Ófeigur - 15.04.1948, Síða 7
ÖFEIGUR
7
hvað fleiri dyggðum prýddi menn í liði kommúnista
heldur en reyndust vera í Sódóma, á fyrri tíð.
Leið svo vikan í máttlaust þjark um dyggðir eða
ódyggðir borgara og byltingarmanna. Fékk Eysteinn í
þetta sinn nokkurn smjörþef af gerðum sínum. Hann
hefur alla stund síðan 1942, þar til Bjarni Benedikts-
son lyfti honum til sín í ráðherrastól, þráð mest af öllu
að mega vera fóstbróðir Brynjólfs og Áka. I því skyni
hefur hann fórnað miklu af þeim lífsgæðum, sem ekki
eru auðfengin, ef þau einu sinni glatast. Nú mátti hann
beita allri orku til að sanna, að sú lína, sem ég lagði
1923 væri hin eina rétta, og berjast með hörkubrögðum
við félaga sinn úr stefnusvikum og heitrofum síðustu
ára. Fundarmenn utan af landi viðurkenndu, að Her-
mann ætti skilið þunga hegningu fyrir brot sín, en höll-
uðust þó að því, að lofa honum að heita formaður eitt
ár enn, fremur en að víkja honum úr öllum vegtyllum
og úr flokknum. Töldu þeir þetta hættulaust, þar sem
hann hefði ekkert fylgi, hvorki innan þings eða utan, en
hitt mundi þykja vanmáttarmerki, að láta miðstjórnina
yfirlýsa hvílík missmíði væru á ráði hans. Eftir þetta
var samþykkt loðmulluleg ályktun til stuðnings veru
Eysteins og Bjarna með Mbl.-mönnum í ríkisstjórn, og
Hermann endurkosinn formaður, en með ótrú allra,
XI.
Nú byrjaði Vigfús Guðmundsson að koma meira við
sögu, heldur en verið hafði um stund. Meðan hann var
veitingamaður í Borgarnesi var hann jafnfrægur fyrir
umhyggju fyrir gestum sínum og harðfylgi sitt við
flokksmyndun Framsóknarmanna í héraðinu. Var um
langa stund hin harðasta barátta milli hans og Mbl.-
manna og dró hvorugur af sér í sókn eða vörn. Kom
Vigfús svo fyrir sínum málum, að fyrir hans tilverkn-
að, fremur en nokkurs annars eins manns, hefur Mýrar-
sýsla verið Framsóknarkjördæmi. En því betur sem
Vigfús vann fyrir sitt áhugamál var erfiði hans meir
vanþakkað af stórbændum í héraðinu, sem helzt sáust
á ferli þegar björninn hafði verið felldur og tekið að
verzla með skinnið. Vigfús var einkennilegt sambland
af samkeppnis- og samvinnumanni. Hann var hin mesta.
aflakló og útsjónarsamur við þess háttar störf. Jafn-
framt því var hann stórgjöfull vegna sinna áhugamála.