Ófeigur - 15.12.1950, Síða 56
56
ÖFEIGUR
sjómönnum í Gullbringusýslu sama greiða. Hafa þeir
orðið að þola þungbæran ágang af veiðiskipum vestan-
vert Reykjanes. Beitti Pálmi Loftsson þar sömu aðferð
og hjá Vestmannaeyjum, markaði á viðeigandi upp-
drátt veiðisvæði framan við nesið, þar sem íslenzkir
bátar leggja net sín og línu, og fór fram á, að togarar
hlífðu þessum miðum. Reyndi á í þessu efni síðast lið-
inn vetur. Tókst tilraunin svo vel sem frarnast mátti við
að búast, og hefur þessi útsjón og framsýni, bæði við
Vestmannaeyjar og Reykjanes, orðið til hins mesta
hagræðis. En að svo vel hefur tekizt að bjarga atvinnu
og eignum landsmanna utan landhelgi, er að mestu leyti
að þakka því trausti og virðingu, sem íslanzk landhelg-
isgæzla og björgunarstarfsemi hefur á tuttugu undan-
gengnum árum aflað þjóðinni hjá fiskimönnum erlendra
þjóða.
XXXVI.
Eysteinn Jónsson hverfur að stórskipagæzlu.
Nokkru eftir að Eysteinn Jónsson tók sem ráðherra
við forræði í landhelgismálum, þótti honum ástæða til
að hef jast handa um byggingu á stóru varðskipi. Hann
gat í því efni talið sér stuðning í árlega frambornum
þingsályktunum, sem mjög snertu þetta efni. Stóðu að
því máli þrír ungir þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum,
og er þeirra fyrr getið. Er helzt svo að sjá sem ráð-
herrann og þessir þrír stuðningsmenn hans hafi ekki
haft hugmynd um hina sögulegu þróun landhelgismál-
anna. Þeir hafa ekki munað, að Alþingi hafði á árunum
fyrir 1930 fyrirskipað að byggja og kaupa þrjú stór
skip til gæzlu, en Magnús Guðmundsson hafði á ára-
bilinu 1932—34 að jafnaði sökum féleysis látið tvö af
þremur skipum liggja aðgerðalaus inni á höfnum.
Eysteinn Jónsson hafði gleymt, að hann var jafn fé-
laus eins og fyrirrennarar hans og átti þá þátt í að selja
gufuskipið ,,Óðin“ úr landi, þegar svo að segja allur
þingheimur hafði samþykkt tillögu Pálma Loftssonar
um að hafa ekki nema eitt stórskip til gæzlu og björg-
unar, en nota að öðru leyti vopnaða vélbáta til starfsins.
Til að fullnægja þessari kenningu var „Óðinn“ seldur
úr landi og „Þór“ afhentur frá gæzlumálum og loks
seldur. Síðan hafði stjórn og þing lifað eftir þessari