Ófeigur - 15.12.1950, Page 19
ÖFEIGUR
19
um. Þegar Eysteinn varð var við þessa málaleitun
stallbróður síns lét hann þar við sitja um Sigurð og
Vilhjálm. Taldi auk þess nokkra hættu fyrir sig að
hefja á þessu stigi málsins opinbera styrjöld við for-
mann og forstjóra Sambandsins. En um Jón Árnason
þótti honum bezt að fylgja gömlu heilræði um annan
Skagfirðing og láta öxi og jörð geyma bankastjórann
á flokkslegum vettvangi. Féll Jón Árnason frá áhrifum
í Framsóknarflokknum sökum undirróðurs frá hálfu
Eysteins. Fór Eysteinn þá hinu sama fram gegn Jóni
Árnasyni, sem stjórnmálamanni eins og hann hefur áður
tamið sér í Sambandinu þar sem hann hefir sótt að
hreinsa þaðan burtu sér til metorða Jón ívarsson, Vil-
lijálm Þór, Jakob Frímannsson og Sigurð Kristinsson.
Þessi hreinsun Eysteins Jónssonar var því eftirminni-
legri sökum þess, að í stað Jóns kom inn í miðstjórnina
og með lang hæstum atkvæðafjölda, unglingspiltur af
skrifstofu í Reykjavík. Var öll þessi kosning táknræn
um andlegt ástand Framsóknarflokksins þar sem hinir
andlegu öreigar stóðu fyrir öfugu úrvali allstaðar þar
sem því má við koma. Geta Framsóknarmenn, sem gold-
ið hafa jáyrði niðurlægingu flokksins, séð ávöxt verka
sinna í sparisjóðsbókum sínum og kaupfélagsreikning-
um þar sem aðstaða krónunnar til punds og dollara
koma beint inn á heimilin til að sanna fólkinu hvaða af-
leiðingar fylgja glæpsku eins og þeirri að setja fá-
kunnandi pilt til úrræða í staðinn fyrir einhvern snjall-
asta framkvæmdamann aldarinnar.
*
- Fjárskiftin í Mýrarsýslu eru orðin að hættulegu af-
glapamáli. Sverrir í Hvammi hefir haft forystu um
skiftamálin í héraðinu og mist allt úr böndunum. Hann
lét sækja líflömb í flugvélum austur í Öræfi og var það
dýr útgerð fyrir ríkissjóð. Eftir að nýtt fé var komið
í héraðið urðu menn varir við að kindur streymdu úr
afréttinni í flestum eða öllum hreppum sýslunnar.
Blandaðist þetta fé saman við heilbrigðar, aðkomnar
kindur. Var gerð hver leit af annari eftir heimafé, og
fundust í einni sveit nokkrar kindur í f jórðu leit. Bar
einna fyrst á samruna þessa fjár í Hvammi. Var hald-
in réttarrannsókn í málinu og sannaðist að heimafé og
aðkomukindur höfðu verið saman bæði í Hvammi og
á fleiri bæjum. Einn bóndi, Kjartan í Einholti, sem átti