Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 2
2
ÓFEIGUR
skörungum íhaldsmanna, sem áður þóttu ófærir til
allrar samvinnu. Hafði Eysteinn látið kveða svo fast
að orði um spillingu Jóhanns í Eyjum, dagana áður
en þeir settust á sameiginlegan ráðherrabekk, að ef
satt hefði verið, mátti teljast óhugsandi fyrir sóma-
kæran mann, að samneyta svo illa tömdum syndara.
En Eysteinn var mjög ánægður yfir hægristjórn með
Bjarna og Jóhanni og byrjaði sem ráðherra að tala
mjög illa um sína gömlu vini, kommúnistana. Her-
mann undi illa sínum hlut. Deildi hann fast á Mbl.-
menn og á þá félaga sína sem komnir voru í flatsæng
með íhaldi. Að sjálfsögðu hélt hann enn í hönd með
kommúnistum. Sat H. J. hjá þegar samþykkt var þátt-
taka í Atlantshafsbandalaginu og hafði með fylgi sínu
í Þjóðvörn deyfandi áhrif á Eystein að því leyti sem
hann dróst til játunar við vestrænt samstarf. Eftir kosn-
ingar 1949 gafst Hermann upp á vinstri stjórnarlín-
unni. Hafði hann þá beðið átta ár á eyðimörk valda-
streitunnar. Kastaði hann nú frá sér öllum vopnum
og féll í faðm Ólafs Thors, upp á þær spítur, að mega
heita ráðherra. Hann gleymdi öllum áfellisdómum um
sviksemi hans, eiðrof og öllum hinum endurteknu mann-
skemmdum um Ólaf. Hermann gaf með sér allan
eignaaukaskattinn, sem Eysteinn hafði lagt svo mikla
áherzlu á að koma inn í lögbókina. Eftir átta ára vill-
ur stóð Hermann nú þar sem ég reyndi að fjötra
hann niður vorið 1942 til að afstýra dýrtíð, skaðlegri
stjórnlagabreytingu og hruni. Hermann og Eysteinn
eiga þyngsta sök á baki um ófarnað undangenginna
átta ára.
Hver myndaði stjórn Steingríms Steinþórssonar, eftir
missirislangar hörmungar Alþingis? Forsetinn á Bessa-
stöðum bað Vilhjálm Þór að mynda stjórn. Hann virð-
ist hafa náð í skipshöfn á stuttum tíma. Meðan k
þessu stóð, biðu Ólafur og Hermann í því ástandi sem
Laxness kallar ,,ofvæni“, vonandi, að engill frá himn-
um kæmi þeim til bjargar. Ólafur reyndist meiri hetja.
og sendi traustan sveitaþingmann til að vita hvort afl-
raunakappi Framsóknar væri viðmælandi um ráðherra-
stöðu. Hermann tók sendimanni með sviplíku brosi
eins og kona, sem sér biðil sinn nálgast eftir manns-
aldurs umþenkingar. Ólafur gerir nú tvennt í senn: