Ófeigur - 15.12.1950, Síða 59
ÓFEIGUR
59
hin yztu höf. Renna margar stoðir undir þá skoðun.
Sú staðreynd, að forstöðumanni gæzlunnar hefur tek-
izt, með frjálsu samkomulagi við þær þjóðir, sem fiska
við ísland, að fá þær til að þyrma veiðarfærum ís-
lenzkra bátaeigenda langt úti á rúmsjó, sýnir hug-
kvæmni og ráðsnilld Pálma Loftssonar og þá tiltrú,
sem Skipaútgerð ríkisins nýtur hjá siglingaþjóðum
næstu landa. Sérstakt dæmi úr starfssögu íslenzkra
gæzlumála kollvarpar að fullu hinum órökstuddu skoð-
unum sýslumanns Þingeyinga og fylgismanna hans um
álitsleysi landhelgisgæzlunnar í höndum núverandi for-
stöðumanns. Árið 1943 varð að beita hörðu við brezk-
an togara til að fá hann til að hlýða varðskipinu ís-
lenzka. Var málum þannig háttað, að ,,Ægir“ hafði
fyrirskipun um að sökkva togaranum fremur en að
láta hann sleppa. Mörgum kúlum var skotið gegnum
skipið, en skipstjórinn lét ekki undan fyrr en vélin
var löskuð af skothríðinni. Litlu síðar kom mál þetta
fyrir í brezka þinginu, og varð uatnríkisráðherrann,
Anthony Eden, fyrir svörum. Hann sagði, að hér væri
um að ræða óvenjulegt mál, en hann hefði kynnt sér
alla málavexti og framkvæmd íslendinga í landhelgis-
málum. Hefði hann komizt að þeirri niðurstöðu, að
taka hins umrædda togara hefði ekki verið óréttmæt
eins og á stóð og hann sagðist bera fullt traust til
íslendinga um meðferð þeirra á þessum málum.
XLIV.
Þegar „Esja“ kom frá Petsamo 1942.
„Esja“ kom til Reykjavíkur 1942, fullhlaðin íslenzk-
iim farþegum frá Norðurlöndum. Hafði skipið orðið
að sigla milli skers og báru og koma við til eftirlits
hjá Þjóðverjum í Noregi og hjá Bretum í Orkneyj-
um. Þegar kom til íslands, þótti hernaðaryfirvöldum
Englendinga ekki fulltryggt um þegnskap nokkurra af
farþegunum og kröfðust þess að „Esja“ lægi um óá-
kveðinn tíma undir eftirliti úti á höfn með hina grun-
samlegu fargesti, þar til fullrannsakað væri um eðli
og ástanda hinna kyrrsettu manna. Ríkisstjórnin
rejmdi að losa skipið og fangana, enda var „Esju“
mikii þörf í strandsiglingum, en brezku hernaðaryfir-
völdin vildu ekki breyta ákvörðun sinni. Stjórnin leiddi