Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 38

Fréttablaðið - 29.06.2019, Page 38
 Tækniskólinn leitar að tækjaverði. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Tækniskólans www.tskoli.is umsjón, viðhald, smíði og aðstoð Tækjavörður C M Y CM MY CY CMY K Taekjavordur.pdf 1 28.6.2019 09:39:46 Sjúkraþjálfunarstöðin ehf. Þverholti 18 óskar eftir starfsmanni í 100% starf eða í hlutastarf. Starfið felst í móttöku, aðstoð við sjúkraþjálfara og almennum þrifum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fyrir 15. ágúst. Umsóknarfrestur er til 10 júlí. Áhugasamir sendi umsókn á netfangið sjukrathjalfunarstodin@ heimsnet.is Norræna húsið í Reykjavík óskar eftir að ráða verkefnisstjóra með áherslu á sam- félag og sjálfbærni, menningu og listir. Norræna húsið í Reykjavík tók til starfa árið 1968 en húsið teiknaði finnski arkitektinn Alvar Aalto. Fjölbreytt menningarstarfsemi fer fram í Norræna húsinu, t.d. sýningar af ýmsu tagi, rekstur bókasafns, hljómleikar og sviðslist. Auk þess tekur húsið virkan þátt í norrænni þjóðfélagsumræðu með málþingum og ráðstefnum. Norræna húsið starfrækir skrifstofu umhverfisverð­ launa Norðurlandaráðs og kemur með norrænt sjónar­ horn í landsmálaumræðuna með miðlunarverkefninu Norðurlönd í fókus. Við auglýsum eftir reyndum verkefnisstjóra til þess að hafa umsjón með verkefnum Norðurlanda í fókus og umsýslu með umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs. Þá sér verkefnisstjórinn um undirbúning ýmissa lista­ og menningarverkefna í Norræna húsinu. Vinnustaðurinn er Norræna húsið í Reykjavík en starfið er unnið í nánu samráði við samskiptasvið og deild umhverfis­ og loft­ slagsmála á skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Kröfur sem þú þarft að uppfylla: • Tilhlýðileg háskólamenntun. • Reynsla af samskiptastarfi, einkum pólitískum samskiptum. • Þekking á umhverfis­ og sjálfbærnimálum. • Reynsla af stjórnsýslustörfum, helst í alþjóðlegum samskiptum og reynsla af stjórnun stærri verkefna. • Góð kunnátta í íslensku auk ensku og einu skandinavísku málanna. Auk þess ertu: • Áhugasöm/samur um að fjalla um samfélagsmál sem eru í deiglunni með menningu og listum. • Lipur í samskiptum og lausnamiðuð/aður. • Skipulögð/lagður og getur unnið sjálfstætt. Um er að ræða fullt starf í fjögur ár með möguleika á framlengingu í fjögur ár til viðbótar samkvæmt reglum Norrænu ráðherranefndarinnar. Upplýsingar um Norræna húsið er að finna á vefsíðunni www.norraenahusid.is. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Stefánsdóttir fjármálastjóri á netfanginu thorunnst@nordichouse.is eða í síma +3545517030. Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org (Störf) eigi síðar en 15. júlí 2019. Job.is Job.isGLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Þú finnur draumastarfið á Kennsla Þú finnur draumastarfið á Iðnaðarmenn Þú finnur draumastarfið á Heilbrigðisþjónusta Veitingastaðir RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 www.radum.is • radum@radum.is Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðs ráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -E B E 0 2 3 5 4 -E A A 4 2 3 5 4 -E 9 6 8 2 3 5 4 -E 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.