Ófeigur - 15.12.1950, Page 32
32
ÖFEIGUR
farþegum fulla kurteisi og greiðasemi í allri viðbúð.
Eftir fjögur ár strandaði „Sterling“ í þoku við Aust-
firði 1921. Klemenz Jónsson varð þá samgöngumála-
ráðherra og naut stuðnings Framsóknarflokksins. Ég
beitti mér þá af alefli fyrir því, að byggt yrði í stað-
inn fyrir Sterling hentugt mannflutningaskip til strand-
ferðanna, en á móti voru margir íhaldsmenn undir for-
ystu Jóns Þorlákssonar. Vildi hann, að á skipinu væri
lítið en gott farrými fyrir heldra fólk, en stór lest
vegna flutnings á vörum og efnaminna fólki. Lagði
Jón Þorláksson til, að hið nýja skip yrði látið flytja
saltfisk til Suðurlanda á vetrum, en á sumrin mætti
koma ferðamönnum fyrir á sama hátt og ég hafði
kynnzt á ,,Hólum“ um aldamótin. Birti Jón Þorláks-
son og nokkrir samherjar hans deilugreinar sínar í
Morgunblaðinu, en ég ritaði í Tímann. Ég naut stuðn-
ings allra leiðandi manna í Framsóknarflokknum í
þessu máli. Tók Klemenz Jónsson tillögu okkar fylli-
lega til greina og bað í samráði við mig Emil Niel-
sen, framkvæmdastjóra Eimskipafélagsins, að hafa
eftirlit með skipsbyggingunnL Var samfellt farþega-
rúm eftir skipinu endilöngu undri þiljum, en lestarrúm
tiltölulega lítið. Var „Esja“, því að svo nefndist skip-
ið, algerlega óhæf til saltfisksflutninga suður í lönd.
Um ejtt atriði bar okkur Nielsen ekki saman. Ég vildi
hafa tvö farrými, en hann þrjú. Taldi hann nauðsyn-
legt, að sjómenn hefðu þriðja farrými, þar sem þeir
gætu lagt sér til sængurföt og notað þau í ferðum milli
hafna. Ég beygði mig um þetta atriði fyrir reynslu
hins ágæta skipstjórnarmanns. Varð þriðja farrými
fyrir það nokkru fátæklegra en ég hefði kosið. Ég undi
vel við þennan fyrsta sigur í strandferðamálum. „Esja“
gerbreytti öllu ferðalagi hinna efnaminni manna í land-
inu, er þeir þurftu að leggja á sjóleiðina með strönd-
um fram. Lestarflutningur á fólki var afnuminn með
þessu skipi, en hélt áfram enn um stund á ýmsum
öðrum skipum. Fáum mánuðum eftir að Esja var full-
smíðuð og tekin að annast strandflutninga, varð Jón
Þorláksson ráðherra í ráðuneyti Jóns Magnússonar.
Hélt sú stjórn við hinu gamla fyrirkomulagi frá tím-
um „Sterlings“ferðanna, að láta strandferðir falla nið-
ur um vetrarmánuðina. Forráðamenn þjóðarinnar töldu,
að þá ætti fólk á landsbyggðinni að búa að sínu heima