Ófeigur - 15.04.1948, Qupperneq 25
ÖFEIGUR
25-
bændur, sem ekki fara frá jörðum sínum, segja um
málið. Fálega tóku bændur í Bárðardal Jónasi Har-
alz fyrir tveim árum, er hann vildi eyða byggðina, en
hafa kragabúskap hjá kaupstöðum.
XXXIV.
Kastvindar úr mörgum áttum hrekja skip ríkisstjórn-
arinnnar á úfnum sæ. Styrkur Stefaníu er fólginn í
því að Mbl. menn og sex kratar vilja búa saman og
ráða ríkjum. Stefán Pétursson, Valtýr og Bjarni Bene-
diktsson prédika strangt móti bolsivikum, svo að nú
eru reittar af þeim flestar f jaðrir, en þetta hindrar þó
ekki Sigurð í Vigur frá að stýra Isaf jarðarkaupstað
með kommúnistum — og krata í Vestmanneyjum frá
samskonar athæfi þar í bæ. Framsókn er nokkuð ut-
anveltu í sambýlinu, bæði vegna kjördæmaýfinga við
marga sjálfstæðismenn og þó einkum sökum beiskju
Hermanns við Ólaf. Eftir vesturför þeirra á þing sam-
einuðu þjóðanna, virðist Hermanni hafa komið til hug-
ar að þeir Ólafur ættu að koma á ráðherra-byltingu
og setjast saman í hástóla að nýju. Boðorðagreinin
er skiljanleg í því sambandi að því er snertir viðhorfið
til Stefaníu sér í lagi og til Eysteins. Ólafur sýnist
hafa verið lítt móttækilegur fyrir þessa hugsjón. Færð-
ist Hermann þá í aukana að nýju og spjó eimyrju um
stund. Vill hann með því móti hrella í einu Stefán og
Ólaf og þó einkum Eystein. Bitna illindi Mbl. og Tím-
ans mest á honum, því að hann er þar eins og Magn-
ús Stephensen sagði um sjálfan sig, líkt settur og
lús milli tveggja nagla. Síminnkandi álit kommúnista
bæði úti í löndum og á íslandi er bjarghringur Stef-
aníu. Borgarflokkarnir þrír verða að vinna saman, en
þá skortir þann stuðning, sem sprettur af samhug, skiln-
ingi og áhuga fólksins, sem á að njóta verka þeirra.