Ófeigur - 15.12.1950, Page 58

Ófeigur - 15.12.1950, Page 58
58 ÓFEIGUR leggja ,,Ægi“, en láta nýja skipið fylgja bátaflota Vest- mannaeyinga. Hefur þá lítill ávinningur orðið að því að kaupa skipið fyrir 8 milljónir króna. Að vísu verður það ganghraðara en „Ægir“ og með öflugri dráttar- vélum. En við dagleg gæzlu- og björgunarstörf hefur það litla eða enga þýðingu. Sá tími er löngu liðinn, þegar varðskip tóku brotlega togara í hópum með því að elta þá og njóta yfirburða um hraða. Vélbát- anir taka flest hin brotlegu skip hér við land af á- stæðum, sem að framan eru greindar. Kaup hins nýja skips er þess vegna sorglegt víxlspor í gæzlumálunum og eitt af átakanlegustu dæmunum um hringl og festu- leysi í landsmálum og stjórnarstarfsemi. Verður vik- ið að einkennilegum þætti í því máli. XLII. Traust og virðing landlielgisgæzlunnar. Síðan Pálmi Loftsson tók við daglegri framkvæmd gæzlumálanna, hefur engum þeim manni sem á atvinnu sína beinlínis undir góðri landvörn komið til hugar að yfirstjórn gæzlunnar mundi viljandi halda hlífi- skildi yfir lögbrjótum. Þegnarnir í íslenzka ríkinu hafa verið þess fullvissir, að land þeirra væri að þessu leyti réttarríki. Sama er að segja um erlendar þjóðir er hingað sigla til að stunda fiskveiðar. En þessu var öðruvísi farið áður en hann tók við forstöðu gæzlu- málanna. Árið 1926 varð langvarandi milliríkjaþræta út af framkvæmd gæzlunnar hér við land gagnvart erlendri þjóð. Um sama leyti var á döfinni hið svo- nefnda Tervanimál frá stjómartíð Jóns Magnússonar. Islenzkur varðbátur kærði enskan togara fyrir land- helgisbrot, en við meðferð málsins kom í ljós, að 4 varðbát íslenzka ríkisins voru engin sjókort, engin mælitæki, og engin skriffæri. Þess vegna varð báts- formaðurinn að krota sannanir sínar með rispum á borðstokkinn. Slík gæzla varpaði skugga á það land, sem veitti löggæzlu sinni slíkan aðbúnað. Eftir að Skipaútgerðin tók að sinna björgun skipa og manna svo, að engir erlendir aðilar komu þar til greina, urðu hin vinsamlegu og virðulegu kynni gæzlu og björgun- arliðsins til að skapa erlendis þá skoðun á íslenzka ríkinu, að það væri vörður merkilegrar menningar við

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.