Ófeigur - 15.04.1948, Síða 20
20
ÓFEIGUR
höfuðbæ og landi. Hefi ég í því tilefni nokkurn við-
búnað um að hreyfa þeim málum á næsta þingi, ef
Iokun alþingis verður þá ekki komin í framkvæmd.
XXIX.
Gylfi Gíslason hafði gert ráð fyrir, að með árásum
sínum á húsameistara ríkisins fyrir viðgerð Bessa-
staðakirkju og flutning í þjóðminjasafnið á helgigrip-
um, sem búið var í áratugi að klastra saman með ó-
máluðum fjölum og stórum nöglum, gæti hann aukið
hróður sinn sem áhugamanns á þingi. En þetta fór á
aðra leið. Áróður hans vakti hjá fólki áhuga fyrir því
að vita allt um tilkostnað við Bessastaði og ennfremur
hvort málrófið um kirkjugripi, sem ekki mátti færa úr
stað, jafnvel þó að um væri að ræða samtýning og rusl,
væri alvara eða hræsni. Var þess vegna spurt um all-
an tilkostnað við Bessastaði og um óvirðulega meðferð
á jarðneskum leyfum Jóns Arasonar og sona hans.
Kom þá í Ijós, að upp á heimildarlaus meðmæli Her-
manns Jónassonar, var búið að brúka úr ríkissjóði, án
þingheimildar 5 milljónir króna. Auk þess sannaðist á
Guðbrand Jónsson, að hafa tekið ófrjálsri hendi bein
þjóðardýrlinga úr Hólakirkju og haft þau að leikfangi
sínu. Varð Gylfi nú í hinum mestu vandræðum og létu
þeir, sem mesta ábyrgð báru á Bessastaða-tilkostnað-
inum, reiði sína bitna á honum. Sögðu menn, sem satt
var, að Gylfi hefði með málæði sínu orðið til þess að
öll þjóðin vissi nú hluti, sem henni komu við, en átti
að leyna. Þrír menn kunnu verst þessum mála-
lokum. Eru það Guðbrandur, Hermann og Sigurður
Jónasson. Tveir hinir fyrrnefndu höfðu ástæðu til að
hryggjast út af grunnfærni Gylfa. Um Sigurð er það
að segja, að þjóðin var aldrei alveg viss um fyrirkomu-
lagið á gjöf hans, því að frásagnir Hermanns um þau
efni voru með boðorðakeim, en nú er öllum ljóst, að
hér var um að ræða gjöf og verzlun, þar sem Hermann
hefir á verzlunarsviðinu greitt 122 þús. kr. Ef fyrir-
komulagið á þessum viðskiptum hefir verið algerlega
óaðfinnanlegt og sú hlið hefir yfirleitt ekki verið rædd
frá minni hálfu, þá ættu þeir félagar ekki að vera
smeykir við að lofa borgurum landsins að vita alla
málavöxtu. Nú vildi ég ennfremur fylgja málinu eftir
að því er snertir ást þingsins á kirkjugripum. Flutti
'