Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 11
ÖFEIGUR
11
á ræktun ferskvatnsfiska. Leit út fyrir að þessi „vís-
indi“ mundu halda áfram eins og tilraunastarfsemi
Löves, ef hin æðri máttarvöld hefðu ekki tekið í taum-
ana og reynt að bæta úr yfirsjónum búnaðarforkólfanna.
#
Þór Guðjónsson hafði, á vegum svefnsækinnar rík-
isstjórnar horft á svil og seiði ferskvatnsfiska í skrif-
stofu sinni í nokkur missiri, þegar honum tæmdist
miljónaarfur í Danmörku. Var nú úr vöndu að ráða.
Eysteinn Jónsson og ýmsir samstarfsmenn hans hafa
gert skattalögin svo úr garði, að fjármagn er útlægt
úr eigu einstaklinga á íslandi, nema í höndum snjallra
sjónhverfingamanna. Varð hinum unga laxafræðingi
strax fullljóst, að ef hann flytti fjármagn sitt heim
til ættjarðarinnar, hyrfi það undir eins í gapandi gjá
ríkLsjóðs.Sá hann þann kost vænstan, að hætta „vís-
inda“starfsemi sinni hér á landi, en hverfa til Dan-
merkur og gæta þar milljónaarfsins. Bjarna Ásgeirs-
syni þóttu þetta ógeðfelld tíðindi, að missa með þess-
um hætti starfsmann, sem var honum mjög að skapi.
Varð það nú að samkomulagi milli Bjarna sem æðsta
manns búnaðarmála hér á landi, og Þórs Guðjóns-
sonar, að hann skyldi koma í sumarleyfi sínu frá arf-
gæzlu í Danmörku og halda áfram „vísindalegri“ klak-
stjórn fyrir Islendinga. Kom Þór hingað til lands í
sumarleyfinu og gat notað kaup sitt hér sem erlend-
ur ferðamaður. Ekki gerði hann ferskvatnsfiskunum
gagn eða mein með heimsókn sinni. Þótti Hermanni
Ijúft að feta í þessu máli, eins og í mörgu öðru, í
spor hins skörulega fyrirrennara.
Ólafi á Hellulandi þótti nú vera ástæða til að spyrja
þing og stjórn hvort ekki væri tiltækilegt, að hann
starfaði, þar til nýr lærdómsmaður kæmi, við að halda
áfram fyrra verki sínu, bæði við ræktun ferskvatns-
fiska og æðarfugla. Taldi hann sig geta sinnt báðum
þessum málum fyrir lítið brot af þeim tilkostnaði, sem
ríkið hafði haft af hinum auðuga erfingja. Ekki þótti
þinginu í vetur, eða Hermanni, þetta tiltækilegt. Létu
leiknautar aflraunakappans svo um mælt, að Ólafur
hefði aldrei viljað leggja gott orð til bolsivika, meðan
sú ferskvatnsfiskaræktun var stunduð, og skyldi hann
gjalda þeirrar þverúðar. Liggur öll umhyggja fyrir