Ófeigur - 15.04.1948, Qupperneq 15
ÖFEIGUR
15
fengið að snerta skóþveng þessa biskups, ef Guðbrand-
ur og Jón Arason hefðu verið uppi samtímis. Eysteinn
svaraði fyrirspuminni greiðlega, en skorti eins og endra-
nær þann skörungsskap, sem „almúgi“ Hermanns vill
finna í landstjórnarmönnum. Hann vildi engu lofa um
að beinunum yrði tafarlaust skilað heim að Hólum. Við
þessa tregðu ráðherrans magnaðist í hugum Skagfirð-
inga ófrávíkjanleg krafa um að beinum þjóðhetjanna
yrði skilað í Hólakirkjugarð.
XXIII.
Eysteinn svaraði líka allýtarlega fyrirspurninni um
tilkostnað við endurreisn Bessastaða. Hafði Sigurði
Jónssyni verið greiddar 122 þús. kr. í sambai\di við
burtför hans af jörðinni. Til vega heim að forseta-
setrinu var varið 300 þús. kr. Alls er búið að eyða úr
ríkissjóði um 5 milljónum kr. í Bessastaði, án heimilda
frá Alþingi. Við þessar umræður missti Hermann stjórn
á skapi sínu og er út af því nokkur saga.
XXIV.
Ég hafði haustið 1946 flutt á þingi tillögu um að
leggja niður flugvöll Reykjavíkur, því að alltaf væri
hætta á slysum í sambandi við flugvöll inni í miðri borg,
og á stríðstímum gæti svo farið, að allur bærinn væri
í hættu af sprengjum, sem stefnt væri að vellinum.
Kringum völlinn eru hitaveitugeymarnir, Shellgeymam-
ir, háskólahverfið, Þjóðminjasafnið, mörg sjúkrahús,
margir skólar, kirkjur og íbúðarhús í hundraða-
tali. Valdamenn landsins hafa daufheyrzt við öllum
aðvörunum í þessu efni, láta augnabliksþægindi fólks,
sem vill fljúga innan lands, sitja fyrir þjóðaröryggi. Mér
var Ijóst, að fyrir utan hættuna sem stafar af flugvell-
inum, mundi kostnaðurinn verða óbærilegur. Hefi ég
í vetur reynt með fyrirspurnum að afla þjóðinni vit-
neskju um tekjuhallann við rekstur þessa fyrirtækis.
Ríkissjóður á hjá einhverjum erlendum mönnum á 7.
milljón kr. fyrir aðstoð við flugferðir um Atlantshaf
norðanvert. Halli á sjálfum flugvellinum getur tæp-
lega orðið minni en ein milljón árlega, fyrir utan gíf-
urlegan tilkostnað við að halda vellinum í flughæfu
standi. Tekjuhalli á gistihúsi, sem Bretar skildu eftir
fullbúið með 80 rúmum og miklum borðbúnaði, er um