Ófeigur - 15.12.1950, Side 22
22
ÖFEIGUR
stórmannlega. En um þetta leyti þóttist Löve hafa
fengið sambönd í Winnipeg og vera fastráðinn þar
til ,,vísindastarfsemi“ við háskólann. Sagði hann nú upp
embætti sínu við íslenzka „vísindastarfsemi" og bjóst
til að hrista af fótum sér ryk 'íslenzkrar sannleiksleit-
ar. En þegar til kom, varð ekkert hjónaband úr þess-
ari skynditrúlofun við amerísk náttúruvísindi. Háskól-
inn í Winnipeg hefur að líkindum látið sér hægt, en
hitt var þó enn verra, að þegar kom að vegabréfinu,
báru öll vitni, að Löve væri rammur kommúnisti. Að
vísu hafði hann gengið í Framsóknarflokkinn meðan
Eysteinn stýrði menntamálunum, en gekk strax af
þeirri trú um leið og annar ráðherra tók við. Hefur
kommúnisminn í þetta sinn orðið sanntrúaðri sál f jöt-
ur um fót. Veit Löve nú tæplega hvar hann á að slá
sínum „vísindalegu“ landtjöldum. Hann ætti að heim-
sækja vini sína austan við járntjaldið og vera þar alla
sína daga.
*
Enginn íslendingur hefur fengið jafnvirðulega útför
eins og Jón Arason. Fjölmenn fylking Skagfirðinga
fór suður að Skálholti á erfiðum árstíma, gróf upp lík-
ami biskups og sona hans, ók þeim lítt til höfðum úr
höndum böðuls og moldar að Laugarvatni, lauguðu þar
hinar jarðnnesku leifar þjóðhetjanna, og héldu svo á-
fram yfir hálft iandið undir hátíðlegum hringingum
allra kirkjuklukkna, unz komið var norður í sjálfan
Skagaf jörð. Þá hringdi hin volduga höfuðklukka á Hól-
um svo ákaflega, að hún sprakk. Þjóðin sýndi í þess-
um aðförum öllum, hve mjög hún virti og mat hetju-
skap þeirra feðga og harmaði örlög þeirra. Síðan voru
þeir frændur jarðsettir heima á Hólum við dómkirkj-
una. Varð sókn jarðneskra leifa þeirra feðga og út-
för þeirra gerð með meiri stórhug en tíðkazt hefur
við nokkra aðra jarðarför hér á landi. Vandamenn og
vinir þeirra feðga sýndu í verki svo að ekki verður um
villzt, að Hólar í Hjaltadal voru sá staður þar sem
bein þjóðhetjanna áttu að hvíla í mold þess dals, sem
var svo nátengdur frægð þeirra og fórnardauða. Nú
liðu nokkrar aldir svo, að engum manni kom til hugar
að raska grafarró Hólafeðga.
Fyrir hér um bil 30 árum tók maður að nafni Guð-