Ófeigur - 15.12.1950, Blaðsíða 38
38
ÖFEIGUR
fylgja þessum siðum, heldur var hann öllum stundum
á sjónum, og allra helzt í myrkri og óveðri. Lagði
hann meginstund á að skapa ugg í brjósti veiðiþjófa
og venja þá af myrkraferðum um landhelgina. Margt
hefur breyzt í þessum efnum á undangengnum 20 ár-
um, en hin mikla sókn, um örugga landhelgisgæzlu,
sem hófst, eftir að „Ægir“ kom til sögunnar, hefur
orðið að varanlegri fyrirmynd hinna betri starfsmanna
í strandvarnarliðinu, bæði á skipum og varðbátum.
Skipti þá miklu, að hafa við forystu Skipaútgerðar-
innar mann, sem var sívakandi, hagsýnn og áhuga-
mikill um að láta landhelgisgæzluna verða að sem
mestri vörn fyrir sjávarútveg landsmanna. Dvöl Ein-
ars M. Einarssonar við strandgæzluna varð því miður
skemmri en æskilegt hefði verið og við hefði mátt
búast, en þættir úr starfssögu „Ægis“ fyrstu missirin,
sem skipið var hér við land, eru til varanlegrar fyrir-
myndar um öruggt starf í þágu íslenzka þjóðfélagsins.
XV.
Samstarf Skipaútgerðarinar við dreifbýlið.
Áður en Pálmi Loftsson tók við forystu Skipaút-
gerðar ríkisins, hafði hann samið í kyrrþey við dug-
andi menn á hverri höfn um afgreiðslu strandferða-
skipanna og fyrirgreiðslu við varðskipin. Kom honum
þar að góðu haldi reynsla frá strandsiglingum sín-
um og kunnugleiki á staðháttum og mönnum hvar-
vetna á ströndinni. Gætti í þessu heppilegrar fram-
sýni, því að fast var róið móti hinu nýja skipulagi,
og myndi mörgum kyrrstöðumönnum hafa þótt gott,
að Skipaútgerð ríkisins ætti ekki kost hagstæðrar að-
stöðu við bryggju og geymsluhús nema á sem fæstum
höfnum. Hafði hin ástæðulausa, en illviljaða gagnrýni
gegn kaupum „Þórs“ og ,,Súðarinnar“ sýnt, hvar botn-
fall lá í þjóðarsálinni. Jafnframt þessu myndaði for-
stjórinn kynningarsambönd við forystumenn sveitar-
félaganna á ýmsum stöðum, þar sem hætta var mest
á sjóslysum og ólöglegum landhelgisveiðum. Eru enn
til nokkrar fundargerðir sveitarstjórna. sem bundust
samtökum um að vinna að þessu máli með starfsliði
Skipaútgerðarinnar. Varanlegasti þáttur í þessu áhuga-
starfi við björgunarskipulag það, sem Pálmi Lofts-