Ófeigur - 15.12.1950, Blaðsíða 14
14
ÓFEIGUR
framkvæmdum við skólabyggingu. Mun hann hafa ver-
ið á hálfum launum um mörg undanfarin ár. Túnið
var í góðri rækt og hirðingu, þegar ríkið tók við jörð-
inni, en í ríkisbúskapnum gekk flest ver en vera skyldi
og mátti segja að Bjarni Ásgeirsson hafði á öllum
vígvöllmn litla sæmd og ánægju af sínum Kaldaðar-
nesframkvæmdum. Að lokum var sýnilegt, að mik-
ið vatn mundi renna í Hvítá fram hjá Vörðufelli, áð-
ur en skólinn yrði byggður. Var þá tekið til bragðs
að leigja xmgum bónda jörðina með þeim bústofni, sem
eftir lifði. Mun kominn röskur bóndi, sem leiguliði, þar
sem Jörundur hætti. En staðurinn er enn sem fyrr í
fullkominni niðurlægingu, svo að raun er þangað að
koma. Hefði mátt endurskapa staðinn, svo að hann
hefði verið sýnandi innlendum og útlendum gestum
fyrir það mikla fjármagn, sem hefur verið eytt til
verra en einkis í því fávíslega og vanhugsaða brölti,
sem nú hefur verið frá sagt.
*
Síðasta fjárveiting, sem ég stóð að á Alþingi, voru
15 þús. kr. til að reisa á aftökustað Jóns Arasonar
og sona hans minnismerki Einars Jónssanar um þessa
þjóðhetju. Slíkt verk verður ekki steypt úr eir hér
á landi, en hingað til hefur fé verið ófáanlegt til því-
líkra útláta erlendis. Ríkisstjórnin mun hafa afhent
biskupi fé þetta til geymslu þar til unnt er að reisa
minnismerkið. Gert var ráð fyrir, að hér væri um að
ræða fyrri hluta fjárveitingar. Væri ánægjulegt, ef
þetta ágæta listaverk gæti á sínum tíma orðið til fegr-
unar í Skálholti, þegar byrjað er að reisa þann stað
úr rústum. Þjóðin hefur búið sæmilega að þrem sögu-
stöðum: Þingvöllum, Hólum og Reykholti. Byrjað er
með nokkrum stórhug á Staðarfelli og Reykhólum. Víða
þarf við að koma. Enn er lítt sinnt Helgafelli, Borg á
Mýrum, Geysi og Odda á Rangárvöllum. Skal hér vik-
ið að Odda. Þar eru margar glæsilegar minningar og
mikil náttúrufegurð. Rís hár og fagurgerður hvoll yfir
sléttuna og er Gammabrekka efsti staður á hvolnum.
Þaðan hefur Snorri Sturluson oft horft yfir Suðurland,.
meðan hann var ungmenni, en Matthías á efri árum.
Hvammur mikill er austan í hvolnum, gegnt Eyjaf jalla-
jökli, og er þar bærinn og kirkjan. Ekki er sýnilegt,
að um geti verið að ræða nokkra almannastofnun í