Ófeigur - 15.12.1950, Page 13
ÓFEIGUR
13
hefur hann glatt mörg hjörtu með snjöllum kveðling-
um og gert uppeldismálunum gagn með því að búa
til orðið „héraðsskóli“. Eitt sinn fyrir kosningar kom
E. E. gegnum þingið tveimur allfrægum pappírslög-
um. Skyldi reisa bændaskóla í Skálholti og leggja veg
fyrir 25 milljónir gegnum Þrengslin á Hellisheiði. Fyr-
ir skömmu fékk Eiríkur ellefu þingmenn með sér til
að flytja tllögu um lántöku í veginn. En þrátt fyrir
þennan mannafla komst málið ekki gegnum nefnd,
hvað þá meira. Þó að tillagan hefði verið samþykkt,
mundi ekki hafa verið unnt að fá nokkurt lán til verks-
ins. Var hér um tiltölulega saklausar kjósendaveið-
ar að ræða. Með Skálholt gekk öllu betur. Eftir miki-
ar hörmungar hafði stjórnin látið gera teikningu af
stórhýsi í Skálholti, sem kosta mundi um fimm milljón-
ir kr. En með rafleiðslum og löngum leiðslum fyrir
heitt vatn og kalt, með sterkum dæluútbúnaði til að
lyfta vatninu í háar hæðir, með nægilegri ræktun, kenn-
arabústöðum, útihúsum og bústofni hefði skólinn upp-
kominn varla getað kostað minna en tólf milljónir
króna. Þegar þessi löggjöf var sett, var aðsókn ekki
meiri að gömlu bændaskólunum en svo, að þar voru að
jafnaði allmörg sæti auð. Enginn áhugi var í héraði
fyrir þessari framkvæmd og enn minni á Alþingi. Hins-
vegar var stjórnarfarinu þann veg háttað, að vel þótti
viðunandi að samþykkja bæði veginn og skólann fyrir
mann ,sem var bæði persónulego vinsæll og eitt hið
bezta gamanvísnaskáld í landinu.
*
Eiríkur vildi láta hendur standa fram úr ermum og
knúði fast á stjórnarvöldin um teikningar og fé til
framkvæmda. Var eitt sinn sett milljón króna á fjár-
lög í þessu skyni. En mjög hefur lítið komið fyrir
framlögin í Skálholt. Skólastaður var ákveðinn á kletta-
hæð suður og vestur í bithaganum, 2—3 km. frá hin-
um fornfræga stað. Þangað hefur verið lögð álma af
Skálholtsvegi, breiður og dýr vegur, sem er þó ekki
fullgerður nema að nokkru leyti. Lítið eitt var ræst
fram með skurðgröfu heim undir túni. Hús Jörundar
Brynjólfssonar voru keypt, eftir mati á hússkrokkum
í Reykjavík, fyrir meir en 200 þús. kr. Loks var keypt-
ur bústofn og hafinn ríkisbúskapur í Skálholti. Skóla-
stjóri var settur til að hafa yfirumsjón með öllum