Ófeigur - 15.04.1948, Side 6
6
ÓFEIGUR
gera það sem aðrir vilja. Ekki var lagt fyrir fundinn
eitt einasta lífvænlegt áhugamál. Enginn aðkomumað-
ur rauf þögn hinnar svefnsælu værðar. Enginn fulltrúi
leyfði sér að skora á menntamálaráðherrann að bjarga
börnum fólksins undan ítroðningsoki skólalaga bolsi-
vikanna. Enginn leyfði sér að óska eftir breytingu á
tryggingarlöggjöfinni í þá átt, að bóndi, sem vinnur
með kaupamanni sínum, megi vera slysatryggður og
fá bætur eins og kaupamaðurinn, ef báðir vinna sömu
vinnu og lenda í sama slysi. Á fundinum voru nokkrir
fulltrúar austan yfir fjall. Ef smávægilegt hríðarveður
kemur, lokast aðalvegurinn yfir Hellisheiði og nauð-
synlegur flutningur framleiðslunnar á markað fellur
niður. Úr þessu má bæta með því að fullgera Krýsu-
víkurveginn. En þar var algjör þögn og sinnuleysi.
IX.
Hermann setti mótið og sagði, að vissulega ætti ein-
hver annar en hann að sitja í formannsstólnum, þar
sem ráð hans og tillögur væru að engu hafðar í flokkn-
um. Flutti hann síðan harkalega ádeiluræðu á Eystein
og Bjarna Ásg., og er tónninn í því efni kunnur úr
boðorðunum. Tók Hermann sem dæmi um þægð Ey-
steins við stjórnarmyndunina, að hann hefði sætt sig
við að vera kennslusmálaráðherra, en erlendis væri sið-
ur að velja í það sæti skynsamar stúlkur. í röksemd
þessari eru þrjú stig. Fyrst, að forstaða menntamála
sé lítið verk og löðurmannlegt. Annað að allar konur
séu minna gefnar en karlmenn. Þriðja, að með því að
Eysteinn tók að sér þessa kvennavinnu, hafi hann fært
sig úr hásæti karlmannlegra yfirburða niður á hinn
lága kvennabekk.
X.
Eysteinn og Bjarni vörðu gerðir sínar og embætti
eftir því sem efni stóðu til. Steingrímur lagði þeim liðs-
yrði, en með Hermanni töluðu Vigfús, Þórarinn ritstjóri
og Sigurvin Einarsson. Hermann hafði mjög deilt á
Mbl.-menn og lagt stund á að sanna, að þó að kommún-
istar væru engan veginn gallalausir, væru í þeim hóp
ágætir menn, svo sem Jónas Haralz. Hefur Hermann
oftar, bæði sjálfur og fyrir munn annarra, rómað þenn-
an unga bolsivika. Var auðséð, að Hermann taldi eitt-