Ófeigur - 15.12.1950, Side 37

Ófeigur - 15.12.1950, Side 37
ÓFEIGUR 37 atriði gat ég ekki stuðzt við Emil Nielsen, því að hann hafði byggt allan flota Eimskipafélagsins með kolavélum. Ég afréð að lokum að leggja út í óvissuna og láta smíða mótorskip til gæziunnar. Þá var ekki í öllum heiminum eitt einasta vélskip til landhelgis- gæzlu. Eftir að þessi ákvörðun var tekin, fól ég Emil Nielsen alla framkvæmd við byggingu skipsins, og tók hann þann vanda að sér, eins og svo oft endrnær, þeg- ar íslenzka þjóðfélagið þurfti hjálpar hans við. Ég lagði fyrir forstjórann að fylgja að Jdví leyti, sem unnt væri tillögu okkar Sveins Ólafssonar, að skipið yrði nothæft til björgunar og gæzlu. Ennfremur mælti ég svo fyrir, að leitazt skyldi við að hafa herbergi undir- manna á skipinu svo fullkomin sem unnt væri og gera ráð fyrir sérstöku baðherbergi fyrir háseta. Emil Niel- sen sýndi hinn mesta áhuga og umönnun við verkið, svo sem hans var von og vísa. Hefur ,,Ægir“ nú í 20 ár verið hið mesta happaskip og gert þjóðinni bæði gagn og sóma. Herbergi undirmanna á ,,Ægi“ eru betri en á nokkru öðru íslenzku skipi. En bað handa skip- verjum á „Ægi“ kom aldrei svo heitið gæti. I því efni var hinn mikli ágætismaður bam samtíðar sinnar. XIV. Björgunar- og gæzlustarf „Ægis“. Með komu „Ægis“ hófst nýtt tímabil í sögu björg- unarmálanna. Nú átti þjóðin gott og öflugt björg- unarskip búið fullkomnum tækjum til að bjarga skip- um og mönnum. Einar M. Einarsson var fengsæll á tekjur, bæði af töku brotlegra veiðiskipa í landhelgi og þá ekki síður fyrir björgun skipa og báta. Dönsku varðskipin töldu sér skylt að vera langdvölum á höfn- um og hafa gleðskap með landsmönnum til að auka kynni með Dönum og Islendingum. Höfðu yfirmenn dönsku varðskipanna gestaboð fyrir heldra fólk í kaup- stöðum landsins og dansleiki um borð til að gleðja liðsmenn, sem höfðu langar fjarvistir frá heimilum sín- um. Áður en „Ægir“ kom til sögunnar, þótti nokk- uð við' brenna, að yfirmenn íslenzku sjólögreglunnar tækju þessa lifnaðarhætti hinna dönsku varðskipmanna sér til fyrirmyndar. Ekki vildi Einar M. Einarsson

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.