Ófeigur - 15.04.1948, Blaðsíða 30
30
ÓFEIGUR
í vetur fór öðruvísi. Sálmaskáldið gerði útrás í Tím-
anum á Hallgrím Benediktsson stórkaupmann. Hall-
grímur er gamall glímukappi, en friðsamur og óáleit-
inn. En nú svall honum móður, svo að hann hóf Hall-
dór skáld upp á bringu sér og lagði hann niður afsíðis.
Þá fann Eysteinn til skyldunnar, þar sem hann var orð-
inn æðsti maður kaupfélaganna og sveif á heildsalann,
en fékk sömu útreið. Hvorugur kunni að glíma fyrir
samvinnufélögin. Eru félögin nú á ritvellinum líkt sett
eins og bóndi með ógirt tún, og mun svo verða meðan
skuggakenning Eysteins er í heiðri höfð. Ekki er mál
félaganna tapað, þó að sálmaskáldið og Eysteinn
dugi lítt til harðræða. Samvinnufélögin eru gömul
og gróin. Þau hafa látið verkin tala og þau gera það
enn. Yfirburðir þeirra á verzlunarsviðinu verða nú
þeirra bezta vörn. En raunalegt var fyrir þá, sem muna
upphaf og langa þróun samvinnuhugsjónanna, að sjá
haldið á málstað þeirra af augnaþjónum.
# # #
Gylfi Gíslason hefur beðið Kirkjublaðið að endur-
prenta ósannindi sín um Bessastaði. Ásakar hann húsa-
meistara ríkiseins fyrir að hafa eytt fram úr áætlun
í viðgerð kirkjunnar. Gylfi virðist ekki vita, að æðstu
stjórnarvöld landsins eyða í Bessastaði 5 milljónum úr
ríkissjóði, án þess að leita þingheimildar. Hagfræð-
ingurinn Gylfi er svo fáfróður um þingstjórn, að hann
sér ekki, að hér um er að ræða fágæt þingstjórnar-
mistök, frá hálfu valdhafa landsins. Þegar húsameistari
hefur talið, vegna sparnaðar, að notast mætti við þak
kirkjunnar, þá koma æðstu valdamenn landsins og
heimta nýtt þak, þó að verkið kosti 130 þús. kr. Síðan er
komið með nægilegt fé úr ríkissjóði, og á þann hátt
ferðast milljónirnar, hver af annarri suður yfir Skerja-
fjörð, allar eftir beinum fyrirmælum þjóðarleiðtoganna
og alltaf umvafðar þögn hins málgefna en svefnsæla
fjárhagsmeistara, Gylfa Gíslasonar.
* * *
Fyrir nokkrum vikum var kjörtími minn í banka-
ráði Landsbankans liðinn. Eysteinn vildi komast í sæt-
ið og sagði, eins og um önnur launuð aukastörf, að
hann þyrfti kaupgjaldsins með. Hér voru þó dýpri ráð.