Ófeigur - 15.04.1948, Page 28
28
ÓFEIGUR
sér. Kom hann enn með kommúnista og „gistivini“, vel
skipulagða, og felldi Jakob. Naut Jakob í þetta sinn
hvorki ótvíræðra yfirburða sinna eða þess, að hafa í
pólitískum málum leyft Eysteini að hafa forystuna, þar
sem hann var þó ekki vandanum vaxinn.
Eysteinn Jónsson hefir verið slysinn maður í sam-
vinnumálum. Stafa óhöpp hans flest af tilbeiðslu hans
á kommúnistum. Árið 1938 deildi hann með Jóni sýslu-
manni Borgfirðinga og Ragnari Ólafssyni lögfræðing,
fast á Jón Ivarsson fyrir að hika við að sleppa ábyrgð-
arlausum mönnum inn í kaupfélög, þar sem slíkir menn
gerðu sig líklega til að skaða félagsheildina. Ekki grun-
aði Eystein eða sýslumann þá, að Brynjólfur Bjarna-
son mundi smala af götum Reykjavíkur úrgangslýð til
að hrekja Eystein og nánustu félaga hans öfuga út úr
Kron. Annað óhappaspor Eysteins á sömu braut var
að leggja myndarlegt borgaralegt kaupfélag með trygg-
um félagsmönnum og miklum sjóðum undir veldi bolsi-
vika í Kron. Síðan ól Eysteinn snák kommúnista við
brjóst sér árum saman, með höfðatölureglunni. Þegar
kommúnistar gátu ekki misnotað trúgirni hans leng-
ur, var hann sendur með allt sitt lið í útlegð úr Kron
og félagið gert að höfuðvirki byltingarmanna í Reykja-
vík. Síðasta samvinnuverk Eysteins var að semja 1941
—42 við Mbl.-menn um að heimila stríðsgróðaskatt á
viðskipti félagsmanna við þeirra eigin félag. 1 áfram-
haldi af því óhappi eru samvinnufélögin nú skattpínd
með veltuskatt. á félagsmannaverzlun.
* #
Ólafi Thors þykir svo vænt um Eimskip, að hann bæg-
ir frá því sköttum, sem Eysteinn er fús að leggja
á kaupfélögin. Eimskip slapp við öll áföll 1941—42 og
veltuskattinn í vetur. Sumir halda ennfremur fram, að
félagsmenn hafi ekki þurft að sýna hlutabréfin við
eignakönnun, en sú mildi er ótrúleg. Ef Eysteini hefði
tekið sárt til samvinnufélaganna, mundi hann hafa beitt
sér, leynt og ljóst fyrir því, að þau væru ekki svift þeim
réttindum, sem þeim ber, réttindum, sem við Hallgrím-
ur Kristinsson fengum viðurkennd 1921. Hirðuleysi
Hermanns og Eysteins í þessum efnum er án fordæma.