Fréttablaðið - 29.06.2019, Síða 70
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
29. JÚNÍ 2019
Sýningar
Hvað? NOMAD
Hvenær? 14.00-17.00
Hvar? Ramskram, Njálsgötu 49
Kristján Maack opnar ljósmynda
sýningu.
Hvað? Búkalú – Margrét Erla
Maack og fylgdarlið
Hvenær? 21.00
Hvar? Edinborg, Ísafirði
Sýningin blandar saman burl
esque, sirkusi, gríni og almennu
rugli. Miðaverð: 3.900 krónur.
Hvað? RVK Fringe Festival –
opnunarhóf
Hvenær? 20.00-23.00
Hvar? Hlemmur Square, Lauga-
vegi 105
Hvað? Ljósvaki/Æther
Hvenær? 17.00
Hvar? Dahlshús, Strandgötu 30a,
Eskifirði
Íslenska silfurbergið og mikil
vægi þess í vísindasögu heimsins
er kveikja sýningarinnar sem
er unnin af myndlistarmönnunum
Selmu Hreggviðsdóttur og Sirru
Sigrúnu Sigurðardóttur.
Tónlist
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar
Hvenær? 12.00-12.30
Hvar? Hallgrímskirkja, Skóla-
vörðuholti
Mattias Wager, organisti Dóm
kirkjunnar í Stokkhólmi flytur
verk eftir Edward Elgar, Dimitri
Shostakovich, Jean Guillou og
Johann Sebastian Bach. Miðaverð
2.500 krónur.
Hvað: Sumarjazz á Jómfrúnni –
Kvartett Stínu Ágústs
Hvenær: 15.00-17.00
Hvar: Veitinghúsið Jómfrúin við
Lækjargötu
Kvartettinn: Stína Ágústsdóttir
söngur, Kjartan Valdemarsson
píanó, Leifur Gunnarsson kontra
bassi, Magnús Trygvason Eliassen:
trommur. Aðgangur er ókeypis.
Hvað? Snert hörpu mína – Söng-
hátíð
Hvenær? 17.00
Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði
Kammerkór Suðurlands, undir
stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar,
f lytur 20 örlög eftir fjölmörg tón
skáld og verk eftir Pál á Húsafelli
með þátttöku hans á eigin hljóð
færi í tilefni sextugsafmælis lista
mannsins.
Myndlist
Hvað: Sigga Björg – sýningar-
opnun
Hvænær: 14.00
Hvar: Ottó, Höfn í Hornfirði
Sigga Björg kannar þau óljósu
mörk sem liggja milli mannlegs og
dýrslegs eðlis.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
30. JÚNÍ 2019
Fjölskyldudagskrá
Hvað? Fjölskyldusmiðjan „Verk að
vinna!“
Hvenær? 13.00-16.00
Hvar? Árbæjarsafn
Börnum og fjölskyldum þeirra
býðst að kynnast starfsháttum
fyrri tíma. Messað verður í safns
kirkjunni kl. 14. Safnið er opið frá
kl. 10 til 17. Ókeypis aðgangur fyrir
börn, eldri borgara, öryrkja og
menningarkortshafa.
Myndlist
Hvað? Alræði fegurðar – Let
Beauty Rule!
Hvenær? 16.00
Hvar? Listasafn Reykjavíkur, Kjar-
valsstöðum
Sýning á verkum breska hönnuð
arins Williams Morris (18341896).
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð
herra opnar sýninguna og Michael
Nevin, sendiherra Bretlands á
Íslandi, ávarpar gesti.
Tónleikar
Hvað? Himinborna dís
Hvenær? 14.00
Hvar? Strandarkirkja, Selvogi
Upphaf hinnar árlegu tónlistarhá
tíðar Englar og menn. Flytjendur:
Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísa
bet Waage hörpuleikari, Hjörleifur
Valsson fiðluleikari og Hilmar Örn
Agnarsson organisti. Á efnisskrá
verða sönglög Atla Heimis Sveins
sonar, einnig lög Sigvalda Kalda
lóns, Franz Schubert og fleiri.
Hvað? Ragnheiður Ólafsdóttir og
hljómsveit
Hvenær? 16.00
Hvar? Hallgrímskirkja, Saurbæ í
Hvalfirði
Á efnisskrá er kveðskapur, sálmar
og norræn þjóðlög ásamt lögum
eftir Ragnheiði við ljóð ýmissa
skálda. Hermann Stefánsson og
Snorri Skúlason leika. Allur ágóði
rennur í sjóð til styrktar staðnum.
Hvað? Stofutónleikar
Hvenær? 16.00
Hvar? Gljúfrasteinn, Mosfellsdal
GDRN syngur eigin lög. Miðar
kosta 2.500 kr. Ókeypis er fyrir
börn á leikskólaaldri.
Hvað? Fjölskyldutónleikar á Söng-
hátíð
Hvenær? 16.30
Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði
Dúó Stemma þar sem Herdís Anna
Jónsdóttir og Steef van Oosterhout
fagna sumrinu með íslenskum
þjóðvísum, þulum, ljóðum og
hljóðum. Ókeypis inn.
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar
Hvenær? 17.00-18.00
Hvar? Hallgrímskirkja, Skóla-
vörðuholti
Mattias Wager, organisti Dóm
kirkjunnar í Stokkhólmi. Á efnis
skrá eru verk eftir Elgar, Guillou,
Bach og Grieg. Miðaverð 3.000 kr.
Útivist
Hvað? Söguganga með Stefáni
Pálssyni sagnfræðingi
Hvenær? 13.30
Hvar? Viðey
Dans
Hvað? Tangó praktika Praktiku-
félagsins
Hvenær? 13.30-15.30
Hvar? Sólon, Bankastræti 7a
Tangó æfður á efri hæðinni,
aðgangur er ókeypis. Umsjón
hefur Snorri Sigfús Birgisson.
Stefán Pálsson leiðir sögugöngu í
Viðey af sinni alkunnu snilld.
Heildarsaf n ljóða Valdimars Tómassonar er komið út. Titillinn er Ljóð 20072018 og þar er að finna bækurnar
Enn sefur vatnið (2007), Sonnettu
geigur (2013), Dvalið við dauðalindir
(2017) og Vetrarland (2018). Guð
mundur Andri Thorsson skrifar inn
gang um skáldið og skáldskap þess.
Valdimar tileinkar Þorsteini
heitnum frá Hamri bókina. „Þar
kemur margt til, bæði löng vinátta
og það að hann var mér oft ráðhollur
í yfirlestri texta. Ég hef líka alltaf
haft miklar mætur á hans skáld
skap,“ segir Valdimar.
Spurður hvenær hann hafi byrjað
að yrkja segir hann: „Í kennslustund
í barnaskóla vorum við bekkjar
félagarnir látnir setja eitthvað
saman. Ég setti saman rétt kveðna
ferskeytlu án þess að þekkja brag
reglur. Ég ólst upp í Mýrdalnum en
kom suður á unglingsárum og komst
í nánd við bækur og fornbókasölur
og fór að lesa kveðskap í miklum
magni. Þá orti ég fyrst og fremst
háttbundið í mínar kompur. Svo
var það á nítjánda ári sem ég setti
saman mitt fyrsta fullburða ljóð.“
Hryðjuverkamenn ljóðsins
Spurður um áhrifavalda segir hann:
„Þeir eru eflaust margir en ég verð að
nefna Snorra Hjartarson, Þorstein
frá Hamri og Hannes Pétursson.
Ég myndi halda að keimurinn væri
nokkuð í þá áttina. Fyrstu skáldin
mín voru Davíð Stefánsson, Stefán
frá Hvítadal, Tómas Guðmundsson
og Steinn Steinarr. Fram að átján
ára aldri las ég ekkert nema hátt
bundinn kveðskap. Svo komst ég
yfir fyrstu bók Jóns Óskars, Skrifað
í vindinn, og þar eru ljóðin bæði
háttbundin og óhefðbundin og
síðan eignaðist ég bók hans, Nóttin
á herðum okkar, og fór að gægjast
inn í kima hryðjuverkamanna
ljóðsins, eins og sveitamennirnir
kölluðu þá, og sá að þar var margur
góður biti. Þá fór ég koll af kolli að
elta þessi kver og draga að mér. Þessi
saklausi sveitadrengur spilltist frá
ferskeyttum hætti og Jónasi yfir í
að ganga módernisma og byltinga
ljóðskáldum á hönd.“
Návist dauðans
Valdimar, sem er fæddur árið 1971,
er ekki heilsuhraustur. „Ég var tví
skorinn við hjartagalla og glími við
flogaveiki,“ segir hann. Það er þung
lyndislegur blær yfir mörgum ljóða
hans og þar kemur dauðinn oft við
sögu. Hann segir þunglyndisblæ
inn ekki til kominn vegna veikinda
sinna en návist dauðans sé sér
hugleikin. „Dauðinn er áberandi
umfjöllunarefni hjá mér, kannski
vegna teprulegrar nálgunar sam
tíðarinnar að honum. Fólk flýr hann
og forðast eins og ellina. Þessir hlutir
eru faldir á bak við veggi og voru
ekki umtalsefni þegar ég var að alast
upp. Líf og dauði eru alltaf að vega
salt. Þannig að ég mæti dauðanum
og tekst á við hann sem yrkisefni.
Það er vissulega þunglyndislegur
blær yfir ljóðum mínum. Ætli það
stafi ekki af því að í uppvextinum
mætti ég ekki gleðilegri heimsmynd
því ég ólst upp í átökum kjarnorku
velda. Í ljóðunum er ég að skila
þeirri mynd sem var raunveruleiki
minnar kynslóðar fremur en að ég
sé þunglyndur alla daga.“
Skjóðan stundum þung
Valdimar er ástríðufullur ljóðaunn
andi og safnar ljóðabókum, frumút
gáfum og árituðum bókum. „Ég veit
ekki hversu margar ég á, ég veit bara
að ég á mikið,“ segir hann. Á ferðum
sínum um bæinn ber hann hliðar
tösku og þar er alltaf að finna ljóða
bækur. „Skjóðan er stundum þung
og þar er ég alltaf með góðar bækur
og les á ferðum mínum. Ljóðalestur
hefur verið ástríða mín og olli því
að ég hafði á sínum tíma mikla við
veru hjá bóksölum. Mér finnst líka
gaman að eiga hvert og eitt verk höf
unda fremur en heildarsafn verka
þeirra. Þannig finnst mér ég betur
gera mér grein fyrir þróun og sam
hengi höfundarferilsins heldur en
þegar ég er með stórt heildarsafn.“
Valdimar er örugglega ekki hætt
ur að yrkja, en hann segist yrkja í
skorpum. „Stundum kemur ekkert
árum saman og svo koma loturnar
en það tekur tíma að vinna verkið,
pússa og breyta, og það er oft lengsta
ferlið.“
Líf og dauði eru alltaf að vega salt
Þannig að ég mæti dauðanum og tekst á við hann sem yrkisefni, segir Valdimar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Heildarsafn ljóða
Valdimars Tómas-
sonar er komið
út. Höfundurinn
segist í ljóðunum
vera að skila þeirri
mynd sem var
raunveruleiki
hans kynslóðar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞESSI SAKLAUSI
SVEITADRENGUR
SPILLTIST FRÁ FERSKEYTTUM
HÆTTI OG JÓNASI YFIR Í AÐ
GANGA MÓDERNISMA OG
BYLTINGALJÓÐSKÁLDUM
Á HÖND.
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-9
7
F
0
2
3
5
4
-9
6
B
4
2
3
5
4
-9
5
7
8
2
3
5
4
-9
4
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K