Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 40
40
ÓFEIGUR
að setja um þetta efni regugerð á veldisárum sínum
1924—27 né 1932—34. Sýndi þessi staðreynd, að ekki
fylgdi hugur máli hjá andstæðingum mínum í dulmáls-
deilunni. Hvarf nú allur þróttur úr landhelgisvörnun-
um, þegar tvö af gæzluskipunum lágu að öllum jafn-
aði inni á höfnum, en skipshafnirnar á fullum launum
og iðjulausar, meðan þriðja skipið flökti á sænum undir
eftirliti lögfræðings í dómsmálaráðuneytinu, sem var
önnum kafinn við venjuleg skyldustörf og annríki.
Auk þess algerlega ókunnugur öllu, sem laut að
sjómennsku og lífsaðstöðu þess fólks í landinu, sem
lifði af veiðum fiskibátanna. Var þá sízt að furða, þó
að ólöglegar landhelgisveiðar færu vaxandi. Var það
mál manna um allt land, að gæzlan væri með þessu
fyrirkomulagi nálega þýðingarlaus.
XVIII.
Ludvig C. Magnússon vegur og mælir „Þórs“-fiskinn.
Kappsmönnum þeim í Sjálfstæðisflokknum, sem mest
höfðu beitt sér gegn hinum miklu umbótum á land-
helgisgæzlunni, eftir að Skipaútgerð ríkisins tók til
starfa, þótti við eiga að grannskoða verk okkar Pálma
Loftssonar og vita, hvort þar væri ekki um vítaverð-
ar framkvæmdir að ræða, svo að á þeim grundvelli
mætti víkja forstjóra Skipaútgerðarinnar frá störfum
og bægja frá útvegsmönnum allri hættu af of miklum
dugnaði hans og kunnleika við gæzlumálin. Var nú,
einkum eftir kröfu Jóns Þorlákssonar, sett rannsókn-
arnefnd til að sannprófa fjármálaheiðarleik þeirra, sem
unnið höfðu að framkvæmd landhelgismálanna. Var
maður, að nafni Ludvig C. Magnússon, settur yfir þetta
verk. Hann var maður vitgrannur, lítt menntaður og
með öllu ókunnugur útgerðar- og landhelgismálum.
Fékk hann aðgang að skjölum Skipaútgerðarinnar, og
var þar að verki með sínum hjálparmönnum, án þess
að starfsfólk Skipaúgerðarinnar væri þar við. Lagði
endurskoðandinn megináherzlu á að sanna, að um svik-
samlegan fjárdrátt hefði verið að ræða í sambandi við
fiskiveiðar „Þórs“ og miklar misfellur væru á kaup-
um þess skips. Kemur Ludvig C. Magnússon einn dag
til Pálma Loftssonar og segir, að hann finni ekki í
skjölum ,,Þórs“ samninginn um kaup skipsins í Þýzka-