Ófeigur - 15.12.1950, Side 8
8
ÖFEIGUR
liðaatkvæði á kjördegi. Framsóknarmennina taldi hann
einsætt að fá til brautargengis með snúningum við
lántökur og sölu á kálfsbjórum, lambsfeldum og sel-
skinnum. Gerðu Hermann og Páll nú samband móti
Bjarna og fylgdu í því efni rússneskum undirróðurs-
fyrirmyndum. Einn af starfsmönnum félagsins gekk
með skjal milli starfsmannanna og bað þá að afsegja
formann félagsins þar sem hann vantaði þann lærdóm 4
og atorku, sem framkvæmdastjórinn þyrfti að hafa.
Skrifuðu flestir undir þennan furðulega áfellisdóm,
nema Páll, sem átti að erfa konungsríkið. Bjarni hafði lít-
inn viðnámsþrótt til að rísa gegn þessu ofurefli og
veltist úr völdunum. Greip Páll þá tækifærið og fékk
mág sinn, Jón í Deildartungu, og Þorstein á Vatns-
leysu, samsektarmenn sína um ráðstöfun 8 milljóna
af fé bænda haustið 1944, til að veita hinum fræga
föður karakulinnflutningsins forystustarf á vegum ís-
lenzkra bænda. Hermann taldi Pál Zoph. mestan verð-
leikamann, næst sér, til að vera liðsoddur hinna dreifðu
bænda. Auk þess gat hann sagt við Bjarna eins og
hispursmey við fornan glímuakappa sem beit leiknauta
sína á barkann að leikslokum: „Hvað viltu, sveinn, í *
sess minn?“ Bjami hafði nú fengið allþunga ráðningu
fyrir að leyfa sér að setjast í sæti, sem annar þóttist
eiga með réttum erfðalögum.
Ef Guðmundur bóndi á Hofi hefði stýrt búnaðar-
málum Islands eftir að óþurrkar fóru að herja á land-
ið í sumar, hefði hann ekki látið Bjarna sigla til að
skoða kolanámur Breta. Hermann hefði heldur ekki
fengið leyfi til að sólbaka sig í Rínardalnum eða Páll
Zoph. að snúast milli banka í Reykjavík með fram-
lengingarvíxla. I stað þess hefði Guðmundur sagt: Ég
hefi bjargað heyfeng mínum í vondum sumrum með
stöðugri árvekni, með því að nota yfirbreiðslur og
grípa hverja stund til að þoka heybjörguninni eitt ^
skref áfram, en fylla að öðru leyti votheyshlöðumar
með því, sem ekki var reynt að þurrka. Guðmundur
á Hofi mundi hafa talað í útvarp um langa reynslu
sína og annarra bænda á óþurrkasvæðum í vondum
sumrum. Hann mundi hafa gefið þeim vonbitnu von.
Hann mundi hafa sent allan ráðunautaskaran í ó-
þurrkahéruðin til að standa fyrir byggingu á votheys-
*