Ófeigur - 15.12.1950, Síða 47
ÓFEIGUR
47
tækniþróun útvegsins. Hún fékk auk þess mjög aukna
°g þýðingarmikla fyrirgreiðslu frá björgunarfélögum
kvenna í kaupstöðum og kauptúnum, þar sem atvinna
fólksins var bundin við hættulíf sjómanna á viðsjál-
um sæ.
XXV.
Andóf gegn bátagæzlu.
Stefna Pálma Loftssonar um vopnaða varðbáta til
landhelgisgæzlu hafði gersamlega sigrað á Alþingi, þeg-
ar ákveðið var að selja gufuskiuið ,,Öðin“ úr landi og
láta „Þór sinna öðrum störfum en gæzlumálum. Hið
nýja skipulag studdist enn fremur við vaxandi kröfur
um staðbundna varðbáta til gæzlu. Hin eiginlega fiski-
mannastétt landsins kvartaði sárlega undan ágengni
dragnótabáta, togbáta og togara. Ef einn togbátur dró
vörpu sína í myrkri eftir einhverjum af hinum fiskisælu
fjörðum landsins, reif varpan upp botngróðurinn og
fældi fiskinn burt. Þóttust fiskimenn geta rakið margra
vikna fiskileysi á þvílíkum veiðistað til einnar slíkrar
ránsferðar lögbrjóts á næturþeli. Hin miklu samskot
efnalítilla manna á Vestfjörðum til byggingar „Maríu
Júlíu“ stóðu fyrst og fremst í sambandi við hina sorg-
legu reynslu fólksins á sjávarbakkanum af hinum sið-
lausa ránskap báta og skipa með vörpu, sem eyðilagði
lífsbjörg almennings. En þrátt fyrir þessa ágætu reynslu
af starfi vopnaðra vélbáta, gætti enn skammsýni og
miður góðviljaðrar andstöðu gegn bátavörzlunni. Öll
sú hreyfing var beint áframhald af andófinu gegn eftir-
liti með dulmálsskeytum 1928—30. Hér voru enn að
verki menn, sem höfðu hagsmuni af veikri og
ófullkominni landhelgisgæzlu. Aðstandendur báta og
skipa, sem drógu vörpu sína á grunnsævi uppi við f jöru-
steina, létu þjónustulið sitt við blöð landsins og á Al-
þingi vera sífellt að verki til að gera lítið úr starfi
varðbátanna. Það var rætt um, að bátarnir væru ófull-
komnir, sýndu átakanlegan vanmátt ríkisvaldsins og
og væru óhentugir yfirmönnum og hásetum, sem þar
ættu að búa. Því meir sem dragnóta- og togbátum
fjölgaði og hættan óx af veiðum þeirra, urðu hávær-
ari raddir um, að varðbátar væru þýðingarlitlir til
gæzlu og þjóðinni til minnkunar. íslenzka lýðveldið