Ófeigur - 15.04.1948, Page 22
22
ÓFEIGUR
listasafnið. Ráðherranum þótti þar vera kynlegur hlut-
ur á ferð og sendi myndina beina leið inn á ráðherra-
fund. Ríkisstjórnin horfði undrandi á furðuverkið, en
fann að hjálparhellur hennar, þingmennirnir, máttu ekki
fara á mis við þessa sjón. Var einn af vöskustu starfs-
mönnum í stjórnarráðinu sendur með listaverkið ofan
í Alþing. Setti hann málverkið upp á háan skáp í íestr-
arsalnum og blasti það þar vel við sjónum manna.
Inni í þingsal var Gísli hinn sterki að halda höfuð-
ræðu fjárlaganna. Þá kom einn af skörungum þingsins
til mín og gaf mér bendingu um að fylgja sér inn í
lestrarsalinn og benti á myndina. Þótti mér þá, sem
þar væri ljótari fótur Þórarins Nefjúlfssonar, en það
var ljótastur útlimur, sem sögur fara af. Hér gat að
líta nokkur hluta fullorðins kvenmanns. Þar var ekkert
höfuð en neðri hluti af hálsi. Þá kom boiur og stubb-
ar af neðri útlimum, þrír að tölu. Litarfarið á kroppn-
um var líkast og á rjúpu, sem búið er að steikja með
ríkulegri fitu. Óglöggt sást fyrir hægri handlegg og
lá hann nokkuð beygður inn á við, niður eftir búkn-
um. Var þar haldið á grænum vasaklút eða laufblöðum.
Þó að þetta listaverk ætti að tákna part af konu, sáust
þar engin lífsmerki, heldur var líkast því að myndin
væri af illa tilhöggnum steini. Þetta var óvenjulega
Ijótt og leiðinlegt klessumálverk. Valtýr hafði boðið
Nínu Tryggvadóttur að velja sjálf málverk eftir sig,
mjmd, sem hún vildi hafa á listasafni. Hún valdi þetta.
Listakonan velur eftir sínum smekk og er óábyrg. Sök-
in er á menntamálaráði fyrir að láta afvegaleiddar mann-
eskjur velja myndir handa listasafni landsmanna. Nor-
dal mun hafa dregið Þorgeirsbola í þjóðarskútuna með
sama vinnulagi, og eru slík óhöpp til viðvörunar. Til
stóð, að Nína fengi 15 þús. kr. styrk í vinnustofu, eins
og margir Iistamenn hafa fengið, en nú þótti mörgurn
þingmönnum skömmin vera farin að færast upp í bekk-
inn. Þegar tillagan um 15 þúsundin var borin upp, féll
hún með eins atkvæðis rnun. Þessir fylgdu framlag-
inu í klessuverkstæðið: Kommúnistaranir 10, hálfkom-
múnistarnir Barði, Gylfi, Sigurður í Vigur, Gunnar
og Hermann. Frá krötum: Ásgeir, Finnur, Guðm. I.
og Sigurjón. Lokastuðning veittu þrír ráðsettir borg-
arar: Hallgrímur, Helgi og Hlíðar. Er þeirra syndafall
furðulegt.