Ófeigur - 15.04.1948, Page 32

Ófeigur - 15.04.1948, Page 32
32 ÓFEIGUR að eitt sinn þegar Sigurður kom heim úr ferð til bænda, var búið að loka fyrir honum skrifstofu hans og setja hann frá embætti. Sigurður er hinn glæsilegasti brautryðjandi í skógrækt og túnrækt hér á landi. Þeg- ar hann var búinn að koma á jarðræktarlögunum 1923, var lífsnauðsyn fyrir bændastéttina að fá tilbúinn á- burð. Sigurður reyndi að láta Búnaðarfélag Islands og kaupfélögin verzla með áburðinn, en hvorugur að- ilinn gat þá leyst þessa raun. Sigurður lét sér þá vel líka, að kaupmaður í Reykjavík hóf þessa verzlun. Óvin- ir hans sóttu hann til sektar fyrir að hafa ráðið svo stórmannlega fram úr ræktunarmálum bænda. Eftir nokkra stund buðu andstæðingamir Sigurði sættir, þeg- ar þeir sáu fyrir vissan ósigur. Skyldu málskjölin geymd í 20 ár í hólfi í banka, og hefði maður í bankanum ann- an lykil af tveim. Nýverið var tími til kominn að opna hólfið, en það var þá tómt. Óvildarmenn Sigurðar hafa aldrei látið skjölin í hólfið, og var það hæfileg enda- lykt á sókn þeirra. Ræktunarlögin og barátta Sigurð- ar fyrir notkun tilbúins áburðar í stórum stíl, er ein- hver mesta búnaðarframför hér á landi. Mun vegur Sigurðar vaxa því meir sem aldir líða. Slík afrek leiða nálega óhjákvæmilega til píslarvættisdauða í barátt- unni við undirstrauma mannfélagsins. # # # „Gistivinir“ Framsóknar vildu óvægir koma sér upp dagblaði og gerðu það. En þegar blaðið var fengið, höfðu gistivinirnir ekkert að segja eða skrifa, og mis- jafnt gengið með hjúahaldið. Ekki er vitað að Her- mann hafi skrifað í hinn stækkaða Tíma neitt, sem máli skiptir, nema hin umtöluðu 28 boðorð. Afgreiðalum.: Helgi Lárusson, Vesturg. 5, Reykjavík. Sími 5677. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson, frá Hriflu. Prentað í Steindórsprenti h.f., Tjamargötu 4, Reykjavik.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.