Ófeigur - 15.12.1950, Page 25
ÖFEIGUR
25
kunnur utan héraðs síns; fram með þá tillögu að reisa
Jóni biskupi Arasjmi véglegt minnismerki á Hólum á
dánarafmælinu. Var þessu vel tekið. Annar bóndi í
Skagafirði, Ólafur Sigurðsson á Hellulandi, fann ráð
til að leysa framkvæmdarvandann með því að selja
merki með mynd af Hólakirkju, allstaðar þar sem kaup-
endur fundust. Sigurður Guðmundsson húsameistari
lagði til að reistur væri við Hólakirkju minningarturn
til heiðurs biskupi og sonum hans. Er slík turnagerð
allalgeng í Suðurlöndum. Margskonar erfiðleikar voru
við framkvæmd verksins. Peningar voru að vísu nægir
vegna merkjasölunnar, en þá skorti leyfi fyrir bygg-
mgarefni. Auk þess risu menn í Hólasókn upp og mót-
mæltu því, að turninn mætti vera þar sem hann fór
bezt við kirkjuna, af því að í þeim bletti mundu vera
gamlar kistur vandamanna, sem ekki mætti færa til.
Kom málið fyrir Eystein, sem þá var kirkjumálaráð-
herra, og skyldi hann úrskurða um tumstæðið. Hann
lét rannsaka kjósendahlið málsins og fékk þau svör, að
þrjár persónur, sem að jafnaði fylgdu valdastreitu þessa
ráðherra við þingkosningar, kynnu að flytjast yfir til
Öalfs Thors, ef tekið væri tillit til sæmdar þjóðarinn-
ar og viðunandi listaþroska. Varð húsameistarinn að
hrekjast með turninn í svo mikla fjarlægð frá kirkj-
unni, að ekki eru fordæmi til um jafn ömurlega tilhög-
un. Hinsvegar er talið, að turninn sjálfur sé til prýði
á staðnum, nema að því er snertir staðsetninguna.
*
Þegar Sigurgeir Sigurðsson biskup sá, að ekki var
til neins að ákalla landstjórnina til verndar heigum sögu-
legum minningum, sneri hann sér til kaþólska bisk-
upsins í Landakoti, Jóhannesar Gunnarssonar. Komst
herra Sigurgeir þá að þeirri niðurstöðu, að Jóhannes
Hólabiskup virtist ekki líta svo á, að hann eða kirkja
hans hefði nokkurn eignarrétt á feng Guðbrandar Jóns-
sonar, og að hann mundi líklegur til að afhenda bein
þeiyra feðga, ef þess væri óskað af Skagfirðingum eða.
íslenzku kirkjunni. Engu að síður vildi Sigurgeir bisk-
up enn sem fyrr láta valdsmenn ríkisins bæta úr sjálf-
tekt hins furðulega bráðabirgðahandhafa hinna helgu
dóma, og sneri sér enn til ríkisstjórnarinnar. Var Her-
mann Jónasson fyrir svörum og veitti fyrir sitt leyti
seint í vor leyfi til að beinunum yrð skilað að Hólum