Ófeigur - 15.12.1950, Page 17
ÓFEIGUR
17
ástæðum mátti færasti maðurinn sem völ var á ekki
vinna fyrir landið og þjóðina í Landsbankanum. Og
Jónas Guðmundsson var fundinn sekur fyrir flokks-
dómi af því að hann hafði séð rétt og breytt skynsam-
lega, þegar flokkur hans vann sér til dómsfellis, sem
ekki gleymist meðan þessa atburðar verður minnst.
*
* Krataflokkurinn valdi Kjartan Ólafsson í Hafnar-
firði í hið auða sæti Jónasar Guðmundssonar. Hann
hafði að baki sér langa og heiðarlega starfssögu í
þágu Alþýðuflokksins og Hafnarfjarðarbæjar. Hann
var einn af þeim f jórum stórmerkilegu leiðtogum verka-
lýðsins, sem hafa gert þennan bæ að fyrirmyndarsetri
alþýðusamtakanna hér á landi. Mátti að því er snertir
manninn og verðleika hans segja, að vel væri ráðið fram-
úr máli, sem illa var hafið af skammsýnum leiðtogum.
Gekk nú allt vel og friðsamlega um stund þar til kjósa
skyldi í næsta sinn tryggingaráð. Flokkurinn ákvað þá að
fella Kjartan, því að þegar hér var komið sögu hafði
Magnús sonur hans tekið að ritstjórn Þjóðviljans og
sótt fast að krötum. Sonurinn átti vissulega 'lítið gott
skilið fyrir sína frammistöðu en faðir hans var einn
af brautryðjendum Alþýðuflokksins og voru verðleikar
hans þar óvefengjanlegir. Jafnframt þessu átti að fella
Kjartan úr tryggingarráðinu með samkosningu Mbl.
manna og krata. En sú kosning stóð svo glöggt, að ekki
mátti á skorta svo mikið sem eitt atkvæði, ef unnt átti
að vera að koma öðrum krata að. Annars féll beinið
til Framsóknarþingmanns. Þegar dró nærri kosningu
tilkynnti Lárus Jóhannesson, að hann mundi ekki
kjósa til að fella Kjartan, sem hann þekkti að góðu
einu og fuílkomnum myndarskap. Urðu nú um stund
sviftingar bak við flokkstjöldin en þeim lauk á þann
veg, að alþýðan vildi enn síður láta þessar ,,kjarabætur‘‘
^ koma til alóverðugra Framsóknarmanna heldur en krata,
sem stóð að brotlegum syni. Var Kjartan með fáum
góðum fyrirbænum settur á lista og kosinn í trygging-
arráðið. En brátt kom að bankaráðinu Finnur Jónsson
telur sig líklegt bankastjóraefni en getur eftir atvikum
sætt sig við bankaráð. Náði hann því sæti með fylgi
Framsóknarmanna. En þá gerðust Blátumsundrin því
að Kjartan Ólafsson sigldi hraðbyri inn í sín fyrri
metorð en í þetta sinn úr öðru sæti á lista íhaldsins.
4