Ófeigur - 15.12.1950, Síða 29
ÓFEIGTJR
29
Kaflar úr ritgerö um
landhelgisgœzlu og strandferðir.
i.
Þingmenn og ráðherrar misskilja hina merkilegu
þróim siglingamálanna.
Á árabilinu 1944—48 fluttu nokkrir ungir þingmenn
úr sjávarkjördæmum þingsályktanir, sem miðuðu að
því að gerbreyta skipulagi og framkvæmd landhelgis-
gæzlunnar. Þeir, sem stóðu fyrir þessu verki, voru Sig-
urður Bjarnason, þingmaður Norður-ísfirðinga, Gunn-
ar Thoroddsen, þingmaður Snæfellinga, og Jóhann Haf-
steni, þingmaður Reykvíkinga. f fyrsta sinn síðan 1930
var í þessum tillögum lögð megináherzla á, að aðskilja
yfirstjóm landhelgisgæzlu og strandsiglinga og jafn-
framt að flytja daglega og tæknilega framkvæmd land-
helgisgæzlunnar í dómsmálaráðuneytið. Með því að
ég taldi þessar tillögur hrein og bein skemmdarverk
og mjög gæta ókunnugleika hjá flutningsmönnum á
þessu máli öllu, beitti ég mér jafnan á þingi gegn
hreytingum þeim, sem hér voru ráðgerðar. Voru marg-
ir þingmenn mér samdóma um þetta efni, svo að sókn
þremenninganna hefur ekki enn borið sýnilegan árang-
ur. Ekki þurfti að fara í grafgötur um, að flutnings-
menn báru kala til Pálma Loftssonar, framkvæmdar-
stjóra landhelgisgæzlunnar og strandsiglinganna. Kom
þetta greinilega í ljós 1950 í sambandi við myndun
stjórnar Framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokksins.
Jóhann Jósefsson lét það verða sitt síðasta verk sem
ráðherra útvegsmála, að skipa rannsóknarnefnd til
að endurmeta forystu Pálma Loftssonar í strandferða-
málum. Þegar Hermann Jónasson tók við forystu strand-
ferðanna, taldi hann ekki ástæðu til að halda áfram
þessari rannsóknarstarfsemi og lagði fyrir endurskoð-
enduma að hætta sinni iðju. Fáeinum dögum síðar tók
Bjarni Benediktsson málið upp fyrir sitt leyti og lagði
fyrir þá menn sem Jóhann Jósefsson hafði sett til að
enduskoða framkvæmd strandferðana, að hefja sams