ekki
aftur snúið. Það er ekkert betra
en að vera með hjólið mitt á
fjöllum, hvort sem heldur er ein
eða í góðum félagsskap. Þegar
ég er svo að kljást við eitthvað
flókið eða erfitt á hjólinu er
ekkert annað sem kemst að.
Þá næ ég algjöru núvitundar-
ástandi sem er svo gott í amstri
hversdagsins. Svo er líka algjör
bónus að vera að eyða tíma úti
í náttúrunni. Síðast, en alls ekki
síst, er miklu meira töff að vera
á fjallahjóli en á götuhjóli því
það er ekkert spandex í fjalla-
hjólreiðum.
Helgi Berg Friðþjófsson,
margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum.
Hefur þú verið lengi í fjallahjólreiðum? Hvað
kom til?
Ég fékk áhuga á fjallahjólreiðum sem keppnis-
grein 1991 þegar ég sá UCI World Cup keppni á
Eurosport. Svo byrjaði ég að keppa 1993 á hjóli
sem ég keypti fyrir fermingarpeninginn.
Er þetta ekki stórhættulegt sport?
Allar íþróttir eru hættulegar þegar maður er
farinn að fara að ystu mörkum þess sem hægt
er. En með aukinni fræðslu og að við séum
nokkur á landinu sem erum komin með fjalla-
hjólaþjálfaramenntun kemur þetta hratt. Þeir
mörgu sem búnir eru með byrjendanámskeið,
hjálpa vinum sínum aðeins og leiðbeina smá,
þá dreifist aukin vitneskja vonandi hratt um og
gerir fleiri öruggari. Þó er best að fara sjálfur á
byrjendanámskeið.
Hefurðu merkt aukinn áhuga á sportinu undan-
farin ár? Ef já, af hverju heldurðu að það stafi?
Já, ég hef klárlega tekið eftir mjög miklum og
auknum áhuga á hjólreiðum. Bæði í keppnis-
greinum, götuhjólreiðum, XC, AM, CX og DH.
Þetta gerðist eftir hrunið 2007 þegar fólk
fór að hugsa inn á við og rækta líkamann og
vildi stunda íþróttir sem setja ekki mikið álag
á stoðkerfin. Svo er bara svo brjálæðislega
gaman að hjóla.
Hver er munurinn á græjunum sem notaðar eru
í fjallahjólreiðum annars vegar og götuhjól-
reiðum hins vegar?
Fjallahjólreiðar og götuhjólreiðar eru í raun
algjörlega ólíkar íþróttir hvað útbúnaðinn
varðar. Allt önnur hjól. En léttir íþróttamenn
sem stunda götuhjólreiðar henta líka vel líkam-
lega í Marathon og ólympískar XC-keppnir.
Hins vegar eru Enduro og Downhill keppendur
massaðri og líkari handboltamönnum líkam-
lega. Svo eru allavega tólf íþróttagreinar innan
hjólreiða sem eru allar með algjörlega sér
útbúin og hönnuð hjól frá grunni. Svo er best
að minnast á að rafmagnsreiðhjólaflokkarnir
og jafnvel séríþróttagreinar tengdar aukinni
og hraðri þróun rafhjóla eru ný og spennandi
viðbót við hina stóra flóru sem fyrir er og fólki
býðst að nýta sér.
En munurinn á æfingunni sem þú færð út úr
fjallahjólreiðum annars vegar og götuhjól-
reiðum hins vegar?
Það að hjóla á fjallahjólinu er almennt meiri
alhliða hreyfing fyrir allan líkamann.
Á götuhjólinu er það meira core og fætur ásamt
vandaðri þolþjálfun.
Annars eru allar hjólaíþróttir með eitthvert
heillandi og skemmtilegt séreinkenni.
olof@frettabladid.is
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-C
9
5
0
2
3
5
4
-C
8
1
4
2
3
5
4
-C
6
D
8
2
3
5
4
-C
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K