Ófeigur - 15.12.1950, Side 26
26
ÖFEIGUR
áður en turn Jóns Arasonar yrði vígður nú í sumar.
Að líkindum hefur Hermann ekki viljað að hátt yrði
haft um þetta mál, því að milli hans og Guðbrandar
hefur lengi verið nákominn andlegur félagsskapur. Þótti
þeim báðum mikið koma til Hitlers og stjórnarstefnu
hans og spáðu hersveitum nazista sigurs, meðan nokk-
urar vonir stóðu til. Hermann hafði ennfremur feng-
ið Guðbrand til að rita á kostnað ríkisins bók um lög-
regluna í Reykjavík með fjölmörgum myndum af mestu
mönnum í þeirri sveit. En ekki tókst betur til en svo,
að Guðbrandur gleymdi með öllu þeirri þýðingarmiklu
löggjöf, sem breytti varðliði Reykjavíkur úr niður-
bældu flóttaliði í aumu hreysi í þá virðulegu sveit, sem
nú er bænum til gagns og sæmdar. Hefur þessi sagna-
ritun þann ókost, að tilkoma Hermanns í lögregluna
verður með þessu móti næstum yfirnáttúrleg, því að
hann svífur þar í lausu lofti í fullkominni mótsögn
við kunn lögmál náttúrunnar, og skilur enginn af bók
Guðbrandar, með hvaða hætti aflraunakappinn er kom-
inn inn í hið virðulega mannfélag.
Aðstaða Sigurgeirs biskups var nú hin erfiðasta.
Hann átti að vígja minnismerki Jóns Arasonar á Hól-
um í augsýn alþjóðar. Jafnframt virtist hann fá tæki-
færi til að bæta um leið úr þeirri þjóðarforsmán, sem
leiddi af hinum leynilegu helgispjöllum í Hólakrkju-
garði, — þar sem Guðbrandur hafði leikið list sína án
nokkurrar siðlegrar heimildar frá þjóðfélaginu. Eftir
eðli málsins mátti telja sjálfsagt, að flytja jarðnesk-
ar leifar píslarvotta íslenzks sjálfstæðis í hinn virðu-
lega turn, sem reistur var þeim til heiðurs af allri
þjóðinni. Þá mátti segja, að turninn hefði óumdeild-
an tilgang. En svo var ekki; biskup lét senda jarð-
neskar leifar þeirra feðga norður að Hólum í vönd-
uðum kistum, undir eftirliti fulltrúa fornmenjavarðar
og öruggs gæzlumanns. Síðan fól hann prófasti Skag-
firðinga að grafa kisturnar í Hólakirkjugarði, á þeim
stað þar sem Guðbrandur hafði rasl^að grafarrónni.
» #
Biskup var eini fasti starfsmaður þjóðarinnar, sem
hafði frá upphafi biskupstignar sinnar gert allt, sem
í hans valdi stóð til að bæta fyrir það óvirðulega brot
á mannfélagstrúnaði, sem Guðbrandur hafði framið.