Ófeigur - 15.12.1950, Síða 51
ÖFEIGUP
51
og gat flutt meiri vöru og fleiri farþega. Nýja „Esja“
kom heim rétt í stríðsbyrjun. Var þá svo lítið um
gjaldeyri, að Pálmi Loftsson varð að taka að láni
með persónulegri ábyrgð hjá einstökum kaupmönnum
í Danmörku bæði sængurföt handa farþegum og mat-
Væli til heimfe'rðarinnar. Vegna stríðshættunnar var
um stund farið nærri Noregsströnd og tekinn norsk-
ur hafnsögumaður. Fékk Pálmi Loftsson 200 kr. bráða-
birgðalán hjá íslenzkum alþingismanni, er var með
skipinu. Hafði öll framkvæmd þessa máls frá byrjun
til enda hvílt á Pálma Loftssyni, og er að öllu sam-
töldu glæsilegasti sigur eins manns hér á landi í sigl-
ingamálum, þegar litið er á njrtsemi málsins veikan
stuðning og magnaða andúð. Á styrjaldartímanum af-
kastaði „Esja“ feikna verki og hélt uppi góðum sam-
göngum með ströndum fram. Getur almenningur á Is-
landi seint fullþakkað þá framkvæmd. Sást síðar, ekki
sízt í sambandi við ,,Þormóðs“-slysið, hve miklu mun-
aði fyrir fólk á ströndinni að hafa þá slíkan farkost,
í stað þess að verða að ferðast með ófullkomnum og
hættulegum fiskiskipum. Með nýju „Esju“ hafði Pálmi
Loftsson lagt grundvöll að því sjósamgöngukerfi, er
hann vildi koma í framkvæmd á íslandi.
XXIX.
Varðbátakaup Finns Jónssonar.
Stjórnarvöldin höfðu verið lítt áhugasöm um gæzl-
una. Eftir að vélbáturinn „Óðinn“ kom til sögunnar,
lét ríkið ekki um margra ára skeið byggja nýja
gæzlubáta, eins og til var ætlazt, þegar gufuskipið
„Óðinn“ var selt og „Þór“ afhentur til annarra þarfa.
„Sæbjörg“ varð til fyrir áhuga kvenna á björgunar-
málum og varðgæzlubátur áf því, að eigendurnir gátu
ekki sjálfir lagt fram fé til rekstursins. Skipaútgerð-
in varð þess vegna ár eftir ár að leigja venjulega fiski-
báta og manna þá með sjómönnum, sem höfðu enga
sérstaka æfingu við framkvæmd gæzlumála. Grunn-
færu og yfirlætismiklu fólki þóttu þessir bátar ekki
hæfa fullvalda ríki. En þetta ríki hafði ekki upp á
betra að bjóða, og auk þess voru hinir óþekktu fiski-
bátar oft furðu áhrifamiklir við að halda óspektar-
mönnum frá landhelgisbrotum. Meðan stóð á þessu